Árni Stefán Árnason dýraverndarlögfræðingur var í síðustu viku handtekinn vegna rannsóknar lögreglu á innbrotum í svínabú, hænsnabú og minkabú sem framin voru á þessu ári.
Nútíminn greindi fyrst frá en Vísir hefur þetta einnig eftir heimildum sínum.
Árni sagði í samtali við Nútímann að hann hefði verið handtekinn á þriðjudaginn vegna gruns um aðild að innbrotunum fjórum þar sem dýrum var hleypt út. Hann telur það vera vegna gagnrýni sem hann hefur sett fram á hendur MAST. Deilur Árna og stofnunarinnar hafa staðið í nokkur ár.
Mikið hefur verið um innbrot í dýrabú á þessu ári, nú síðast í svínabú Stjörnugríss á Kjalarnesi í september. Það var í annað skipti sem brotist var inn þar.
Fyrra innbrotið var í maí þar sem tíu grísir drápust og aflífa þurfti einn. Í júní var svo brotist inn í alifuglabú á Reykjum í Mosfellsbæ og í minkabúið Dalsbú í Mosfellsbæ í júlí. Í öllum innbrotum lágu dýr sár eftir og þurfti að aflífa sum þeirra.