Japanski K-pop áhrifavaldurinn Mina Chan lést, 26 ára að aldri, eftir að hafa tekið eigið líf í beinni útsendingu á TikTok. Dagana fyrir andlátið hafði hún sætt mikilli gagnrýni og orðið fyrir grófu áreiti á samfélagsmiðlum frá hluta aðdáendahóps kóresku strákahljómsveitarinnar ENHYPEN.
Chan, sem bjó í Suður Kóreu og var þekkt undir notandanafninu sweeter_nk, var virk í aðdáendasamfélagi sveitarinnar og fylgdi henni reglulega á tónleika og á viðburði þar sem aðdáendur gátu hitt meðlimi hennar.
Suður kóreska fréttastofan Yonhap greinir frá því að lögreglu hafi borist tilkynning klukkan 5.33 að morgni 5. ágúst um japanska konu á þrítugsaldri sem væri í lífshættu meðan á TikTok útsendingu stóð. Vinur hennar hafði haft samband við lögreglu eftir að hafa fylgst með útsendingunni. Konan lést og lögreglan í Yongsan hverfinu í Seúl rannsakar tildrög dauðsfallsins.
Mikil reiði meðal aðdáenda
Deilurnar hófust eftir tónleika ENHYPEN í Bandaríkjunum í lok júlí. Þar mun Chan hafa reynt að fá Sunoo, einn meðlim sveitarinnar, til að koma blómum til annars meðlims, Ni-ki, sem hún hélt sérstaklega upp á.
Atvikið vakti hörð viðbrögð meðal hluta aðdáendahópsins. Chan var sökuð um að ganga of langt í samskiptum sínum við hljómsveitina og reyna að beina athyglinni að sjálfri sér.
Skömmu síðar ræddi Ni-ki almennt um hegðun aðdáenda á tónleikum í beinni útsendingu. Hann nefndi Chan hvorki á nafn né vísaði beint til atviksins en sagði að sumir tónleikagestir virtust leggja meiri áherslu á að fá athygli hljómsveitarmeðlima en að njóta tónleikanna.
Margir á samfélagsmiðlum töldu ummælin beinast að Chan og í kjölfarið jókst gagnrýnin og áreitið í hennar garð. Hvorki Ni-ki né útgáfufyrirtækið Belift Lab hefur staðfest að ummælin hafi átt við hana.
Birti langa afsökunarbeiðni
Chan birti síðar langa afsökunarbeiðni á X þar sem hún sagðist meðal annars hafa farið yfir mörk í samskiptum sínum við meðlimi sveitarinnar eftir að hafa mætt ítrekað á viðburði þeirra.
Hún bað Sunoo og aðdáendur hans afsökunar og sagðist sjá eftir hegðun sinni á tónleikunum í Bandaríkjunum. Hún þakkaði jafnframt þeim sem höfðu fylgst með henni undir notandanafninu sweeter_nk. Áreitið á samfélagsmiðlum hélt hins vegar áfram.
Yngri systir Chan staðfesti andlát hennar á Instagram 6. ágúst og bað fólk að virða friðhelgi fjölskyldunnar og forðast frekari vangaveltur.
Lögreglan hefur ekki sagt að eineltið eða deilurnar innan aðdáendasamfélagsins hafi valdið dauða Chan og rannsókn á tildrögum hans stendur enn yfir.
Hjálp er í boði
Ef þú eða einhver sem þú þekkir glímir við sjálfsvígshugsanir eða mikla vanlíðan er hægt að hafa samband við Hjálparsíma Rauða krossins í síma 1717. Síminn er opinn allan sólarhringinn og hægt er að hringja án endurgjalds.