Erlendir fjölmiðlar hafa eftir Timur Tkachenko, sem stýrir aðgerðum Úkraínuhers í Kænugarði, að 46 manns til viðbótar hafi særst í árásunum og þar af fimm börn.
Tkachenko segir frá því á Telegram að björgunaraðgerðir standi enn yfir á um tuttugu stöðum í borginni eftir árásir næturinnar og að Rússar hafi meðal annars beint árásum sínum að háum íbúablokkum á tveimur stöðum í borginni.
Árásir Rússa eru gerðar daginn fyrir leiðtogafund Atlantshafsbandalagsins (NATO) í Ankara í Tyrklandi þar sem búist er við að Volodymír Selenskí muni eiga fund með Donald Trump Bandaríkjaforseta.
Selenskí greindi frá því í gær að Úkraínumenn væru að búa sig undir aðra árásahrinu af hendi Rússa, en þrjátíu manns létu lífið í árásum Rússa á úkraínsku höfuðborgina síðastliðinn fimmtudag.