Hæstiréttur hefur dæmt Þorstein Hermann Þorbjörnsson í 14 ára fangelsi fyrir að svipta sambýliskonu sínu lífi á heimili þeirra í Naustahverfi á Akureyri í apríl árið 2024.Miklir áverkar voru á konunni sem hafði þolað grimmilegt ofbeldi af hálfu Þorsteins. Í Héraðsdómi Norðurlands eystra var hann hins vegar ekki sakfelldur fyrir manndráp heldur fyrir ofbeldi í nánu sambandi sem leiddi til dauða. Var hann dæmdur í 12 ára fangelsi. Í Landsrétti var hann hins vegar sakfelldur fyrir manndráp af ásetningi og dæmdur í 16 ára fangelsi.
Þorsteinn dæmdur í 14 ára fangelsi í Hæstarétti