Þýskur læknir hefur verið dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir að hafa myrt 15 sjúklinga sína. Grunur er um að fórnarlömb hans séu mun fleiri.
Læknirinn, sem starfaði við líknarlækningar, er 41 árs gamall og frá Berlín. Hann var í dag dæmdur í lífstíðarfangelsi fyrir hafa myrt tólf konur og þrjá karla frá september 2021 til júlí 2024.
Fórnarlömb læknisins voru á aldrinum 25 til 94 ára. Samkvæmt málsgögnum voru þau öll í líknandi meðferð á hans vegum. Í heimsóknum á heimili sjúklinganna gaf læknirinn þeim banvæna blöndu af róandi lyfjum án þeirra samþykkis sem dró þau til dauða á örfáum mínútum.
Læknirinn játaði sök fyrir dómi. Hann sagðist hafa sannfært sjálfan sig að með gjörðum sínum væri hann að hlífa fórnarlömbunum við þjáningum og veikindum. Hann sagðist jafnframt hafa beðist afsökunar á öllum þeim sársauka sem hann hefði valdið.
Þrátt fyrir sakfellinguna í dag er rannsókn þýskra yfirvalda ekki lokið. Læknirinn er grunaður um að hafa myrt enn fleiri sjúklinga og vinna saksóknarar nú að rannsókn 76 annarra mála sem gætu tengst honum. Verði hann sakfelldur í fleiri málum gæti hann talist einn skæðasti raðmorðingi í sögu Þýskalands.