Hildur Sverrisdóttir, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, segir „meiri brag á því“ að Alþingi sjái um að afgreiða frumvarp um bókun 35, frekar en að láta málið fara fyrir EFTA dómstól.
Bókun 35 er meðal þess sem rætt var í Silfrinu í kvöld.
Hildur segir að málið snúist um EES-samninginn, sem mikilvægt sé að passa upp á.
„Ég held að Ísland sökkvi ekki í sæ þó að þetta frumvarp nái ekki fram að ganga og við bíðum dómsniðurstöðu. Ég held að það verði þá bara einhver niðurstaða sem muni þá liggja fyrir. Ég held að Ísland muni heldur ekki sökkva í sæ ef að þessi niðurstaða og þessi lending í málinu verður ofan á,“ sagði Hildur.
„Mér persónulega finnst meiri bragur á því að við sjálf tökum þær ákvarðanir sem að okkur snúa í stað þess að bíða æðsta dóms einhvers staðar annars staðar.“
Hún muni samþykkja frumvarpið verði það lagt óbreytt fyrir þingið.
Flokkur fólksins styður bókun 35
Sigurjón Þórðarson, þingmaður Flokks fólksins, segir málið í ríkisstjórnarsáttmálanum og að flokkurinn styðji það.
„Þessi bókun var samþykkt með EES-samningnum og síðan kom það í ljós að hún var ekki nægilega lögfest að mati dómskerfisins hér þannig að þá bíður það okkar verk að gera það með fullnægjandi hætti, það er að segja við viljum halda EES-samninginn.“
Hann gefur lítið fyrir að það séu dramatísk sinnaskipti hjá flokknum að styðja málið eftir að hafa verið harðlega andsnúinn því áður.
„Það má eflaust kalla þetta einhvern drama. Menn fóru rækilega yfir innihald bókunarinnar og hverjir voru valkostirnir, þannig að þetta er okkar afstaða,“ segir Sigurjón.
Horfa má Silfrið í heild sinni í spilaranum hér að neðan.