Trump fordæmir „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind
Forseti Bandaríkjanna neitar að auka regluverk um gervigreind því það myndi veita Kínverjum forskot. Hann ræðst að forstjórum tæknifyrirtækja sem hafa viðhaft varnaðarorð og beðið um að hægt verði á þróuninni og sakar þá um landráð og svik.
DDonald Trump Bandaríkjaforseti réðst í dag gegn því sem hann kallaði „sjúkt samsæri“ gegn gervigreind og hafnaði kröfum um aukið regluverk þrátt fyrir vaxandi áhyggjur af því að tæknin geti ógnað mannkyninu.
Trump sagði Bandaríkin þurfa að halda forystu á sviði gervigreindar til að hafa betur gegn stórveldinu Kína og gagnrýndi harðlega forstjóra Anthropic, fyrirtækisins á bak við Claude, sem hefur kallað eftir því að hægt verði á þróuninni.
„Eina eftirlitið eða þær „varúðarráðstafanir“ sem gervigreind þarfnast er STERKUR OG KLÁR (með háa greindarvísitölu!) FORSETI, og Bandaríkin hafa slíkan forseta svo um munar!“ sagði Trump í færslu á samfélagsmiðli sínum Truth Social.
Vísar varnarorðum á bug
Trump hefur á síðastliðinni viku ítrekað vísað á bug fjölda viðvarana frá stjórnendum tæknifyrirtækja um hættur gervigreindar, með þeim rökum að með bandarísku regluverki yrði keppinautnum í Peking gefið forskot.
„Það …