Þriðji maðurinn í gæsluvarðhald
Lögreglan fór fram á það í gærkvöldi að þriðji einstaklingurinn yrði hnepptur í gæsluvarðhald vegna rannsóknar á andláti manns í Kópavogi. Dómari féllst á það en fyrir höfðu tveir aðrir verið úrskurðaðir í varðhald vegna málsins.
Þriðji maðurinn var í gær úrskurðaður í gæsluvarðhald vegna rannsóknar lögreglu á andláti manns í Kópavogi. Gæsluvarðhaldsúrskurðurinn gildir til 14. ágúst í tengslum við málið.
Í tilkynningu lögreglu vegna úrskurðarins er sérstaklega tekið fram að viðkomandi sé erlendur ríkisborgari.
Fyrr um daginn höfðu tveir menn, annar íslenskur, hinn erlendur ríkisborgari, verið úrskurðaðir í gæsluvarðhald grunaðir um að hafa ráðist á mann í Kópavogi á fimmtugsaldri. Annar maðurinn var úrskurðaður í varðhald til 21. ágúst en hinn til 17. ágúst.
Sá lést af sárum sínum eftir árásina.