Lögfræðingurinn Árni Stefán Árnason var handtekinn í síðustu viku vegna rannsóknar á innbrotum í eldisbú Stjörnugríss á Kjalarnesi, Reykjabúið í Mosfellsbæ og Dalsbú í Mosfellsdal, en fyrsta innbrotið átti sér stað í maí. Frá þessu greinir Nútíminn sem hefur það eftir Árna Stefáni að sími hans og fartölva hafi verið haldlögð í aðgerðum lögreglu, bifreið hans rannsökuð og hann sjálfur fluttur, á undirfötunum, í fangaklefa.
Árni Stefán handtekinn á undirfötunum í tengslum við innbrot í þrjú eldisbú