Rúss­neskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps - Vísir

Rúss­neskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps - Vísir

Rúss­neskur auðjöfur borgaði fyrir draumabrúðkaup Trumps - Vísir

Skömmu fyrir brúðkaupið var auðjöfurinn í opinberri sendinefnd Vladimírs Pútín til Kína og hafði forsetinn þar áður veitt honum heiðursorðu.

Samkvæmt rannsókn rannsóknarmiðilsins ProPublica, sem byggir á gögnum og viðtölum við brúðkaupsgesti, varði Kremlev hundruðum þúsunda dala í brúðkaupið. Hann leigði meðal annars aðra eyjuna sem brúðkaupið fór fram á, borgaði fyrir stóra flugeldasýningu og teymi hans hjálpaði við að skipuleggja viðburðinn.

Á slóðum James Bond, fyrir tólf milljónir á dag

Brúðkaupsveislan fór fram í maí og stóð hún yfir í þrjá daga, á tveimur mismunandi einkaeyjum. Stærðarinnar kaka var flutt frá Flórída, dansarar skemmtu gestunum sem voru um fimmtíu talsins og voru fluttir í glæsihýsi þeirra með sjóflugvélum, svo eitthvað sé nefnt.

Athöfnin sjálf fór fram á eyju sem hefur meðal annars birst í kvikmyndunum Pirates of the Caribbean og James Bond-myndinni Casino Royale. Veisluhöldin eftir athöfnina fóru svo fram á annarri eyju sem hægt er að leigja fyrir um hundrað þúsund dali (rúmar tólf milljónir króna) á dag.

Kremlev greiddi þá leigu og borgaði fyrir flugeldasýningu sem kostar um sjötíu þúsund dali (8,5 milljónir króna).

Í færslu sem hún birti á Instagram sagði Bettina Trump að viðburðurinn hefði verið allt sem þau hjónakorn hefðu óskað sér og rúmlega það.

Í annarri færslu sagði hún að athöfnin hefði verið einföld og falleg.

Donald Trump, faðir Trumps yngri og forseti Bandaríkjanna, sótti ekki brúðkaupið. Hann sagðist vera upptekinn. Hann sagði einnig við blaðamenn að sonur hans vildi bara hafa sína nánustu á staðnum.

Eins og áður segir voru um fimmtíu manns á gestalistanum fyrir brúðkaupsveisluna. Eric Trump, yngri bróðir Donalds yngri, var þeirra á meðal og Ivanka Trump og Jared Kushner voru þar einnig. Í hópnum voru einnig nokkrir menn sem viðmælendur ProPublica segja að hafi vakið furðu annarra.

Þeir hafi litla sem enga ensku talað og haldið sig saman til hliðar við veisluhöldin og talað rússnesku.

„Þetta var mjög þétt, bara, bara nánustu vinir,“ sagði Trump yngri um veisluna fyrr á árinu. Hann sagðist hafa viljað halda hópnum mjög smáum.

Var með Pútín í Kína skömmu áður

Þjóðaröryggissérfræðingar sem blaðamenn ræddu við segja málið alvarlegt. Það veki mikilvægar spurningar um af hverju Kremlev hafi varið svo miklum peningum í brúðkaupsveislu sonar forseta Bandaríkjanna.

„Ef ég borga fyrir brúðkaupið þitt, á einhverjum tímapunkti, munt þú skulda mér eitthvað,“ sagði Frank Montoya, einn áðurnefndra sérfræðinga sem starfaði á árum áður hjá Alríkislögreglu Bandaríkjanna við að elta uppi njósnara og útsendara þeirra.

Skömmu fyrir brúðkaupsveisluna var Kremlev í Kína. Þá var hann hluti af opinberri sendinefnd Vladimírs Pútín, forseta Rússlands. Mánuði áður hafði Pútín heiðrað auðjöfurinn sérstaklega með orðuveitingu.

Samkvæmt ProPublica er útlit fyrir að Trump yngri og Kremlev hafi kynnst nýlega.

Ráðamenn í Rússlandi hafa lengi verið sakaðir um að reyna að komast í mjúkinn hjá Trump og ríkisstjórn hans. Þá hafa Rússar varið fúlgum fjár í að hafa áhrif á kosningar í Bandaríkjunum en þá sérstaklega fyrir kosningarnar 2016, þegar Trump vann fyrst.

Í aðdraganda þeirra kosninga vakti mikla athygli að Trump yngri og Kushner funduðu með rússneskum lögmanni sem tengdist yfirvöldum í Kreml.

Í pósti sem Trump fékk í aðdraganda fundarins kom fram að um væri að ræða lið í áætlun ríkisstjórnar Rússlands um að styðja við bakið á Trump fyrir kosningarnar.

Trump yngri svaraði um hæl.

„Ég elska það.“

„Persónulegur vinur“

Í yfirlýsingu til ProPublica neitaði talsmaður Trumps yngri ekki því að auðjöfurinn rússneski hefði greitt fyrir brúðkaupsveisluna, að hluta til. Hann sagði „Umar“ vera persónulegan vin Trumps, að þeir hefðu kynnst gegnum sameiginlegan vin í veiðisamfélaginu og náð saman um ást þeirra á hnefaleikum og náttúrunni.

Talsmaðurinn sagði að Trump yngri og Kremlev ættu ekki í viðskiptasambandi.

Fyrir hönd Erics Trump, annars sonar forsetans, fengust þau svör að hann hefði ekki hugmynd um það hver Kremlev væri og sagðist Eric aldrei hafa heyrt hann nefndan á nafn.

Talsmaður auðjöfursins sagði að Kremlev og Trump yngri hefðu kynnst fyrir „nokkrum árum“ og væru vinir. Þá kom fram í yfirlýsingu frá auðjöfrinum að þeir hefðu aldrei talað um stjórnmál.

Þá kom fram að brúðkaupið hefði ekki kostað hnefaleikasamtökin IBA en talsmaðurinn tjáði sig ekki um greiðslurnar frá áðurnefndu félagi í Sameinuðu arabísku furstadæmunum.

Að endingu sagði í yfirlýsingunni frá Kremlev að þegar hann fór með Pútín til Kína, hafi hann ekki verið hluti af „formlegu sendinefndinni“.

Kushner, mágur Trumps sem sótti einnig brúðkaupsveisluna, svaraði ekki fyrirspurnum blaðamanna ProPublica. Hann hefur fyrir hönd Trumps eldri tekið að sér stórt hlutverk í viðræðum milli Rússa og Úkraínumanna um mögulegan frið.

Vladimír Pútin, forseti Rússlands, veitti Umar Kremlev heiðursorðu í apríl. Skömmu síðar fór auðjöfurinn með forsetanum í opinbera heimsókn til Kína. Í maí borgaði hann svo fyrir stóran hluta brúðskaupsveislu sonar forseta Bandaríkjanna.Getty

Smáglæpamaður að auðjöfri

Kremlev leiðir umdeild hnefaleikasamtök (IBA) sem eru fjármögnuð af rússneska ríkisfyrirtækinu Gazprom. Samkvæmt ProPublica notaði hann félag sem er skráð í Sameinuðu arabísku furstadæmunum og reglulega notað í fjármálagjörningum IBA til að greiða fyrir sinn hluta í brúðkaupskostnaðinum.

Kremlev var mikið á milli tannanna á fólki eftir Ólympíuleikana 2024 vegna fjaðrafoksins kringum hnefaleikakonuna Imane Khelif, frá Alsír. Kremlev staðhæfði þá að Khelif hefði fallið á einhvers konar kynjaprófi.

Kremlev var á sínum yngri árum dæmdur fyrir líkamsárás og fjárkúgun. Árið 2010 breytti hann nafni sínu úr Umar Lutfulloyev í Umar Kremlev og gekk til liðs við frægt rússneskt mótorhjólagengi sem nýtur stuðnings yfirvalda í Rússlandi. Á endanum tók hann að sér leiðtogastöðu innan samtakanna og kynntist þá Alexei Rubezhnoi, sem leiðir nú lífvarðasveitir Pútíns.

Í gegnum tengingar sínar við Pútín og aðra ráðamenn hefur Kremlev safnað sér miklum auðæfum.

Það var svo árið 2020 sem hann tók yfir stjórn IBA en fyrrverandi embættismenn þar segja að hann hafi klárlega tekið við skipunum frá Kreml. Hann hafi beitt samtökunum sem pólitísku tóli fyrir Rússa.

Hann er einnig viðloðinn samtök sem ætlað er að ýta undir gott matarræði og hreyfingu barna. Yfirvöld í Úkraínu segja þessi samtök hafa komið að því að ræna úkraínskum börnum og flytja þau til Rússlands.

Eftir innrásina í Úkraínu er hann sagður hafa óttast verulega að verða beittur refsiaðgerðum af Bandaríkjunum. Það hefur þó ekki gerst.

Í september í fyrra fór Trump yngri til Tyrklands á vegum IBA, þar sem hann tók þátt í umræðum um hnefaleika.

#auðjöfur #borgaði #draumabrúðkaup #fyrir #rússneskur

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262934528d/russneskur-audjofur-borgadi-fyrir-draumabrudkaup-trumps

📰 Aðrar fréttir

Hjartaknúsarinn og Íslandsvinurinn nær óþekkjanlegur í dag
📅 14.09.2026 👁️ 0
Hjartaknúsarinn og Íslandsvinurinn nær óþekkjanlegur í dag
Hann var eitt sinn draumur allra uppreisnargjarnra unglingsstúlkna en í dag er hann nánast óþekkjanlegur. Leikarinn Judd Nelson vakti athygli nærstadd...
Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Finnar ganga til liðs við kjarnorkuvopnaverkefni Frakka - Vísir
Þróun verkefnisins er enn á byrjunarstigi samkvæmt finnska ríkisútvarpinu en markmiðið er að styðja við öryggi Evrópu. Frakkar eru eina ríkið innan Ev...
Fannst eftir rúma tveggja sólar­hringa leit: „Hún er eitt­hvað ó­venju­leg þessi hryssa“ - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Fannst eftir rúma tveggja sólar­hringa leit: „Hún er eitt­hvað ó­venju­leg þessi hryssa“ - Vísir
Leit að hinni fjögurra vetra gömlu meri Vordísi frá bænum Árbakka í Rangárþingi ytra hafði staðið yfir í rúma tvo sólarhringa eftir að hún fór úr hólf...
Kenna þarf gervigreindinni að vera ekki vond
📅 14.09.2026 👁️ 0
Kenna þarf gervigreindinni að vera ekki vond
Í greininni kallaði Amodei eftir því að hægt yrði á þróun gervigreindar og nauðsynlegt væri að fyrirtæki og stjórnvöld kæmu sér saman um ákveðnar takm...
Eldur barst í lítinn hluta asbestklæðningar Toppstöðvarinnar
📅 14.09.2026 👁️ 0
Eldur barst í lítinn hluta asbestklæðningar Toppstöðvarinnar
Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum á sjötta tímanum í kvöld. Það tók rúman klukkutíma að ráða að niðurlögum eldsins.Toppstöðin, sem er göm...
Þyrlurnar sinntu út­kalli úti á ballar­hafi annan daginn í röð - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 0
Þyrlurnar sinntu út­kalli úti á ballar­hafi annan daginn í röð - Vísir
Þetta staðfestir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar. Gæslunni hafi borist útkall frá skipstjóra norska skipsins rétt fyrir hádeg...
Ekki sé hægt að mæta launakröfum flugvirkja
📅 14.09.2026 👁️ 0
Ekki sé hægt að mæta launakröfum flugvirkja
Atkvæðagreiðsla félagsmanna Flugvirkjafélags Íslands og lauk í hádeginu. Niðurstaðan var afgerandi, verkfallsboðun var samþykkt með áttatíu og átta ko...
Vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal
📅 14.09.2026 👁️ 0
Vill bjóða Tækniskólanum lóð í Úlfarsárdal
Hildur Björnsdóttir borgarstjóri vill „hlaupa hratt“ og finna Tækniskólanum lóð í Reykjavík. Í ljós hefur komið að skólinn muni ekki rísa við Flensbor...
Harry and Meghan's security to be reviewed after return to UK
📅 14.09.2026 👁️ 1
Harry and Meghan's security to be reviewed after return to UK
The level of police protection they need and potential dangers they face are to be reviewed.
Harry and Meghan to have security review and children change school
📅 14.09.2026 👁️ 0
Harry and Meghan to have security review and children change school
The level of police protection they need and potential dangers they face are to be reviewed.
Tvöfalt fleiri drengir í 10. bekk reykja nú en í fyrra
📅 14.09.2026 👁️ 1
Tvöfalt fleiri drengir í 10. bekk reykja nú en í fyrra
Sígarettureykingar meðal ungmenna drógust verulega saman með hertum reglum og öflugu forvarnarstarfi undanfarna áratugi. Nú, þegar rafsígarettur, veip...
Leikkonan segir eiginmann sinn hafa sagt Ozempic stríð á hendur og haft betur - „Þetta er svo furðulegt“
📅 14.09.2026 👁️ 1
Leikkonan segir eiginmann sinn hafa sagt Ozempic stríð á hendur og haft betur - „Þetta er svo furðulegt“
Það mætti halda að allir og amma þeirra séu komnir á Ozempic, sykursýkislyf sem nýtur mikilla vinsælda í baráttunni við aukakílóin. Lyfið er eins selt...
Hvað veistu um… Titanic? - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hvað veistu um… Titanic? - Vísir
Árið 1997 kom út kvikmyndin Titanic í leikstjórn James Cameron þar sem sagði frá ástarsögu þeirra Jack og Rose um borð í skipinu á sama tíma og slysið...
Húðdrottning bauð í gellugusu - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Húðdrottning bauð í gellugusu - Vísir
Tilefnið var nýtt rakakrem og var viðburðurinn haldinn í Litla Saunahúsinu á Kársnesi. Rakakremið er önnur varan í vörulínunni Alda ['al:ta], sem heit...
Námsmaður hræddist nýja heimilið í miðbænum og lét sig hverfa
📅 14.09.2026 👁️ 1
Námsmaður hræddist nýja heimilið í miðbænum og lét sig hverfa
Ung kona frá ónefndu landi sem hugðist stunda nám á Íslandi leigði sér herbergi í miðbæ Reykjavíkur. Henni leist hins vegar ekkert á ástand herbergisi...
Nákvæmari loftmyndir en áður af öllum þéttbýlisstöðum landsins
📅 14.09.2026 👁️ 1
Nákvæmari loftmyndir en áður af öllum þéttbýlisstöðum landsins
Í sumar voru teknar nýjar háupplausnarmyndir af öllum þéttbýlisstöðum landsins. Þetta er í fyrsta skipti sem það er gert. Vel gekk að taka loftmyndir ...
Schools closed on Tuesday due to extreme heat in Fuerteventura and parts of Gran Canaria
📅 14.09.2026 👁️ 1
Schools closed on Tuesday due to extreme heat in Fuerteventura and parts of Gran Canaria
Schools across the whole of Fuerteventura and nine municipalities in Gran Canaria will be closed for face-to-face classes tomorrow, Tuesday 15th Septe...
Macklemore dropped from Ed Sheeran tour after 'free Palestine' speech
📅 14.09.2026 👁️ 1
Macklemore dropped from Ed Sheeran tour after 'free Palestine' speech
The US rapper was condemned by Jewish groups after making comments criticising Israel.
Eldur logar í Toppstöðinni: Fólk beðið um að loka gluggum og halda sig inni
📅 14.09.2026 👁️ 1
Eldur logar í Toppstöðinni: Fólk beðið um að loka gluggum og halda sig inni
Guðmundur Bergkvist tökumaður RÚV var á vettvangi. Toppstöðin var seld í vetur, kaupsamningur Toppstöðvarinnar ehf. við Reykjavíkurborg um kaup á Topp...
Telja sig hafa ráðið niðurlögum eldsins í Toppstöðinni
📅 14.09.2026 👁️ 0
Telja sig hafa ráðið niðurlögum eldsins í Toppstöðinni
Líkt og áður hefur komið fram er Toppstöðin einangruð með asbesti. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er fólk hvatt til að loka...
Allt tiltækt slökkvilið á vettvangi í Elliðaárdal
📅 14.09.2026 👁️ 1
Allt tiltækt slökkvilið á vettvangi í Elliðaárdal
Kviknað hefur í Toppstöðinni í Elliðaárdal og má sjá mikinn reyk stíga til himins.Mbl.is greinir frá að allt tiltækt lið Slökkviliðsins á höfuðborgars...
AI 'kill switch' may need to be mandatory, Anthropic co-founder says
📅 14.09.2026 👁️ 1
AI 'kill switch' may need to be mandatory, Anthropic co-founder says
Jack Clark says "most labs have different ways of being able to pull the plug", but says this may need to be a requirement.
Töluverður eldur í Toppstöðinni
📅 14.09.2026 👁️ 1
Töluverður eldur í Toppstöðinni
Töluverður eldur logar í Toppstöðinni í Elliðarárdal. Þetta segir Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu. Íbúar á ...
Eldur í Elliðarárdal - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 2
Eldur í Elliðarárdal - Vísir
Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins staðfestir þetta í samtali við Vísi. Töluverður reykur er á svæðinu og þykkur reykjarmökkur liggur yfi...
Eldur í Elliða­ár­dal - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Eldur í Elliða­ár­dal - Vísir
Varðstjóri hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins staðfestir þetta í samtali við Vísi. Töluverður reykur er á svæðinu og þykkur reykjarmökkur liggur yfi...
Dómur um ó­lög­mæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 2
Dómur um ó­lög­mæt bílastæðagjöld gæti verið fordæmisgefandi - Vísir
„Um er að ræða stærstu hópmálsókn í sögu Noregs á sviði neytendaréttar. Dómurinn markar því tímamót í baráttu neytenda gegn starfsháttum bílastæðafyri...
Játaði að hafa byrlað einkonu sinni og nauðgað henni
📅 14.09.2026 👁️ 2
Játaði að hafa byrlað einkonu sinni og nauðgað henni
Breskur maður á sjötugsaldri hefur játað að hafa byrlað eiginkonu sinni ólyfjan og nauðgað henni í yfir tvo áratugi. Maðurinn játaði á sig sextíu brot...
Játaði að hafa byrlað eiginkonu sinni og nauðgað henni

MaggaTaka safnar fyrir útgáfu ljósmyndabókar með styrktartónleikum
📅 14.09.2026 👁️ 1
MaggaTaka safnar fyrir útgáfu ljósmyndabókar með styrktartónleikum
Ljósmyndarinn Magnús Sigurbjörnsson, betur þekktur sem MaggaTaka, undirbýr nú útgáfu fyrstu ljósmyndabókar sinnar, MaggaTaka, sem safnar saman fimm ár...
Daði Már Kristófersson: Þjóðin fékk að upplifa stöðugleika og kallar nú eftir honum aftur
📅 14.09.2026 👁️ 2
Daði Már Kristófersson: Þjóðin fékk að upplifa stöðugleika og kallar nú eftir honum aftur
Við stöndum frammi fyrir skýrara kalli eftir stöðugleika en áður. Það er vegna þess að þjóðin fékk að upplifa langt tímabil stöðugleika og áttar sig á...
Hollendingur nappaður með stórfé
📅 14.09.2026 👁️ 1
Hollendingur nappaður með stórfé
Hollenskur karlmaður á fertugsaldri hefur verið ákærður fyrir peningaþvætti en háar upphæðir, í reiðufé, fundust í fórum hans í Flugstöð Leifs Eiríkss...
Sam­komu­lag Tækniskólans og Hafnar­fjarðar út um þúfur - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Sam­komu­lag Tækniskólans og Hafnar­fjarðar út um þúfur - Vísir
Þetta kemur fram í sameiginlegri yfirlýsingu Tækniskólans og Hafnarfjarðarbæjar. „Tækniskólinn og Hafnarfjarðarbær hafa undanfarin ár unnið að framtíð...
Man investigated after tracking device found hidden on ex-partner’s car in Tenerife
📅 14.09.2026 👁️ 2
Man investigated after tracking device found hidden on ex-partner’s car in Tenerife
A man from Tenerife is being investigated for alleged harassment after his former partner discovered an electronic tracking device on her car. The inv...
Motorcyclist crashes into three vehicles fleeing police checkpoint with suspected cocaine
📅 14.09.2026 👁️ 1
Motorcyclist crashes into three vehicles fleeing police checkpoint with suspected cocaine
A 43-year-old man has been arrested in Gran Canaria after allegedly fleeing from a police checkpoint on a moped in Las Palmas, driving against the flo...
Unnið að upp­færslu um­ferðar­ljósa - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Unnið að upp­færslu um­ferðar­ljósa - Vísir
Reykjavíkurborg og Vegargerðin vinna saman að uppfærslunni en greint er frá þessu á vef Reykjavíkurborgar. Þar segir að slökkt verði á umferðarljósunu...
Enginn Tækniskóli í Fjörðinn - bærinn lofaði upp í ermina á sér
📅 14.09.2026 👁️ 1
Enginn Tækniskóli í Fjörðinn - bærinn lofaði upp í ermina á sér
Hætt hefur verið við að byggja nýjan Tækniskóla í Hafnarfirði. Bærinn stóð ekki við skuldbindingar sínar um að útvega skólanum lóð.Í sameiginlegri yfi...
Ráðgjafar- og greiningarstöð komin með tímabundið húsnæði
📅 14.09.2026 👁️ 1
Ráðgjafar- og greiningarstöð komin með tímabundið húsnæði
Ráðgjafar- og greiningarstöð hefur fengið tímabundið húsnæði fyrir starfsemina. Staðgengill forstjóra segir húsnæðið viðunandi tímabundið en ókostur s...
Í farbanni vegna gruns um aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli
📅 14.09.2026 👁️ 1
Í farbanni vegna gruns um aðild að stórfelldu fíkniefnasmygli
Belgísk kona sem framseld var til landsins í ágúst vegna rannsóknar lögreglu á stórfelldu fíkniefnasmygli hefur verið úrskurðuð í farbann. Maður sem e...
Segir glaðlegt fjölskyldumyndband afhjúpa hræsni Markle og Harry
📅 14.09.2026 👁️ 2
Segir glaðlegt fjölskyldumyndband afhjúpa hræsni Markle og Harry
Á sunnudag deildi Meghan Markle, hertogaynjan af Sussex náinni innsýn í heimilislíf sitt og eiginmannsins Harrys prins eftir að þau fluttu aftur til B...
EFWI - tískuvika Erlendar 2026: Hönnun frá öllum heimshornum og frumsamin tónlist við tísku
📅 14.09.2026 👁️ 2
EFWI - tískuvika Erlendar 2026: Hönnun frá öllum heimshornum og frumsamin tónlist við tísku
Tískuvika Erlendar, Erlendur Fashion Week, Iceland, sem haldin var á Hvalasafninu nýlega vakti mikla athygli fyrir mikið sjónarspil og óvenju fjölbrey...
Aþena fékk stuðning úr óvæntri átt en bíður enn eftir samningi
📅 14.09.2026 👁️ 1
Aþena fékk stuðning úr óvæntri átt en bíður enn eftir samningi
Forsvarsmenn körfuboltafélagsins Aþenu í efra Breiðholti, með Brynjar Karl Sigurðsson í broddi fylkingar, hafa í talsverðan tíma gagnrýnt framgöngu Re...
Bandaríski flugmaðurinn rauf þögnina í 60 Minutes – „Það skelfilegasta sem ég hef upplifað“
📅 14.09.2026 👁️ 2
Bandaríski flugmaðurinn rauf þögnina í 60 Minutes – „Það skelfilegasta sem ég hef upplifað“
Bandarískur flughermaður sem þurfti að skjóta sér út úr F-15-orrustuþotu yfir Íran í apríl hefur í fyrsta sinn lýst þeim 50 klukkustundum sem liðu þar...
Ed Sheeran sparkar Mackelmore - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Ed Sheeran sparkar Mackelmore - Vísir
Ed Sheeran er nú á tónleikaferðalagi um Bandaríkin. Hann hefur komið fram á fjórtán tónleikum hingað til og á tíu eftir. Fjöldi listamanna hefur hitað...
Ed Sheeran sparkar Macklemore - Vísir

Telja norskan úrskurð um lögmæti bílastæðagjalda eiga við á Íslandi
📅 14.09.2026 👁️ 2
Telja norskan úrskurð um lögmæti bílastæðagjalda eiga við á Íslandi
Héraðsdómur Oslóar hefur úrskurðað að innheimtufyrirtæki hafi ekki haft heimild til að leggja á aukaleg gjöld vegna bílastæðanotkunar. Formaður Neyten...
Immigrants held in small outdoor cages at 'Alligator Alcatraz' in Florida, investigators find
📅 14.09.2026 👁️ 2
Immigrants held in small outdoor cages at 'Alligator Alcatraz' in Florida, investigators find
DHS inspectors say they found the immigration-detention centre violated basic standards for hygiene, medical care, food and safety.
Craps has more bets than any other table, and they are not priced alike
📅 14.09.2026 👁️ 1
Craps has more bets than any other table, and they are not priced alike
A Craps table layout carries dozens of wagers, and the difference between the cheapest and the most expensive is enormous. Anyone who wants to bet on ...
Man admits drugging and raping wife for 20 years
📅 14.09.2026 👁️ 1
Man admits drugging and raping wife for 20 years
A husband, who cannot be named to protect his wife's anonymity, pleads guilty to more than 60 offences, including rape and administering a substance w...
Man admits drugging and raping wife over 20-year period

Trump segir að á­rásum á orkuinnviði verði hætt - Vísir
📅 14.09.2026 👁️ 1
Trump segir að á­rásum á orkuinnviði verði hætt - Vísir
Þeim boðum hefur hingað til alltaf verið hafnað. Í færslu sem Bandaríkjaforseti skrifaði á Truth Social, hans eigin samfélagsmiðil, heldur Trump því f...