Donald Trump Bandaríkjaforseti hótar írönskum stjórnvöldum öllu illu komi á daginn að þau tengist atlögu flugmanns að kollega sínum um borð í farþegaþotu Flydubai á leið frá Dubai til Tel Aviv á miðvikudag.
Farþegum tókst að yfirbuga árásarmanninn og koma þannig í veg fyrir að þotan hrapaði á ísraelsku landsvæði. Þeim og áhöfninni hefur fyrir vikið verið hampað sem hetjum. Flestir farþeganna voru ísraelskir.
Trump kvaðst aðspurður á blaðamannafundi alveg geta trúað Írönum til að standa að baki árásinni en bætti við að hafa yrði í huga að rannsókn væri nýhafin. Enginn skyldi efast um að Íranar fengju að finna til tevatnsins, reyndist svo vera.
Yfirvöld í Sameinuðu arabísku furstadæmunum rannsaka hvort flugmaðurinn, sem sagður er Ómani, tengist hryðjuverkasamtökum og ísraelski forsætisráðherrann Benjamín Netanjahú segir hann hafa hlotið róttæka innrætingu íslamista.
Ísraelskir ráðamenn hafa óhikað sagt manninn hafa ætlað að fremja hryðjuverk með því að granda þotunni en Netanjahú sagðist áður ekki útiloka að hann glímdi við andleg veikindi. Flugmaðurinn var fluttur til furstadæmanna í gær undir vökulu auga öryggissveita.
Tveir flugmenn FlyDubai sátu í farþegarýminu og tóku við stjórn þotunnar eftir að hún hafði hrapað 17 þúsund fet meðan á átökunum í flugstjórnarklefanum stóð. Þotan lenti í Sádi-Arabíu áður en flogið var með farþegana til Ísraels.