Atkvæðagreiðsla félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands og lauk í hádeginu. Niðurstaðan var afgerandi, verkfallsboðun var samþykkt með áttatíu og átta komma þremur prósentum greiddra atkvæða.
Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins er ekki bjartsýnn á að samningar náist milli flugvirkja og Icelandair, enda sé félagið ekki í neinni stöðu til að mæta kröfum flugvirkja.
„Þetta er mjög þröng staða vegna þess að það ber mikið í milli samningsaðilana og mér líst bara ekkert allt of vel á stöðuna.“
Kröfurnar langt umfram svigrúm félagsins
Ótímabundin verkföll flugvirkja hjá Icelandair hefjast á miðnætti 23. september. Bjarni segir kröfur flugvirkja langt umfram það svigrúm sem Icelandair hefur. Í tilkynningu Icelandair segir að félagið hafi lagt fram sanngjarnt og ábyrgt samningstilboð. Bjarni segist ekki eiga von á að frekari samningar verði lagðir fram.
„Ég held að Icelandair muni halda sig við það tilboð sem er á borðinu og samrýmist öðru því sem samið hefur verið um.“
Nái Icelandair ekki að gera samning við Flugvirkjafélag Íslands áður en verkfall skellur á hefur það veruleg áhrif á flugáætlun Icelandair. Félagið segist nú ætla að meta möguleg áhrif verkfalls á farþega.
Óskar Einarsson, formaður Flugvirkjafélags Íslands og samninganefndar félagsins, segir ljóst að verkfall komi til með að hafa áhrif á starfsemi Icelandair, endanlegt markmið sé að fá Icelandair að samningaborðinu.
„Við erum ekki að dagsetja neitt eða telja eitthvað í dögum, tilgangurinn er að ná kjarasamning og við erum tilbúin að setjast að samningaborðinu um leið og kallið berst.“