Útlit er fyrir rólegheitaveður víðast hvar í dag en það bætir í vind og fer að rigna seint í kvöld og í nótt. Sérstaklega á eftir að hvessa suðvestantil.
Í dag verður þó víðast hvar bjartviðri. Helstu undantekningarnar frá því eru að í fyrstu getur verið súld með köflum norðan- og austanlands og skúrir á Suðausturlandi.
Veðurspáin er svohljóðandi:
Fremur hæg breytileg átt, en norðvestan 8-13 metrar á sekúndu fram yfir hádegi austast. Bjartviðri, en súld með köflum norðan- og austanlands í fyrstu og skúrir á Suðausturlandi.
Vaxandi suðaustanátt með rigningu seint í kvöld og nótt, 10-18 metrar á sekúndu í fyrramálið, hvassast suðvestantil. Sums staðar talsverð rigning um tíma á morgun. Snýst í sunnan og suðvestan 3-8 og dregur úr úrkomu síðdegis og annað kvöld, fyrst á suðvestanverðu landinu.
Hiti 5 til 13 stig, svalast norðaustantil.