Líkt og áður hefur komið fram er Toppstöðin einangruð með asbesti. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliði höfuðborgarsvæðisins er fólk hvatt til að loka gluggum og vera ekki í grennd við húsið. Samkvæmt upplýsingum frá slökkviliðinu er asbestið í klæðningu hússins, ekki er vitað hvort eldurinn hafi náð inn að henni. Slökkviliðið er nú í samvinnu við Heilbrigðiseftirlit Reykjavíkur.
Hægt er að skoða stöðu loftgæða á vef Umhverfis- og orkustofnunar.
Lárus Steindór Björnsson, aðalvarðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu, segir að búið sé að ráða niðurlögum eldsins. Reykræsting og frágangur á svæðinu er hafinn en upptök eldsins eru ókunn.
Guðmundur Bergkvist tökumaður RÚV var á vettvangi.
Toppstöðin var seld í vetur, kaupsamningur Toppstöðvarinnar ehf. við Reykjavíkurborg um kaup á Toppstöðinni í Elliðaárdal var undirritaður á borgarráðsfundi 12. febrúar. Kaupandinn greiddi 440 milljónir fyrir húsið.
Toppstöðin er yfirgefið verksmiðjuhúsnæði, á vef Reykjavíkurborgar segir að húsið sé rúmlega 6.000 fermetrar. Húsið er illa farið og einangrað með asbesti.
Þegar salan fór í gegn tilkynnti Reykjavíkurborg að þar ætti að rísa miðstöð útivistar sem gæti hýst jaðargreinar og aðra starfsemi sem gæti stutt við eflingu útivistar og tómstunda í Elliðaárdal.
Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að tekist hafi að slökkva nær allan eldinn. Slökkviðið vinnur nú að því að slökkva eld í svokölluðum hreiðrum, enn stígur mikinn reyk frá húsinu.
Alma Ómarsdóttir fréttamaður var í beinni frá Toppstöðinni í kvöldfréttum og talaði við Birgi Finnsson, staðgengil slökkviliðsstjóra.
Toppstöðin er yfirgefið verksmiðjuhúsnæði, á vef Reykjavíkurborgar segir að húsið sé rúmlega 6.000 fermetrar. Húsið er illa farið og einangrað með asbesti.
Birgir Finnsson, staðgengill slökkviliðsstjóra segir að mikið asbest sé í húsinu. Tekist hefur að slökkva einn eld og segir Birgir að húsið sé nú vaktað, enn sé þó mikill reykur í grennd við húsið.
Gott kvöld, Ásrún Aldís Hreinsdóttir heiti ég og verð með ykkur á fréttavakt hér í kvöld.
Töluverður eldur logar í Toppstöðinni í Elliðaárdal. Íbúar á svæðinu eru hvattir til þess að loka gluggum og halda sig fjarri reykjarslæðunni. Lárus Steindór Björnsson varðstjóri hjá Slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu segir að töluverður eldur logi í húsinu. Allir fjórir dælubílar slökkviliðsins voru sendir á vettvang.