Þurfa að fækka starfsmönnum vegna úrsagnar Guðmundar
Brotthvarf Guðmundar Inga Kristinssonar, þingmanns og fyrrverandi ráðherra, úr Flokki fólksins felur það í sér að starfsmönnum flokksins fækkar um einn.
„Það lá alveg fyrir,“ segir Heimir Már Pétursson, framkvæmdastjóri þingflokks og upplýsingafulltrúi Flokks fólksins, sem var á þingflokksfundi þegar náðist í hann og sagðist ekki geta tjáð sig. „Það fækkar um einn hjá okkur og fjölgar hjá Framsókn.“
Flokkarnir mega ráða sér starfsfólk á kostnað Alþingis út frá þingmannafjölda hvers flokks. Eftir að Guðmundur Ingi heltist úr lestinni hjá Flokki fólksins breyttist þessi útreikningur Framsókn í hag.
Framsóknarflokkurinn má því ráða sér nýjan starfskraft. Annar af tveimur núverandi starfsmönnum Framsóknar er Lilja Dögg Alfreðsdóttir, formaður flokksins, sem var tímabundið ráðin hjá þingflokknum.
Ekki liggur fyrir hver mun láta af störfum hjá Flokki fólksins.