Ung kona frá ónefndu landi sem hugðist stunda nám á Íslandi leigði sér herbergi í miðbæ Reykjavíkur. Henni leist hins vegar ekkert á ástand herbergisins og aðstæður og aðbúnað í húsnæðinu sem herbergið er í. Leist henni það lítið á blikuna að hún óttaðist um öryggi sitt. Fór það svo að hún flutti út eftir aðeins nokkurra daga búsetu og krafðist þess að fá endurgreidda leigu. Kærunefnd húsamála hefur hafnað þeirri kröfu en fallist á að unga konan fái hluta tryggingarinnar endurgreiddan.Leigusali konunnar var ónefnt fyrirtæki.
Námsmaður hræddist nýja heimilið í miðbænum og lét sig hverfa