Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill „hlaupa hratt“ og finna Tækniskólanum lóð í Reykjavík. Í ljós hefur komið að skólinn muni ekki rísa við Flensborgarhöfn í Hafnarfirði eins og til hefur staðið í nokkur ár.
„Ég hafði nú heyrt af þessu einhverju fyrr og fór þá auðvitað strax af stað vegna þess að ég var mjög gagnrýnin á það á sínum tíma þegar að Reykjavíkurborg hljóp ekki nægilega hratt og tryggði að nýr Tækniskóli myndi rísa hér í höfuðborginni,“ sagði Hildur í Kastljósi í kvöld.
Hún segist hafa fundið lóð í Höllum í Úlfarsárdal sem hún telji að geti hentað skólanum, sem geti orðið „flaggskip iðn- og tæknimenntunar“ á Íslandi.
„Ég vil nýjan Tækniskóla í Reykjavík. Mér finnst eðlilegt að hann rísi hér í höfuðborginni. Það væri gríðarlega öflugt fyrir efri byggðir að fá svona stóran og öflugan skóla og vinnustað þangað.“
Hlusta má á viðtalið við Hildi í heild sinni í spilaranum hér að neðan.