Áhöfn rússneskrar freigátu skaut tveimur blysum að þyrlu danska hersins sem fylgdist með ferðum skipsins. Annað blysið fór nærri þyrlunni en olli ekki skaða.
Freigátan var á siglingu á alþjóðlegum siglingaleiðum milli Sjálands í Danmörku og Þýskalands, suður af Gedser.
„Blysum var skotið að einni af Fennec-þyrlum flughersins þegar hún sinnti reglulegu eftirliti og myndaði rússneska freigátu sem var á alþjóðlegu hafsvæði út af Geser,“ sagði danski herinn í tilkynningu.
Blysunum var skotið að þyrlunni seint í gær.
Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur, brást við tíðindunum í dag og sagði að þetta væri hluti af mynstri sem hefði teiknast upp um alla Evrópu. Rússar yrðu sífellt árásargjarnari og öruggari með sig og hertu á fjölþáttahernaði gegn Evrópu. Hún sagði að Rússar vildu ögra og reyna á aðildarríki Atlantshafsbandalagsins, svarið þeirra ríkja yrði að þétta raðir sínar.
Lars Løkke Rasmussen, utanríkisráðherra Danmerkur, sagði að atvikið væri með öllu óásættanlegt. Hann sagði Rússa hafa stefnt mannslífum í hættu.
Rasmussen kallaði rússneska sendiherrann á sinn fund og Jeppe Bruus varnarmálaráðherra boðaði fulltrúa dönsku flokkanna á sinn fund til að ræða stöðuna.