Sígarettureykingar meðal ungmenna drógust verulega saman með hertum reglum og öflugu forvarnarstarfi undanfarna áratugi. Nú, þegar rafsígarettur, veip og nikótínpúðar hafa rutt sér til rúms, færast þær í aukana á ný.
Smitáhrif nikótínvara
Ragný Þóra Guðjohnsen, faglegur stjórnandi Íslensku æskulýðsrannsóknarinnar, segir að með tilkomu veips, rafsígarettna og nikótínpúða hafi nikótínneysla aukist og rannsóknarteymið hafi velt fyrir sér hvort smitáhrif milli nikótínvara gætu aukið áhuga ungmenna á sígarettum.
„Ef við horfum bara tíu til tuttugu ár aftur í tímann þá sáum við þessa frábæru þróun að reykingar ungs fólks fóru niður á við og það var bara eiginlega orðið þannig að í kynningum hjá Íslensku æskulýðsrannsókninni þá sleppti maður bara glærunni um reykingar.“
Í nýjustu niðurstöðum rannsóknarinnar sést að sígarettureykingar meðal drengja í 10. bekk hafa aukist um helming milli áranna 2025 og 2026. Hlutfall stúlkna í sama árgangi stendur hins vegar í stað milli ára.
„En stúlkurnar hafa verið hærri í rafsígarettunum og nikótínpúðanotkunin var miklu meiri hjá strákum en er núna bara orðin svipuð hjá strákum og stelpum,“ segir Ragný.
„Þú ert bara í rúllustiganum og þar er risastór Svens-auglýsing“
Öflug markaðssetning á nikótínvörum hafi veruleg áhrif á neysluhegðun.
„Þú ert bara í rúllustiganum í Smáralind og þar er risastór Svens-auglýsing þannig að það er náttúrlega bannað að auglýsa tóbak en það er einhvern veginn alltaf verið að fara framhjá þessu bæði í tóbaki og áfengi og það er verið að beina markaðsefni að ungu fólki.“
Og er auðvelt fyrir ungt fólk að ná sér í sígarettur?
„Það virðist vera í þessu eins og er búið að vera í umræðunni varðandi áfengið að þá er ekki mikið eftirlit, það er oft ungt fólk sem vinnur í þessum búðum og það er ekki verið að biðja um skilríki. Þannig að þau virðast eiga auðvelt með að ná sér í þetta.“
Höfum við sofnað í forvarnarstarfi gegn reykingum ungmenna?
„Ef til vill höfum við gert það já. Það var náttúrulega gífurleg sókn í forvörnum þarna eftir 2000 og síðan náðum við miklum árangri en það er með forvarnir að það kemur alltaf eitthvað nýtt og nýtt þannig að við þurfum bara alltaf að vera vakandi fyrir því að grípa það sem er á hverjum tíma,“ segir Ragný.