Forsvarsmenn körfuboltafélagsins Aþenu í efra Breiðholti, með Brynjar Karl Sigurðsson í broddi fylkingar, hafa í talsverðan tíma gagnrýnt framgöngu Reykjavíkurborgar gagnvart félaginu. Hefur Brynjar bæði deilt á síðasta og núverandi meirihluta í borgarstjórn og þá ekki síst fyrir að gera ekki rektsrarsamning við félagið. Tillaga um að slíkur samningur yrði gerður við félagið var raunar borin upp á fundi íþrótta- og útilífsráðs á föstudag.
Aþena fékk stuðning úr óvæntri átt en bíður enn eftir samningi