Aðalstjórn SÁÁ kom saman til auka-aðalfundar síðdegis til að ræða alvarlega stöðu innan samtakanna. Fundinum lauk klukkan níu í kvöld og hafði hann þá staðið yfir í um fjóra tíma. Á fundinn var boðuð öll aðalstjórn samtakanna. Það eru 48 manns sem sitja í henni.
Framkvæmdastjórnin hefur staðið í ströngu síðustu daga og vikur. Eitt af því sem rætt var á fundinum er vantrausttillaga á hendur þeim.
Hægt er að sjá umfjöllum í kvöldfréttum um málið hér í spilaranum fyrir ofan.