Blaðamaður frá Níkaragva sem hefur verið í útlegð í Bandaríkjunum var handtekinn af ICE-liðum í Bandaríkjunum í gær. Ekki er vitað hvar hann er í haldi.
Blaðamaðurinn, Luis Galeano, flúði heimaland sitt Níkaragva árið 2018. Hann var gagnrýninn á ríkisstjórn landsins og starfaði áfram við blaðamennsku eftir að hann kom til Bandaríkjanna. Galeano, auk 93 stjórnarandstæðinga, var sviptur ríkisborgararétti sínum árið 2023 af ríkisstjórn Níkaragva fyrir að hafa gagnrýnt yfirvöld. Yfirvöld á Spáni veittu honum síðar ríkisborgararétt.
Galeano var í vinnu sem sendill hjá Uber og beið niðurstöðu hælisumsóknar sinnar í Bandaríkjunum þegar ICE-liðar handtóku hann í gær. Hann á yfir höfði sér að vera sendur úr landi til Níkaragva.
Yfir milljón Níkaragvabúa hefur flúið land vegna einræðisstjórnarinnar
Bandarísk yfirvöld hafa skilgreint ríkisstjórn Níkaragva sem einræðisstjórn. Donald Trump Bandaríkjaforseti hefur þó heitið því að vísa úr landi milljónum innflytjenda sem ekki hafa dvalarleyfi í Bandaríkjunum, þar með talið Níkaragvabúum.
Forseti Níkaragva, Daniel Ortega, hefur stjórnað Níkaragva með harðri hendi síðan árið 2006 ásamt vara- eða samforsetanum Rosario Murillo, sem jafnframt er eiginkona hans. Ortega hefur í valdatíð sinni náð fullri stjórn á dómstólum, hernum og lögreglunni.
Um ein milljón Níkaragvabúa hefur farið í útlegð til Costa Rica, Bandaríkjanna og Spánar á síðastliðnum átta árum eða allt frá því að mótmæli gegn stjórnvöldum voru brotin á bak aftur af mikilli hörku árið 2018. Mörg hundruð voru drepin í þeim aðgerðum.