Alls voru 83.420 erlendir ríkisborgarar skráðir búsettir á landinu 1. september, rétt rúmur fimmtungur íbúa landsins samkvæmt tölum Þjóðskrár.
Stofnunin slær þann varnagla að átaksverkefni hennar að uppfæra lögheimilisskráningar geti haft áhrif á skráðan fjölda erlendra ríkisborgara og þar með breytingar milli tímabila.
Úkraínskum ríkisborgurum hefur fjölgað um 250 einstaklinga frá 1. desember í fyrra. Þá fjölgaði spænskum ríkisborgurum um 180 og nígerískum ríkisborgurum um 85 á tímabilinu.