Fimm mínútna við­bót við að­gerð geti dregið úr á­hættu á krabba­meini - Vísir

Fimm mínútna við­bót við að­gerð geti dregið úr á­hættu á krabba­meini - Vísir

Fimm mínútna við­bót við að­gerð geti dregið úr á­hættu á krabba­meini - Vísir

Fjallað var nýlega um slíkar aðgerðir í grein á bandaríska miðlinum New York Times þar sem kom fram að konur sem láta fjarlægja eggjaleiðara sína, sem flytja eggin frá eggjastokk í leg, minnkuðu líkurnar á að fá eggjastokkakrabbamein um allt að 80 prósent við brottnám þeirra.

Í greininni kemur jafnframt fram að Ameríska krabbameinsfélagið, félag amerískra skurðlækna, American College of Surgeons, og samtök evrópskra kvensjúkdóma- og krabbameinslækna, The European Society of Gynaecological Oncology Consensus, hafi nýlega öll gefið frá sér tilkynningu þar sem þau hvetja lækna sem eru að framkvæma kviðarholsaðgerðir á konum til að framkvæma þessa aðgerð um leið. Hún taki aðeins um fimm mínútur og það sé hægt að framkvæma hana í til dæmis gallblöðruaðgerðum, legnámi og kviðslitsaðgerðum. Þar kemur einnig fram að Ameríska krabbameinsfélagið undirbúi nú herferð sem eigi að fara af stað á næsta ári þar sem hvetja á konur til að fara í slíka aðgerð samhliða öðrum aðgerðum.

Kolbrún Pálsdóttir er sérhæfð í krabbameinsskurðlækningum kvenna. Hún segir ágætis leiðbeiningar til um áhættuminnkandi aðgerðir fyrir konur sem eru með þekkt áhættugen og þær hafi verið til staðar í nokkurn tíma.

„Þá erum við að fjarlægja eggjastokka og eggjaleiðara hjá þeim fyrirbyggjandi. En þegar við erum að færa þetta yfir á allt samfélagið þá hefur það skref hvorki verið stigið hér né í löndunum í kringum okkur, leyfi ég mér að fullyrða.“

Eggjaleiðarar tilgangslausir án legs

Á Landspítalanum hafi konum sem eru á leið í legnám þó verið boðið að fara í þessa aðgerð um nokkra hríð.

„Legnám af flestum ástæðum, sama hvort það er blæðingartruflun, frumubreytingar í leghálsi, vöðvahnútar, eða endómetríósa, þá höfum við verið að taka þetta samtal og ráðleggja þeim að taka eggjaleiðarann á sama tíma.“

Kolbrún segir þetta nánast orðið að rútínu, að eggjaleiðarar séu fjarlægðir á sama tíma og leg er tekið en eggjastokkar skildir eftir.

Mót af kvenlíffærum. Kolbrún segir eggjaleiðarana nokkuð óþarfa sé legið fjarlægt og því sé tilvalið að taka þá um leið og minnka þannig áhættu á krabbameini síðar meir. Vísir/Getty

Þannig sé núna búið að tengja þessi fyrirbyggjandi áhrif í gegnum faraldsfræðilegar rannsóknir. Þar sé hægt að sjá að konur sem hafi farið í inngrip á eggjaleiðurum, þar sem þeir eru fjarlægðir eða teknir í sundur í ófrjósemisaðgerð, sjái minni tíðni eggjastokkakrabbameins þegar lengra líður fram.

Kolbrún segir að það sem vanti núna séu niðurstöður úr inngripsrannsóknum þar sem gerð er skipulögð aðgerð á ólíkum hópum og tíðnin skoðuð. Þessar niðurstöður séu ekki til en það sé verið að gera þessar rannsóknir og þær því væntanlegar. Hún áréttar þó að það taki tíma að bíða eftir gögnum þar sem árangur aðgerðanna sjáist ekki fyrr en löngu eftir inngripið.

„Sú þekking sem er til staðar núna er ekki beint frá því að við höfum gert rannsóknir þar sem við erum með slembiúrtak og segjum: „Tökum eggjaleiðarana úr einni konu og ekki úr hinni“ og fylgjum því síðan eftir. Það vantar þær upplýsingar til þess að staðfesta enn frekar gagnsemi þessa inngrips,“ segir hún.

Þörf á að staðfesta vel studda tilgátu

Kolbrún segir að það væri gott að geta staðfest þessa tilgátu í framskyggnum rannsóknum þar sem inngripið er prófað á bæði konum sem eru í aukinni áhættu og þeim sem eru það ekki.

„Við erum með töluvert mikið af gögnum sem styðja þetta samband þannig að við vitum úr rannsóknum að það virðist vera þannig að upphaf eggjastokkakrabbameins sé langoftast í eggjaleiðaranum og ekki í eggjastokknum sjálfum þó að síðan það fari að vaxa í eggjastokknum.“

Hún tekur skýrt fram að þessi aðgerð sé yfirleitt aðeins í boði fyrir konur sem ekki hyggja á fleiri barneignir. 

„Það er verið að gera konurnar ófrjóar með því að taka úr þeim eggjaleiðarana. Þótt þú skiljir legið eftir þá ertu búinn að taka í burtu möguleikann á því að þær verði þungaðar án aðstoðar.“

Hún segir eins legið ekki tekið úr konum sem ætli sér að eignast fleiri börn en þegar búið er að taka legið þjóni eggjaleiðararnir hvort eð er litlum tilgangi.

„Eggjaleiðararnir þjóna engu hlutverki í konu sem er búið að taka úr legið.“

Hún segir konur jafnframt ekki þurfa að hafa áhyggjur af því að fara í snemmbúin tíðahvörf fari þær í slíka aðgerð. Það séu í raun engar rannsóknir til sem styðja þá fullyrðingu að konur séu í aukinni áhættu á snemmbúnum tíðahvörfum þó að það séu teknir úr þeim eggjaleiðararnir.

Kolbrún Pálsdóttir yfirlæknir segir aðgerðina geta komið í veg fyrir krabbamein síðar meir. Vísir/Anton Brink

„Þetta er leið til þess að minnka áhættu á meðan þú ert í rauninni ekki að leggja neikvæð áhrif á konuna. Það er engin stór áhætta fólgin í því að gera þetta litla inngrip aukalega við að taka legið. Það hefur ekki áhrif á hormónastarfsemina, það er ekki sérstaklega aukin blæðingarhætta og það er ekki aukin hætta á að þú farir í snemmbúin tíðahvörf þannig að þá er kannski engin ástæða fyrir því að gera þetta ekki,“ segir Kolbrún og að ávinningurinn geti þannig verið mjög stór.

Konur taki yfirleitt vel í að bæta við aðgerð

Kolbrún segir konur nánast undantekningalaust taka vel í þessa tillögu um að fjarlægja eggjaleiðara samhliða legnámi. Hún segir því greinina sem vísað var í að ofan í New York Times athyglisverða því þar sé verið að tala um að taka þetta skrefinu lengra og framkvæma þessar aðgerðir á konum sem ekki eru endilega í áhættuhópi og á leið í annars konar kviðarholsaðgerðir en legnám.

„Þetta er samtal sem við erum kannski bara rétt að hefja hérna á Íslandi. Að til dæmis konur sem eru að fara í gallblöðrutöku, út af botnlangabólgu eða að fara í aðgerð út af ristlinum eða einhverju sem tengist ekki kvenlíffærunum, þá er í greininni verið að ræða að þá ætti kannski að ræða þetta, taka þennan þátt upp með konum og segja: Heyrðu, það er hérna lítið inngrip sem hægt er að bæta við sem mögulega minnkar áhættuna þína af því að fá leiðinlegt krabbamein í framtíðinni. Viltu að við gerum það í leiðinni?“

Vill hefja samtalið við lækna á öðrum deildum

Kolbrún segir þetta samtal sem ekki er hafið formlega á Íslandi.

„Þetta er ekki í framkvæmd núna á Landspítalanum,“ segir hún en að hún hafi rætt við skurðlækni nýlega, á annarri deild Landspítalans, sem hafi lýst áhuga á því að hefja þetta samtal og ræða kosti og galla þess.

Verði að útbúa verklag

Hún segir lækna í hennar grein hafa verið að bíða eftir frekari stuðningi úr klínískum verklagsreglum erlendis frá og því hjálpi verulega að félög eins og The European Society of Gynaecology hafi gefið út sérstakar ráðleggingar varðandi þetta í febrúar.

Hún segir að ef það ætti að bjóða konum á Íslandi þessa aðgerð samhliða öðrum kviðarholsaðgerðum þyrfti samt sem áður fyrst að móta verklag þar sem til dæmis væri skilgreint vel hvaða konum ætti að bjóða aðgerðina.

„Það eru konur sem eru náttúrulega að sjálfsögðu komnar úr barneign. Númer eitt, tvö og þrjú.“

Kolbrún segir þó búið að innleiða þetta verklag á Kvennadeildinni óformlega í tengslum við legnám og hún sjái fyrir sér að það verði hægt að gera það á öðrum deildum sömuleiðis.

Á vef Krabbameinsfélagsins segir um eggjastokkakrabbamein að það sé samheiti fyrir öll illkynja æxli í eggjastokkum, óháð vefjagerð þeirra. Þau eru algengasta tegund illkynja æxla í kynfærum kvenna. Það hafi dregið úr fjölda þeirra síðustu ár og dánartíðni lækkað. Þar kemur þó einnig fram að erfitt sé að greina og að einkenni komi seint fram. Um 60 prósent kvenna sem greinast séu með langt genginn sjúkdóm (stig 3 og 4) við greiningu og er það talin aðalástæða þess hve dánartíðnin er há.

Á vef Krabbameinsfélagsins segir einnig að áhættuþættir séu til dæmis fjöldi egglosa, fjölskyldusaga, stökkbreyting gena og tóbak.

Getnaðarvarnarpillan hefur áhrif

Kolbrún segir það þekkt á heimsvísu að tíðni eggjastokkakrabbameins hafi farið niður um síðustu aldamót og það sé að mörgu leyti rakið til mikillar notkunar getnaðarvarnarpillunnar þegar hún kom á markað.

„Af því að getnaðarvarnarpillan er mjög fyrirbyggjandi og minnkar áhættuna á því að fá eggjastokkakrabbamein seinna á ævinni. Þeim mun lengur sem þú tekur hana þeim mun minni er áhættan,“ segir hún og útskýrir að því færri sem egglosin eru því minni eru líkurnar á slíku krabbameini.

„Af því við vitum að konur sem gefa brjóst lengur fá ekki egglos, þær konur sem verða óléttar oft eru heldur ekki með egglos, og við vitum að þær eru í minni áhættu á að fá eggjastokkakrabbamein eftir því sem þær eldast. Það virðist svo sem egglosið eigi einhvern þátt í því að svona mein myndast. Það sé meiri hætta á að krabbameinið geti annaðhvort fest þarna eða þróast á yfirborði eggjastokksins,“ segir hún og að við hvert egglos komi sár í eggjastokkinn og þar geti krabbameinið myndast.

Miður að notkun pillunnar sé minni

Kolbrún segir miður að notkun getnaðarvarnarpillunnar hafi farið minnkandi.

„Það er líka mjög áhugavert í ljósi þess að flestar konur hafa mjög mikinn áhuga á tíðahvarfahormónum og eru alveg til í að taka þau,“ segir hún en það virðist ekki það sama gilda þegar um ræðir lyf til að stjórna eigin frjósemi.

Hún segir það algengan misskilning að getnaðarvarnarpillan hafi slæm áhrif á frjósemi.

„Í rauninni má segja að það besta sem þú getur gert fyrir frjósemina er að nota getnaðarvarnarpilluna, því þú ert að  vernda eggjastokkana og spara eggin þangað til þú ætlar að nota þau.“

#aðgerð #fimm #mínútna #við #viðbót


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262933603d/fimm-minutna-vidbot-vid-adgerd-geti-dregid-ur-ahaettu-a-krabbameini

📰 Aðrar fréttir

Kosningarnar í Bandaríkjunum höfðu bein áhrif á örlög Christu Pike – Þetta vill nýji fylkisstjórinn gera
📅 05.11.2026 👁️ 1
Kosningarnar í Bandaríkjunum höfðu bein áhrif á örlög Christu Pike – Þetta vill nýji fylkisstjórinn gera
Margt hékk á spýtunni í nýloknum þingkosningum í Bandaríkjunum. Meðal annars framtíð hins dæmda morðingja Christu Pike, sem ekki tókst að taka af lífi...
Sækist eftir stjórasæti SÞ í skugga á­sakana vegna ó­dæða í Súdan - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Sækist eftir stjórasæti SÞ í skugga á­sakana vegna ó­dæða í Súdan - Vísir
Blaðamaður New York Times hefur komið höndum yfir skýrsluna sem lögð var fyrir öryggisráðið í síðustu viku. Þar kemur fram hvernig öryggisfyrirtæki fr...
Segir stóran samning við Rússland í farvatninu
📅 05.11.2026 👁️ 1
Segir stóran samning við Rússland í farvatninu
Donald Trump Bandaríkjaforseti segir að stór samningur við Rússland sé í vinnslu. Hann segir að samningur þessi muni ekki einungis hafa áhrif á Úkraín...
King relishes 'politically charged' deployments, Palace aide says
📅 05.11.2026 👁️ 2
King relishes 'politically charged' deployments, Palace aide says
The monarch faced questions on the UK's involvement in the slave trade during his Caribbean tour.
Rannsókn beinist einnig að bróður Markle í barnaklámsmáli föður þeirra
📅 05.11.2026 👁️ 1
Rannsókn beinist einnig að bróður Markle í barnaklámsmáli föður þeirra
Hálfbróðir Meghan Markle, Thomas Markle yngri, hefur nú komið til tals í rannsókn á föður þeirra, Thomas Markle eldri, vegna vörslu barnakláms. Rannsa...
Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um
📅 05.11.2026 👁️ 1
Tróð eigin skít upp í eiginmann sinn – Kenndi þunglyndi eftir dauða foreldra sinna um
Bresk kona á sjötugsaldri hefur verið dæmd fyrir að troða eigin skít upp í munn eiginmanns síns. Konan hefur ítrekað beitt hann líkamlegu og andlegu o...
Egill furðar sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu: „Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“
📅 05.11.2026 👁️ 1
Egill furðar sig á hvað vaki fyrir Morgunblaðinu: „Þetta er eitt það ljótasta sem ég hef séð í fréttum á Íslandi“
Fjölmiðlamaðurinn Egill Helgason veltir fyrir sér hvað vaki fyrir blaðamönnum Morgunblaðsins með myndbirtingu við frétt sem birtist í blaðinu í dag fi...
Newsom breytir öllum dauðadómum í Kaliforníu í lífstíðardóma
📅 05.11.2026 👁️ 2
Newsom breytir öllum dauðadómum í Kaliforníu í lífstíðardóma
Gavin Newsom, ríkisstjóri Kaliforníu, hefur mildað refsingar þeirra 548 sem voru í dauðadeild í ríkinu. Þeir hljóta í staðinn lífstíðarfangelsi. Talan...
Police car set alight in Glasgow amid Bonfire Night trouble
📅 05.11.2026 👁️ 1
Police car set alight in Glasgow amid Bonfire Night trouble
The car was torched after officers answered reports of an injured man in the Provanmill area of Glasgow.
Forstjóri ÁTVR: Nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu
📅 05.11.2026 👁️ 2
Forstjóri ÁTVR: Nauðsynlegt að fá skýrari lög um áfengissölu
Borið hefur á togstreitu í samfélaginu varðandi fyrirkomulag áfengissölu og þá er, að vissu leyti, uppi lagaleg óvissa í ofanálag.Forstjóri ÁTVR, Þorg...
Nauðsynlegt að niðurstaða fáist í dómsmálum um áfengissölu netverslana
📅 05.11.2026 👁️ 1
Nauðsynlegt að niðurstaða fáist í dómsmálum um áfengissölu netverslana
Borið hefur á togstreitu í samfélaginu varðandi fyrirkomulag áfengissölu og ríkir enn óvissa um niðurstöðu dómsmála sem varða netsölu áfengis. Forstjó...
Sendi ríf­lega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Sendi ríf­lega 300 fyrirspurnir: „Sjálfstæðismenn orðnir hinir nýju Píratar“ - Vísir
Síðustu þrjá daga hefur Guðlaugur, sem er þingmaður Sjálfstæðisflokksins og fulltrúi flokksins í fjárlaganefnd, sent tíu fyrirspurnarskjöl á mismunand...
Fór í hart vegna íbúðar fyrir börn með mikinn vanda og hafði betur
📅 05.11.2026 👁️ 2
Fór í hart vegna íbúðar fyrir börn með mikinn vanda og hafði betur
Úrskurðarnefnd umhverfis- og auðlindamála hefur orðið við kröfu fyrrum eiganda íbúðar á efri hæð í tvíbýlishúsi í Hafnarfirði um að fella úr gildi ákv...
Vernd yngri byggingararfs eykst með heimild til að leita álits á breytingum húsa
📅 05.11.2026 👁️ 2
Vernd yngri byggingararfs eykst með heimild til að leita álits á breytingum húsa
Eigendum húsa sem byggð voru á árunum 1924 til 1940 er ekki lengur skylt að leita álits Minjastofnunar Íslands vegna fyrirhugaðra breytinga, heldur fy...
Hætti við fram­boð vegna veikinda en vann samt - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Hætti við fram­boð vegna veikinda en vann samt - Vísir
Á síðu yfirkjörstjórnar Iowa má sjá að Armstrong fékk 4.602 atkvæði og Keith Jones, mótframbjóðandi hans, fékk 3.737 atkvæði. Demókratar náðu ekki mei...
Vonast eftir auknum stuðningi frá breyttu Bandaríkjaþingi
📅 05.11.2026 👁️ 2
Vonast eftir auknum stuðningi frá breyttu Bandaríkjaþingi
Úkraínumenn fagna niðurstöðu þingkosninga í Bandaríkjunum í vikunni og vonast eftir meiri stuðningi þaðan. Volodymyr Zelenský, forseti Úkraínu, vonar ...
Meira um hlátur en grát eftir að bólusetning með nefúða hófst
📅 05.11.2026 👁️ 2
Meira um hlátur en grát eftir að bólusetning með nefúða hófst
Undanfarið hafa börn á aldrinum tveggja til fjögurra ára víðs vegar um land fengið bóluefni gegn inflúensu með nefúða í stað sprautu. Það er léttir bæ...
Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
📅 05.11.2026 👁️ 2
Ímam gagnrýnir umfjöllun mbl um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
  Mansoor Ahmad Malik, ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi, gagnrýnir hlutverk mbl og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í ...
Ímam gagnrýnir umfjöllun um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
📅 05.11.2026 👁️ 2
Ímam gagnrýnir umfjöllun um Usmani: „Hvers vegna þurfa allir múslimar að svara?“
  Mansoor Ahmad Malik, ímam og forstöðumaður Samfélags Ahmadiyya-múslima á Íslandi, gagnrýnir hlutverk mbl og blaðamannsins Stefáns E. Stefánssonar í ...
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Hvað veistu um... Múmínálfana? - Vísir
Sögurnar gerast í Múmíndal, þar sem fjölskyldan býr í bláa múmínhúsinu og tekur jafnan vel á móti gestum. Múmínálfarnir hafa lifað góðu lífi í bókum, ...
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
📅 05.11.2026 👁️ 2
Þau bjóða upp á fyrsta Bókakonfekt vetrarins
Bókakonfekt Forlagsins hefst í kvöld, fimmtudaginn 5. nóvember kl. 20 í bókabúð Forlagsins á Fiskislóð 39 og í streymi sem sjá má hér fyrir neðan.Bóka...
Second batch of Mandelson papers set to be published before Christmas
📅 05.11.2026 👁️ 2
Second batch of Mandelson papers set to be published before Christmas
Documents were published in March and June - but others were withheld because they were part of a police investigation.
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
📅 05.11.2026 👁️ 1
Systkini deildu um arf eftir að faðir þeirra hafði freistað þess að gera soninn arflausan
Erfðadeilur systkina enduðu fyrir Landsrétti eftir að faðir þeirra hafði reynt að gera son sinn arflausan.
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Búnir að stafla þýfinu þegar eig­andinn kom heim - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu í dag. Þar segir að frá fimm í morgun til fimm í dag hafi 121 mál verið skráð í kerfi lögreglunna...
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
📅 05.11.2026 👁️ 2
Ítrekaðar athugasemdir frá Vinnueftirlitinu og íbúar orðnir langþreyttir
Vinnueftirlitið hefur gert ítrekaðar athugasemdir við frágang á byggingu hótelturnsins við Skúlagötu. Götur hafa verið lokaðar kringum byggingarstaðin...
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
📅 05.11.2026 👁️ 2
California Gov Newsom commutes death sentences for all 548 people on death row
California has historically had the largest population of death row inmates in the US.
California Governor Gavin Newsom commutes sentences for state's 548 death row inmates
📅 05.11.2026 👁️ 2
California Governor Gavin Newsom commutes sentences for state's 548 death row inmates
California has historically had the largest population of people on death row in the US.
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
📅 05.11.2026 👁️ 2
Golfarar njóta nóvemberblíðunnar
Fyrstu vikur vetrar hafa verið nokkuð mildar víða um land. Norðlendingar njóta góðs af tíðinni og sinna bústörfum utandyra eða spila golf í blíðunni. ...
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
📅 05.11.2026 👁️ 2
Rekstrargrundvelli Landbúnaðarháskólans ógnað
Samkvæmt nýjum tillögum stendur framlag háskólaráðuneytisins aðeins undir 45 af hundraði áætlaðs rekstrarkostnaðar Landbúnaðarháskóla Íslands á móti t...
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
📅 05.11.2026 👁️ 1
Vilja stytta lánstímann í 25 ár en mæta andstöðu úr ýmsum áttum
Í stefnuyfirlýsingu núverandi ríkisstjórnar er rætt um að draga þurfi úr vægi verðtryggingar og í húsnæðispakka ríkisstjórnarinnar sem var kynntur fyr...
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
📅 05.11.2026 👁️ 2
Melania Trump calls for lasting Ukraine truce as she hosts Russian and Ukrainian officials
The US first lady was credited by all for playing a key though unspecified role in the ceasefire.
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Þau hlutu Hönnunarverðlaun Ís­lands - Vísir
Hönnunarverðlaun Íslands voru veitt í þrettánda skipti í veislusalnum Grósku. Miðstöð hönnunar og arkitektúrs stendur að verðlaununum í samstarfi við ...
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
📅 05.11.2026 👁️ 2
Meirihluti á framfærsluaðstoð borgarinnar með erlent ríkisfang
Rúm 63% þeirra sem voru á framfærsluaðstoð Reykjavíkurborgar á síðasta ári eru með erlent ríkisfang.Þar af eru flestir Úkraínumenn. Þar á eftir koma P...
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Sagði af sér rétt áður en hann var á­kærður fyrir embættisbrot - Vísir
Bankinn, sem heitir Ueno Bank, hefur fryst sparnað milljóna íbúa Paragvæ og í kjölfarið hafa fjölmargir mótmælt á götum landsins. Samkvæmt Reuters hef...
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 1
Aug­ljós­lega að undir­búa forsetaframboð - Vísir
J.D. Vance varaforseti Bandaríkjanna birti langa yfirlýsingu á samfélagsmiðlinum X þar sem hann sagði Íransstríðið vera ástæðu þess að Repúblikanar tö...
Bomb hoaxes: Messages reveal how threat was passed on by air traffic control
📅 05.11.2026 👁️ 1
Bomb hoaxes: Messages reveal how threat was passed on by air traffic control
BBC Verify has been analysing messages after flights across Europe were targeted by fake bomb threats - the second such incident this week.
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
📅 05.11.2026 👁️ 2
Opnar sig um það hryllilega sem Playboy-kóngurinn vildi að hún gerði með tvíburasystur sinni
Tvíburasysturnar Karissa Shannon og Kristina bjuggu í tvö ár í Playboy-setrinu með stofnanda vörumerkisins, Hugh Hefner. Á þessum tíma reyndi Hefner í...
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
📅 05.11.2026 👁️ 1
Brá sér á klósettið á Hvolsvelli – Þegar hann kom til baka var bíllinn horfinn
Karlmanni, sem skrapp á salerni á bensínstöð á Hvolfsvelli, brá í brún þegar hann kom aftur út en þá hafði ferðafélagi hans ekið burt á bílnum hans. S...
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
📅 05.11.2026 👁️ 3
Þrjátíu ár frá slysinu sem hafði afdrifaríkar afleiðingar fyrir Guðmund Inga
Guðmundur Ingi Kristinsson, fyrrverandi ráðherra og þingmaður utan flokka, rifjaði upp alvarlegt umferðarslys sem hann lenti í fyrir nákvæmlega 30 áru...
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
📅 05.11.2026 👁️ 2
Verktaki sem Kópavogsbær krefur um milljarða er í greiðslustöðvun
Kópa­vogs­bær sækir full­ar heimt­ur vegna van­efnda verk­taka við bygg­ingu Barna­skóla Kárs­ness. Svona hljóðaði yfirskrift fréttatilkynningar frá K...
Forsetinn segir af sér
📅 05.11.2026 👁️ 3
Forsetinn segir af sér
Forseti Paragvæ, Santiago Pena, hefur tilkynnt að hann segi af sér. Þetta gerir hann eftir að seðlabanki landsins tók stærsta banka landsins yfir. Um ...
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
📅 05.11.2026 👁️ 2
Sprengjuhótun í tölvupósti til Hörpu
Tónlistar- og ráðstefnuhúsið Harpa fékk sprengjuhótun í tölvupósti í dag. Svanhildur Konráðsdóttir, forstjóri Hörpu, staðfesti það í samtali við frétt...
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
📅 05.11.2026 👁️ 1
British man with Ebola in DR Congo arrives in UK for treatment
The UK government says there are "well-established procedures for dealing with cases like this" and the risk to the public remains low.
British doctor infected with Ebola in DR Congo being treated at London hospital
📅 05.11.2026 👁️ 2
British doctor infected with Ebola in DR Congo being treated at London hospital
The doctor tested positive in DR Congo, where there is an outbreak. The government says the risk to the public remains low.
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
📅 05.11.2026 👁️ 3
Henry Nowak's killer has sentence increased to 25 years
Judges ruled Vickrum Digwa's original term was unduly lenient and refused his bid to have it cut.
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
📅 05.11.2026 👁️ 3
Má búast við að matvælaverð hækki á næstunni
Veðurfyrirbærið El Niño gæti valdið verulegum truflunum á landbúnaðarframleiðslu á næstu mánuðum. Þetta gæti orðið til þess að matvælaverð hækki til m...
Þorgerður Katrín styður Daða Má
📅 05.11.2026 👁️ 2
Þorgerður Katrín styður Daða Má
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra og formaður Viðreisnar lýsti á Alþingi í dag yfir fullum stuðningi við Daða Má Kristófersson fjármála...
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
📅 05.11.2026 👁️ 2
Táragasi beitt í Lyon - hundruð þúsunda mótmæla í Frakklandi
Fjöldamótmæli voru boðuð í yfir 70 borgum í Frakklandi í dag. Til átaka kom milli mótmælenda og lögreglu í nokkrum borgum.Verkalýðsfélagið CGT, sem er...
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
📅 05.11.2026 👁️ 2
Russell Brand found guilty of rape and sexual assault
Brand is told to expect a prison sentence "of some length" and faces more rape allegations, it can now be reported.
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
📅 05.11.2026 👁️ 3
Inga máluð eins og dýr­lingur á kaffi­stofu kennara - Vísir
Það kann að minna á einræðisríki að ráðherra sé sýndur í guðatölu. Og helgimyndadýrkun er heldur ekki leyfð undir lúterskri trú þjóðkirkjunnar. Engu a...