„Tilgangur lífsins er að lágmarka skaðann af sjálfum sér“

„Tilgangur lífsins er að lágmarka skaðann af sjálfum sér“

„Tilgangur lífsins er að lágmarka skaðann af sjálfum sér“

„Tilgangur lífsins er að lágmarka skaðann af sjálfum sér“

Jón Ósk­ar Haf­steins­son mynd­list­ar­mað­ur bjó fyrstu ár æv­inn­ar í kjall­ar­an­um hjá ömmu sinni og afa. Í hús­inu bjuggu fjór­ir karl­ar og tíu kon­ur. „Þar með hófst mín gæfa því ég var elsk­að­ur.“ Hann deil­ir því sem hann hef­ur lært af skóla lífs­ins.

Maður sem lendir aldrei í mótlæti, engum hörmungum, lærir hann eitthvað? Og nennir einhver að lesa slíkan texta?

Ég fæddist í Reykjavík seinnipart október 1954 í vondu veðri, sýnist mér á dagblaðinu Tímanum: „Mikil og óvenjulega snögg veðrabrigði urðu hér á landi síðdegis í gær og gærkvöldi, er mjög djúp lægð gekk yfir landið, og var þá að skella á norðaustan hvassviðri með mikilli fannkomu um vestan- og norðanvert landið og mundi færast til Austurlands með morgninum. Þegar blaðið átti tal við Veðurstofuna í gærkvöldi var hin djúpa lægðarmiðja komin yfir Borgarfjörð. Í Vestmannaeyjum var veðurhæð orðin 13 vindstig.“ Þetta byrjaði ekki vel en átti eftir að batna.

Foreldrar mínir, Hafsteinn Ingvarsson og Ragnheiður Jónsdóttir, höfðu komið sér fyrir í kjallaraíbúð í stóru húsi ömmu og afa, Sigurbjargar Ingvarsdóttur frá Skipum og Jóns Óskars Guðmundssonar frá Nyrðri Nýjabæ, á Langholtsvegi 44. Þarna voru bara fjórir karlar: afi, pabbi, strákurinn Gísli, frændi minn, og ég … og tíu konur, mamma í kjallaranum, amma og fjórar móðursystur á hæðinni og Michaels-systur á þriðju hæð. Þar með hófst mín gæfa því ég var elskaður. Ég var fyrsta barn mömmu, fyrsta barnabarn ömmu og allar hinar börn og unglingar sem þráðu að vera barnapíur.

Mín fyrsta minning er plastlyktin af barnavagninum og skerminum yfir mér. Þessi minning fyllir mig alltaf öryggi og vellíðan.

FjölskyldanÞarna erum við Þorvar að sporta okkur við Gefjunargosbrunnin ásamt fjölskyldunni. Frá vinstri, Pabbi, Þórunn Friðriksdóttir amma í Vestmannaeyjum, mamma og Inga Ásgeirsdóttir frænka.
ÆskanVígalegir krakkar í garðinum mínum í Sölleröd. Frá vinstri, Steinunn Stefánsdóttir, Helgi Thorarensen, Anker, ég, Yrsa Kragh og einhver sem ég átta mig ekki á.

Í þessu húsi gekk ég bara í „sérsaumuðu“: jakkafötum, buxum, skyrtum og kvöldslopp, sem var eiginlega ans ensku reykslopparnir. En þarna urðu líka slys. Ég varð fyrir bíl þremur, fjórum árum síðar. Við strákarnir skemmtum okkur við að hlaupa í veg fyrir bíla til að láta þá bremsa en í eitt skiptið var ég fullkaldur og rankaði við mér fyrir aftan bílinn. Óskaddaður. Annað skipti, sennilega fyrr, datt ég niður tuttugu tröppur og braut nefið sem hefur verið skakkt æ síðan. Eftir á að hyggja þá sitja augun í mér mishátt í andlitinu, sem er óþekkt í mínum ættum. Það skyldi þó ekki vera? Skiptir engu. Karlar eiga ekki að vera „symmetrískir“.

„Við strákarnir skemmtum okkur við að hlaupa í veg fyrir bíla til að láta þá bremsa en í eitt skiptið var ég fullkaldur

Við fluttum síðan í næsta hús á Hólsvegi, síðan í Miðtún og svo héldum „við“ til náms í Kaupmannahöfn. Þar bjuggum við á hálfgerðum herragarði í Sölleröd með risagarði fullum af epla- og perutrjám og göngustígum allt um kring. Mínir bestu vinir þar voru Yrsa, Anker og Nicolai. Mig langaði alltaf að heita Nicolai. Eftir að við fluttum aftur heim var ég sendur í tvígang til Sölleröd og bjó hjá nágrönnum okkar þar.

Nú var ég kominn á Hjallaveg 29 í Kleppsholti (þrem húsum frá ömmu á Langholtsvegi) og sendur í Langholtsskóla. Það var skemmtilegur tími, sprellað alla daga fram á kvöld með Björgvini stóra, Björgvini litla, Magga, Gvendi stóra, Lilju, Þórunni, Bryndísi og hangið í Sunnósjoppunni innan um eldri krakka. Þetta var tími Kinks, Bítlanna, Prins Valíants, Enid Blyton og Tígulgosans. Pabbi var með tannlæknastofu í Sólheimum 25 og ég hékk mikið í bókasafninu við hliðina og fór í drekkutíma til hans. Á þessum árum vann hann sex daga vikunnar. Sjálfur byrjaði ég að vinna tíu ára sem blaðburðarmaður Vísis í Kleppsholti og Laugarási. Vísir gerði vel við mig og ég fékk ellefu aukablöð sem ég mátti selja og eiga gróðann. Ég kom mér upp prívatáskrifendum sem fengu blaðið á hálfvirði hjá mér.

1967/68 erum við bræðurnir fimm, Jón Óskar, Þorvar, Hafsteinn, Hringur og Tindur, og nú er flutt í Garðahrepp. Það var lítið við að vera þar en gaman … öðruvísi. Ég er einn af þeim sem eru alltaf spenntir að byrja í nýjum skóla og hef aldrei skilið kvíða barna fyrir breyttum aðstæðum. Gagnfræðaskóli Garðahrepps var lítil bráðabirgðabygging og aðalsamkomuhúsið var sjoppan við Hafnarfjarðarveg sem jafnframt var pósthúsið. Það var ekki búð þarna en það var kaupfélagsrúta frá Kaupfélagi Hafnarfjarðar og bókasafnsrúta. Það var alltaf stemning að fá búðirnar og söfnin heim í götuna. Mest brallaði ég með Gassa, Gesti, Jóni Stefáni, Kalla, Bjössa litla og vangaði við Dóru Einars.

SonurinnBurkni sonur minn og Heiða Berlína fyrir utan heimili okkar á Tiffany Place í Red Hook Harbour.
EiginkonanHulda Hákon.
Í NorðursjóÞrír félagar á eyjabátnum Ísleifi IV í Norðursjó: Hlöbbi, Jói danski og ég.

Led Zeppelin kemur til Íslands og skömmu síðar byrja ég í Menntaskólanum við Tjörnina. Stelpurnar í Garðahreppi fóru flestar í Hamrahlíð en strákarnir í MR. Þetta er árið þegar MR springur og MT byrjar sem útibú en endar sem sjálfstæður skóli. Þar hitti ég fullt af gömlum skólafélögum úr Langholtsskóla og endurnýjaði kynnin við þá. Þar kynntist ég konunni minni, Huldu Hákon. MT var stórmerkilegur skóli og það hefur verið skemmtilegt að fylgjast með gömlum skólafélögum á ýmsum vígstöðvum í samfélaginu.

„Þegar ég mætti í skólann þekkti ég nánast alla kennarana en það dugði skammt því ég var felldur

Ég var mjög gott efni í eilífðarstúdent, ekki af því að ég væri svo frábær námsmaður heldur af því að mér finnst bara svo gaman að vera í skóla. Háskólinn þvældist hins vegar fyrir mér. Þar fann ég ekkert fag sem ég gat ímyndað mér að læra og ákvað að fara í Myndlista- og handíðaskólann. Það eina sem ég hef í raun áhuga á er myndlist og tónlist og þá heima þekkti ég ágætlega. Móðir mín er myndlistarmaður og pabbi lærður söngvari ásamt því að vera tannlæknir. Þegar ég var í barnaskóla var ég sendur í Barnamúsíkskóla Edelsteins og í myndlistarnám hjá Ragnari Kjartanssyni og Magnúsi Pálssyni á Grundarstíg. Samkvæmi foreldra minna voru oftast í kringum myndlistarfólk, tónlistarfólk, leikara og skáld. Þegar ég mætti í skólann þekkti ég nánast alla kennarana en það dugði skammt því ég var felldur á þriðja ári fyrir leti og hafði bara gert eina grafíkmynd alla önnina. Ég hélt uppi vörnum og sagði hana það besta sem hefði verið gert á þessari önn í skólanum … en ég féll og ákvað að hætta í myndlist.

En þetta var ekki leti; ég hafði kynnst nýjum heimi sem átti hug minn allan. Ég ætlaði að vera lay-out-maður!

Sumarið fyrir þennan vetur byrjaði ég að vinna á Vísi Þorsteins Pálssonar og Ólafs Ragnarssonar. Ég rakst á auglýsingu og sótti um þessa lay-out stöðu. „... og hefur þú fengist við svona vinnu?“ spurði Ólafur. Nei, en ég sagðist hafa farið í Mynd- og hand gagngert til að læra lay-out. En í raun vissi ég ekki um hvað þetta starf snerist. Þeir réðu mig en eftir þrjá daga segir fréttastjórinn og glottir: „Þú kannt þetta ekkert.“

„Jú, ég kann það núna.“

Ég hafði ekki verið lengi á Vísi þegar ein af Michaels-systrum kemur þangað sem blaðamaður, Jónína „Ninna“ Michaelsdóttir. Hún tók upp sitt fyrra starf frá Langholtsvegi 44 og siðaði mig til í klæðaburði og framkomu. Mér þótti vænt um það.

Lay-out er einn besti myndlistarskóli sem ég hef farið í. Við erum fjórir vinirnir sem vorum í lay-outi; Birgir Andrésson, Steingrímur Eyfjörð, Kristinn Harðars og ég. Það má greina í verkum okkar allra þennan bakgrunn.

Þremur árum síðar var ég einn af stofnendum Helgarpóstsins og þar myndskreytti ég oft greinar sem varð til þess að ég ákvað að halda áfram í myndlist og hélt til náms í New York og var þar í fimm ár.

Þegar heim var komið og ég kominn inn í nokkur gallerí og samsýningar í Evrópu vann ég áfram hálfa vinnu á dagblöðum, tímaritum og við kynningar fyrir félagasamtök stjórnmálaflokka og fleira. Þetta var orðin svo mikil vinna að ég var farinn að vísa verkefnum frá mér en mér fannst það ekki snjallt svo ég fékk bræður mína og son til að stofna Gagarin ehf. með mér. Gagarin byrjaði sem lay-out stofa en þróaðist fljótt út í margmiðlun og vefvinnslu. Síðar stofnaði ég líka Gráa köttinn ehf. og Birtingaholt ehf. Öll ganga þau vel.

Hvað ég hef lært af mínu brölti í gegnum tíðina er ég ekki viss um en ég fór á sýningu hjá vini mínum, Finni Arnari, í Ásmundarsafni fyrr á árinu og yfirskrift sýningarinnar var: „Tilgangur lífsins er að lágmarka skaðann af sjálfum sér“.

Það situr í mér.

#lágmarka #lífsins #sjálfum #skaðann #tilgangur


Upprunaleg slóð:
https://heimildin.is/grein/27244/tilgangur-lifsins-er-ad-lagmarka-skadann-af-sjalfum-ser/

📰 Aðrar fréttir

Taylor Swift og kötturinn hennar komu óvænt fram á EMMY - Sjáðu myndbandið
📅 15.09.2026 👁️ 1
Taylor Swift og kötturinn hennar komu óvænt fram á EMMY - Sjáðu myndbandið
Taylor Swift kom áhorfendum Emmy-verðlaunanna á óvart þegar hún lék óvænt gestahlutverk á hátíðinni. Swifties, aðdáendur Swift, höfðu velt fyrir sér h...
Boney M og Herbert á öðruvísi jólatónleikum
📅 15.09.2026 👁️ 1
Boney M og Herbert á öðruvísi jólatónleikum
Hin goðsagnakennda diskóhljómsveit Boney M. ásamt upprunalegu söngkonunni, Liz Mitchell, með fullskipaðri hljómsveit, mun stíga á svið í Hörpu þann 19...
Fyrrverandi forstjóri Icelandair: „Svona kröfur geta haft mjög alvarlegar afleiðingar“
📅 15.09.2026 👁️ 1
Fyrrverandi forstjóri Icelandair: „Svona kröfur geta haft mjög alvarlegar afleiðingar“
Jón Karl Ólafsson, fyrrverandi forstjóri Icelandair, gefur lítið fyrir þau rök Félags flugvirkja að flugvirkjar hafi setið á eftir samanburðarhópum. F...
Grófu upp úrgang hjá Skotfélaginu
📅 15.09.2026 👁️ 1
Grófu upp úrgang hjá Skotfélaginu
Grófu upp úrgang hjá Skotfélaginu For­svars­menn Skotí­þrótta­fé­lags Hafn­ar­fjarð­ar neit­uðu upp­runa­lega að kann­ast við úr­gang­inn. Um­hverf­is...
Út­lendingum fækkað það sem af er ári - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Út­lendingum fækkað það sem af er ári - Vísir
Alls voru 83.420 erlendir ríkisborgarar skráðir búsettir á landinu 1. september, rétt rúmur fimmtungur íbúa landsins samkvæmt tölum Þjóðskrár.  Stofnu...
Marglyttum sem herjuðu á laxa á Reyðarfirði fækkar
📅 15.09.2026 👁️ 1
Marglyttum sem herjuðu á laxa á Reyðarfirði fækkar
Dauði meðal laxa í eldiskvíum Kaldvíkur á Reyðarfirði jókst alls um 6,5% síðan 4. september eftir að marglyttur herjuðu á kvíarnar. Í tilkynningu til ...
Dísilverð aldrei hærra í Bandaríkjunum
📅 15.09.2026 👁️ 1
Dísilverð aldrei hærra í Bandaríkjunum
Dísilverð hefur aldrei verið hærra í Bandaríkjunum en í dag. Gallonið af dísil er komið í 6,27 dollara. Gallonið er 3,79 lítrar. Ástæðan er miklar ver...
Rúss­neskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Rúss­neskt skip skaut blysum að danskri herþyrlu - Vísir
Danska utanríkisráðuneytið hefur kallað rússneska sendiherrann á sinn fund eftir að tveimur neyðarblysum var skotið frá rússneskri freigátu að þyrlu d...
Hafna við­ræðum til hægri - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Hafna við­ræðum til hægri - Vísir
Samkvæmt stjórnmálaskýrendum í Svíþjóð þarf mikið að koma til, til að hægri flokkarnir sem mynda núverandi ríkisstjórn haldi velli.  Líklegast er að M...
Þessi fengu verðlaun á EMMY - Widow´s Bay með flest
📅 15.09.2026 👁️ 1
Þessi fengu verðlaun á EMMY - Widow´s Bay með flest
EMMY-verðlaunahátíðin fór fram í 78. sinn í gær í Peacock Theater í Los Angeles í Bandaríkjunum. Hátíðin verðlaunar allt það besta í sjónvarpi. Gamanþ...
Fékk krabbameinslyf í ellefu ár – Svo kom sannleikurinn í ljós
📅 15.09.2026 👁️ 1
Fékk krabbameinslyf í ellefu ár – Svo kom sannleikurinn í ljós
Becky Jones var aðeins 21 árs þegar henni var sagt að hún væri með banvænt heilaæxli og ætti aðeins nokkra mánuði ólifaða. Næstu ellefu árin gekkst hú...
Ekki liggur fyrir hvort um árásardróna var að ræða
📅 15.09.2026 👁️ 2
Ekki liggur fyrir hvort um árásardróna var að ræða
Orrustuþotur skutu niður dróna í Kaunas-sýslu í Litáen í nótt. Herinn gaf út gula hættuviðvörun vegna drónans og lofthelginni var lokað um tíma af öry...
Ekki liggur fyrir hvort árásardróni var á ferð
📅 15.09.2026 👁️ 1
Ekki liggur fyrir hvort árásardróni var á ferð
Orrustuþotur skutu niður dróna í Kaunas-sýslu í Litáen í nótt. Herinn gaf út gula hættuviðvörun vegna drónans og lofthelginni var lokað um tíma af öry...
Dánarað­stoð: Hvar liggja mörk sjál­fræðis? - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Dánarað­stoð: Hvar liggja mörk sjál­fræðis? - Vísir
Sjálfræði (e. autonomy) hefur lengi verið hornsteinn í heilbrigðissiðfræði og er eitt af lykilhugtökum í umræðunni um dánaraðstoð. Í heilbrigðissiðfræ...
Sögu­legur tvö­faldur sigur á Emmy-verðlaunum - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Sögu­legur tvö­faldur sigur á Emmy-verðlaunum - Vísir
Widow's Bay vann 14 af 19 tilnefningum, þar á meðal fyrir bestu gamanþáttaröðina, Kate O'Flynn sem bestu leikkonu í aukahlutverki í gamanþáttaröð fyri...
Rússar skutu blysum að danskri herþyrlu
📅 15.09.2026 👁️ 1
Rússar skutu blysum að danskri herþyrlu
Áhöfn rússneskrar freigátu skaut tveimur blysum að þyrlu danska hersins sem fylgdist með ferðum skipsins. Annað blysið fór nærri þyrlunni en olli ekki...
13 særðust í árásum Húta á Sádi-Arabíu
📅 15.09.2026 👁️ 1
13 særðust í árásum Húta á Sádi-Arabíu
13 særðust í flugskeyta- og drónaárásum Húta í suðurhluta Sádí-Arabíu í nótt. Hútar hafa einnig gert árásir á olíuinnviði í Sádí-Arabíu. Yfirvöld í Sá...
Úr­skurður Hæsta­réttar bak­slag fyrir Trump - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Úr­skurður Hæsta­réttar bak­slag fyrir Trump - Vísir
Hæstiréttur gaf út úrskurð sinn í gær og segja stjórnmálaskýrendur hann vera bakslag fyrir forsetann en Hvíta húsið hefur ekki tjáð sig um niðurstöðun...
Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verk­efnum? - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Sjálfið okkar: Hvers vegna frestum við oft tveggja mínútna verk­efnum? - Vísir
Buxurnar á stólnum í herberginu detta á gólfið. Dögum saman hugsum við: Já, ég þarf að taka buxurnar upp af gólfinu og setja aftur á stólinn eða inn í...
Vakna við Star Wars-lagið alla morgna - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Vakna við Star Wars-lagið alla morgna - Vísir
Thelma stundar nám í fjármálum með áherslu á eignastýringu í BI Norwegian Business School í Osló. Hún og Sverrir hafa búið úti í eitt ár og hún ræddi ...
Von á vaxandi suð­austan­átt og rigningu - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Von á vaxandi suð­austan­átt og rigningu - Vísir
Á vef Veðurstofunnar segir að er líði á daginn megi búast við skúraveðri á Suðausturlandi. Í kvöld er síðan von á lægð með vaxandi suðaustanátt og rig...
160 people rescued from two boats northeast of Lanzarote
📅 15.09.2026 👁️ 1
160 people rescued from two boats northeast of Lanzarote
Almost 160 people were rescued from two boats northeast of Lanzarote yesterday after a Maritime Rescue operation unexpectedly developed into a second ...
Víðast bjartviðri í dag en hvassviðri og rigning á morgun
📅 15.09.2026 👁️ 1
Víðast bjartviðri í dag en hvassviðri og rigning á morgun
Útlit er fyrir rólegheitaveður víðast hvar í dag en það bætir í vind og fer að rigna seint í kvöld og í nótt. Sérstaklega á eftir að hvessa suðvestant...
Fimm mínútna við­bót við að­gerð geti dregið úr á­hættu á krabba­meini - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Fimm mínútna við­bót við að­gerð geti dregið úr á­hættu á krabba­meini - Vísir
Fjallað var nýlega um slíkar aðgerðir í grein á bandaríska miðlinum New York Times þar sem kom fram að konur sem láta fjarlægja eggjaleiðara sína, sem...
Þingmenn eru ekki einu fastagestirnir sem birtast við upphaf þings
📅 15.09.2026 👁️ 1
Þingmenn eru ekki einu fastagestirnir sem birtast við upphaf þings
Það voru ekki aðeins þingmenn sem sneru aftur þegar Alþingi var sett í síðustu viku. Þá sneri líka aftur fjöldi lagafrumvarpa og þingsályktunartillagn...
Gran Canaria wildfire stabilised after residents evacuated from their homes
📅 15.09.2026 👁️ 1
Gran Canaria wildfire stabilised after residents evacuated from their homes
The wildfire that broke out yesterday (Monday) near Cazadores in Telde, Gran Canaria, has been stabilised following a major firefighting operation inv...
Motorcyclist injured in collision with car on TF-1 in Costa Adeje
📅 15.09.2026 👁️ 2
Motorcyclist injured in collision with car on TF-1 in Costa Adeje
A 30-year-old man was injured yesterday afternoon after the motorcycle he was riding was involved in a collision with a car on the TF-1 motorway in Ad...
Mun Tækni­skólinn rísa í Úlfarsárdal? - Vísir
📅 15.09.2026 👁️ 1
Mun Tækni­skólinn rísa í Úlfarsárdal? - Vísir
Í sameiginlegri yfirlýsingu Hafnarfjarðar og Tækniskólans var greint frá því að samkomulag aðilanna um uppbyggingu nýs húsnæðis við Flensborgarhöfn væ...
State pension likely to rise by £488 a year in April
📅 15.09.2026 👁️ 1
State pension likely to rise by £488 a year in April
The triple lock has come under scrutiny as the number of pensioners rises making the policy more expensive.
Heat alert takes effect today as temperatures of 37°C forecast in the Canary Islands
📅 15.09.2026 👁️ 1
Heat alert takes effect today as temperatures of 37°C forecast in the Canary Islands
The Canary Islands are facing another day of intense heat today, Tuesday 15th September, with temperatures forecast to reach or exceed 37°C in some ar...
Leynihópur Trumps átti að skipuleggja valdatöku á Grænlandi
📅 15.09.2026 👁️ 2
Leynihópur Trumps átti að skipuleggja valdatöku á Grænlandi
Hugmyndin um yfirráð yfir Grænlandi er frá Ronald Lauder, gömlum skólabróður Trumps úr viðskiptafræði í háskóla. Og í fyrstu töldu þetta allir grín.Sá...
Superstars and broken records: 2026 Emmy highlights
📅 15.09.2026 👁️ 1
Superstars and broken records: 2026 Emmy highlights
The 78th Primetime Emmy Awards were hosted by Law & Order star Mariska Hargitay at the Peacock Theatre in Los Angeles.
Ukraine's postal workers deliver lifeline under Russian fire
📅 15.09.2026 👁️ 1
Ukraine's postal workers deliver lifeline under Russian fire
The state post service delivers pensions, medicine and letters to people just miles from the front.
Trump says AI safety fears a 'hoax' as he rejects calls for greater safeguards
📅 15.09.2026 👁️ 2
Trump says AI safety fears a 'hoax' as he rejects calls for greater safeguards
The US president's comments come after Anthropic co-founder Jack Clark told the BBC an AI "kill switch" may need to be mandatory.
Emmy Awards: Welsh actor Matthew Rhys makes history with double win
📅 15.09.2026 👁️ 2
Emmy Awards: Welsh actor Matthew Rhys makes history with double win
He becomes the first person to win two lead acting prizes in one night at the prestigious TV ceremony.
Watch: Selena Gomez, Zendaya and other stars light up Emmys red carpet
📅 15.09.2026 👁️ 2
Watch: Selena Gomez, Zendaya and other stars light up Emmys red carpet
Celebrities walked a blue version of the traditional red carpet ahead of the primetime show honouring the best shows in US television.
Lucy Letby: Thirlwall inquiry report into nurse's crimes due to be published
📅 15.09.2026 👁️ 3
Lucy Letby: Thirlwall inquiry report into nurse's crimes due to be published
The Thirlwall Inquiry has been investigating how concerns about killer nurse Letby were handled - and whether any babies might have lived if action wa...
US has deployed a space weapon, air force secretary says
📅 15.09.2026 👁️ 2
US has deployed a space weapon, air force secretary says
US Secretary of the Air Force says the space weapon is necessary to safeguard US forces against hostile enemy action.
US confirms for first time it has deployed space weapons
📅 15.09.2026 👁️ 2
US confirms for first time it has deployed space weapons
The US Air Force Secretary says the weapons are necessary to defend the country against enemy action.
Blaðamaður í útlegð handtekinn af ICE-liðum
📅 15.09.2026 👁️ 4
Blaðamaður í útlegð handtekinn af ICE-liðum
Blaðamaður frá Níkaragva sem hefur verið í útlegð í Bandaríkjunum var handtekinn af ICE-liðum í Bandaríkjunum í gær. Ekki er vitað hvar hann er í hald...
UK set to turn cooler as unsettled weather continues
📅 15.09.2026 👁️ 3
UK set to turn cooler as unsettled weather continues
As temperatures drop through the week and it starts to feel more autumnal, is it now time to put the summer clothes away?
Orrustuþotur skutu niður óþekktan dróna
📅 14.09.2026 👁️ 3
Orrustuþotur skutu niður óþekktan dróna
Orrustuþotur skutu niður dróna í Kaunas-sýslu í Litáen í kvöld.Litáíska ríkisútvarpið greinir frá.Dróninn flaug inn í lofthelgi Litáens skömmu eftir m...
Row over Reform's mega donations has mileage in it yet
📅 14.09.2026 👁️ 3
Row over Reform's mega donations has mileage in it yet
The £72m heading towards Reform UK's coffers is transforming the debate at Westminster about politics and money.
Afnema takmörk á útblæstri kolaorkuvera
📅 14.09.2026 👁️ 3
Afnema takmörk á útblæstri kolaorkuvera
Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (Environmental Protection Agency, EPA) ætlar að afnema takmarkanir á útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá kola- og gasor...
Afnema takmarkanir á útblæstri kolaorkuvera
📅 14.09.2026 👁️ 2
Afnema takmarkanir á útblæstri kolaorkuvera
Umhverfisstofnun Bandaríkjanna (Environmental Protection Agency, EPA) ætlar að afnema takmarkanir á útblæstri gróðurhúsalofttegunda frá kola- og gasor...
Nato jets shoot down drone that flew into Lithuanian airspace
📅 14.09.2026 👁️ 3
Nato jets shoot down drone that flew into Lithuanian airspace
It is currently unknown where the drone came from, officials said.
Snúist um dóm­greind frekar en gervi­greind - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 3
Snúist um dóm­greind frekar en gervi­greind - Vísir
„Það er náttúrulega á okkar ábyrgð að við eigum ekkert að sýna börnunum eitthvað sem er ekki í lagi. Þú getur ekki rétt börnum eitthvað fjöldaframleit...
Aukafundi SÁÁ lokið – alvarleg staða samtakanna tekin fyrir
📅 14.09.2026 👁️ 3
Aukafundi SÁÁ lokið – alvarleg staða samtakanna tekin fyrir
Aðalstjórn SÁÁ kom saman til auka-aðalfundar síðdegis til að ræða alvarlega stöðu innan samtakanna. Fundinum lauk klukkan níu í kvöld og hafði hann þá...
Emmys 2026 red carpet in pictures: Zendaya, Colman Domingo and Selena Gomez lead stars at awards ceremony
📅 14.09.2026 👁️ 3
Emmys 2026 red carpet in pictures: Zendaya, Colman Domingo and Selena Gomez lead stars at awards ceremony
The biggest night in the US TV calendar is taking place, and stars are on the Emmy Awards red carpet.
Engin áform um að draga umsóknina formlega tilbaka
📅 14.09.2026 👁️ 3
Engin áform um að draga umsóknina formlega tilbaka
Forsætisráðherra segir ríkisstjórnina ekki hafa nein áform um að draga formlega til baka aðildarumsókn Íslands að Evrópusambandinu. Staðan nú sé nákvæ...