Það voru ekki aðeins þingmenn sem sneru aftur þegar Alþingi var sett í síðustu viku. Þá sneri líka aftur fjöldi lagafrumvarpa og þingsályktunartillagna frá fyrri árum sem hafa ekki náð fram að ganga. Langlífasta frumvarpið er nú flutt í 13. skipti.
Þingsköp kveða á um að frumvörp og þingsályktunartillögur sem Alþingi samþykkir ekki fyrir þinglok falli niður þegar þingi er slitið. Því er ekki hægt að taka þau upp og halda áfram með vinnsluna eins og ekkert hefði í skorist á fyrra þingi. Flytja þarf málin á ný og hefst þá öll umræða og nefndavinnsla upp á nýtt.
Þetta verður til þess að sum frumvörp eru flutt aftur og aftur áður en þau eru annaðhvort samþykkt eða daga uppi. Og þar sem stjórnarfrumvörp ráðherra eru mun líklegri til að verða að lögum en þingmál einstakra þingmanna þá birtast þingmannamál oft ár eftir ár á þingmálalista Alþingis.
Eitt nýtt á gömlum grunni
Fyrstu daga þingsins lögðu þingmenn stjórnarandstöðunnar fram 52 þingmál á Alþingi. Þar á meðal er 31 lagafrumvarp sem er endurflutt og eitt nýtt lagafrumvarp. Nýja frumvarpið byggir þó á gömlum merg, þar eru þrjú eldri frumvörp Sjálfstæðismanna um skattaafslátt við barnafjölskyldur sameinuð í eitt.
Fimmtán þingsályktunartillögur eru lagðar fram á ný og tvær nýjar.
Þrettánda tilraun með stimpilgjald
Ekkert frumvarp er lífseigara en frumvarp þingmanna Sjálfstæðisflokksins um að fella niður stimpilgjald af kaupum einstaklinga á íbúðarhúsnæði eða lögbýli. Það er nú lagt fram í þrettánda sinn. Nokkrir þingmenn hafa verið fyrstu flutningsmenn í gegnum tíðina. Nú tekur Diljá Mist Einarsdóttir það hlutverk að sér. Hún var fyrst kjörin á þing talsvert eftir að frumvarpið var flutt í fyrsta sinn.
Þingsályktunartillaga Diljár Mistar og sex flokkssystkina hennar um svokallaða gullhúðun EES-reglugerða er lögð fram í fimmta sinn. Í henni er kveðið á um að við setningu laga um EES-mál verði að jafnaði ekki gengið lengra en lágmarkskröfur viðkomandi EES-gerðar kveði á um.
Sum frumvörp lifa jafnvel flutningsmenn sína, það er að segja þegar litið er til þingmannsferils þeirra. Teitur Björn Einarsson flutti tvisvar frumvarp um breytingar á lögum um umsagnarfrest vegna umhverfismats. Það náði í hvorugt skiptið fram að ganga. Hann féll síðan af þingi en aðrir þingmenn tóku það upp á sína arma og flytja nú í fimmta sinn.
Jón Gnarr flytur í þriðja sinn frumvarp um að rýmka heimildir til að taka upp ættarnöfn.
Frumvarp um hnefaleika í atvinnuskyni og frumvarp um innritun systkina í leikskóla eru lögð fram í sjötta sinn, frumvarp um rýmri reglur um tæknifrjóvgun í sjöunda sinn og frumvarp um notkun tjúgufánans við opinberar byggingar í áttunda sinn.
Nýjar tillögur
Njáll Trausti Friðbertsson, þingmaður Sjálfstæðisflokksins, lagði fram nýja þingsályktunartillögu um fríverslun í síðustu viku. Þar hvetur hann til þess að ríkisstjórnin hafi frumkvæði að viðræðum við stjórnvöld í Bandaríkjunum, Bretlandi, Kanada, Noregi, á Grænlandi og í Færeyjum um víðtækt samstarf á sviði viðskipta, lista og menningar, vísinda og mennta, náttúruverndar og öryggismála. Samstarfið vill hann kenna við Norður-Atlantshafið.
Þá lögðu þingmenn úr Miðflokki, Sjálfstæðisflokki og Framsóknarflokki fram þingsályktunartillögu um að eyða minki í íslenskri náttúru.
Skiptist til helminga hjá ráðherrum
Það eru ekki aðeins einstakir þingmenn sem endurflytja eldri mál. Það gera líka ráðherrar ríkisstjórnarinnar. Fjögur af níu frumvörpum ríkisstjórnarinnar sem litu dagsins ljós fyrstu dagana eru endurflutt. Eina þingsályktunartillagan er flutt í annað sinn.
Atvinnuvegaráðherra leggur fram nýtt frumvarp um að framlengja búvörusamninga um eitt ár. Þeir áttu að renna út í lok þessa árs en gilda út það næsta ef frumvarpið verður að lögum. Annað nýtt frumvarp er um staðfestingu ríkisreiknings síðasta árs en það þriðja er öllu viðameira, það er frumvarp til sveitarstjórnarlaga.
Breytist þegar á líður
Þó að endurflutt frumvörp og þingsályktunartillögur eigi sviðið þessa fyrstu daga þingsins er viðbúið að það breytist á næstunni þegar þinginu vindur fram.
Ríkisstjórnin hefur boðað fjölda þingmála og viðbúið er að þingmenn leggi fram ný frumvörp og þingsályktunartillögur eftir því sem á veturinn líður.