Í sumar voru teknar nýjar háupplausnarmyndir af öllum þéttbýlisstöðum landsins. Þetta er í fyrsta skipti sem það er gert. Vel gekk að taka loftmyndir af Íslandi í sumar enda veðrið oft með ágætum. Um það bil 18% landsins voru mynduð sem telst mjög gott en til að ná myndum af landinu þarf að vera heiðskírt sem er alls ekki alla daga.
Nákvæmari loftmyndir en áður af öllum þéttbýlisstöðum landsins