Brynjar Leó Hjartarson var undir lok síðasta mánaðar dæmdur til þriggja ára fangelsisvistar fyrir að nauðga fjórtán ára stúlku og stuðla að því að hún kæmi sér undan valdi og umsjá barnaverndarnefndar. Hann var þá tvítugur.
Brynjar Leó var sakfelldur fyrir að hafa haft samræði og önnur kynferðismök við stúlkuna í fjölda skipta þegar hún var fjórtán ára. Hann beitti hana ólögmætri nauðung og nýtti sér yfirburði sína sökum aldurs- og þroskamunar og þess að stúlkan var háð fíkniefnum og lyfjum.
Hann var einnig dæmdur til að greiða stúlkunni 2,5 milljónir króna í bætur.
Brynjar Leó neitaði sök. Hann sagðist hafa talið að stúlkan væri eldri en hún var og kvaðst ekki hafa vitað að hún væri að strjúka úr fóstri. Skilaboð frá lögreglumanni til Brynjars Leós staðfestu að hann var upplýstur um að hún væri fjórtán ára og að hún hefði strokið úr fóstri.
Samkvæmt dóminum var Brynjar Leó margsaga um samskipti sín og stúlkunnar og hversu mikið hann hefði vitað um aðstæður hennar og aldur. Framburður stúlkunnar þótti trúverðugur og fékk stoð í gögnum lögreglu og barnaverndar auk sums þess sem Brynjar gaf sjálfur skýrslu um.
Brynjar hefur verið í neyslu síðan hann var tólf ára og síðustu árin ýmist verið heimilislaus eða búið á heimili og stundum búið í tjaldi, að því er kemur fram í dóminum.
Dómari sagði að brot Brynjars hefðu beinst að lífi, heilsu og velferð stúlkunnar á löngu tímabili, hann hefði brotið gegn henni á grófan hátt og engu skeytt um hana. Þess í stað hefði hann látið eigin hagsmuni alfarið ráða ferðinni og nýtt sér stúlkuna á ófyrirleitinn hátt.
Dómurinn var kveðinn upp 30. apríl. Mannlíf greindi fyrst miðla frá honum í gær.