Eldur kviknaði í Toppstöðinni í Elliðaárdalnum á sjötta tímanum í kvöld. Það tók rúman klukkutíma að ráða að niðurlögum eldsins.
Toppstöðin, sem er gömul aflstöð, er einangrað með asbest. Mikill reykur barst frá húsinu og yfir Fossvoginn. Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að aðeins hafi eldur borist í lítinn hlusta asbestklæðningar hússins og er því er ekki talin þörf á frekari aðgerðum. Slökkviliðið vinnur að málinu með heilbrigðiseftirliti Reykjavíkur
Ívar Fannar Arnarsson, tökumaður RÚV var á vettvangi.
Húsið selt í febrúar
Toppstöðin var seld í febrúar. Kaupsamningur Toppstöðvarinnar ehf. við Reykjavíkurborg um kaup á Toppstöðinni í Elliðaárdal var undirritaður á borgarráðsfundi 12. febrúar. Kaupandinn greiddi 440 milljónir fyrir húsið.
Þegar salan fór í gegn tilkynnti Reykjavíkurborg að þar ætti að rísa miðstöð útivistar sem gæti hýst jaðargreinar og aðra starfsemi sem gæti stutt við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal.