Heyrði dóttur sína gráta og kalla „hættu, pabbi“ áður en sambandið rofnaði

Hrollvekjandi upplýsingar hafa komið fram í tengslum við andlát ástralsks föður og tveggja ungra barna hans, sem fundust látin í leigubústað í bænum Kuta á Balí á sunnudagsmorgun. Lögreglan á staðnum rannsakar málið sem tvöfalt morð og sjálfsvíg.
Hinn 56 ára gamli Damien John Shaw, sem var upprunalega frá Perth í Vestur-Ástralíu, fannst látinn ásamt sex ára syni sínum og fjögurra ára dóttur. Talið er að Shaw hafi kæft börn sín til til dauða áður en hann tók sitt eigið líf. Fjölskyldan hafði búið í bústaðnum á Balí frá árinu 2022.
„Hættu, pabbi“
Eiginkona Shaw og móðir barnanna var stödd í höfuðborginni Jakarta þegar harmleikurinn átti sér stað. Samkvæmt lögreglu hringdi hún heim til fjölskyldu sinnar og heyrði þá dóttur sína gráta í bakgrunni og kalla „Hættu, pabbi“. Sambandið rofnaði skyndilega og tókst konunni ekki að ná sambandi við eiginmann sinn aftur, þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir.
Í mikilli geðshræringu hafði hún samband við nágranna sína á Balí og bað þá um að athuga með dregina. Þegar enginn svaraði kalli neyddust nágrannar, ásamt héraðsstjóra á svæðinu, til þess að brjóta upp hurðina á bústaðnum.
Líkunum staflað ofan á hvert annað
Inni í bústaðnum blasti við skelfileg sjón, en hermt er að líkum barnanna tveggja hafi verið staflað ofan á hvert annað á gólfinu. Skammt frá fannst faðirinn sömuleiðis látinn. Bráðabirgðarannsókn lögreglu bendir til þess að börnin hafi dáið af völdum ofbeldis og bendir allt til þess að faðirinn hafi kæft þau. Krufning mun leiða endanlega í ljós dánarorsök þeirra allra.
Ástralska utanríkisráðuneytið og Roger Cook, forsætisráðherra Vestur-Ástralíu, hafa lýst yfir dúpri samúð með aðstandendum vegna þessa hræðilega atburðar. Áströlsk stjórnvöld veita móður barnanna og aðstandendum ræðismannsaðstoð á meðan rannsókn málsins stendur yfir.