Töluverður eldur logar í Toppstöðinni í Elliðarárdal. Þetta segir Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar á svæðinu eru hvattir til þess að loka gluggum og halda sig fjarri reykjarslæðunni.
Toppstöðin er yfirgefið verksmiðjuhúsnæði, á vef Reykjavíkurborgar segir að húsið sé rúmlega 6.000 fermetrar. Húsið er illa farið og einangrað með asbesti.
Fréttin verður uppfærð.