Ákveðið var að kalla til þyrlunnar þar sem það hefði krafist erfiðs burðar, segir Ásgeir Erlendsson upplýsingafulltrúi Gæslunnar. Meiðslin eru ekki alvarleg að sögn Ásgeirs.
Þyrlan var á staðnum þegar við náðum tali af Ásgeiri og verður hinn slasaði fluttur á sjúkrahús í Reykjavík til aðhlynningar.