Ljóst er að umræðan vegna þjóðaratvæðagreiðslunnar um áframhald aðildarviðræðna við Evrópusambandið er orðin á köflum ansi svæsin. Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir utanríkisráðherra hefur birt nýtt myndband þar sem hún bregst við svívirðingum og óhróðri í hennar garð vegna atkvæðagreiðslunnar. Grímur Atlason framkvæmdastjóri Geðhjálpar hefur fylgt fordæmi hennar og sagt frá svívirðingum og beinlínis lygum sem hann, eiginkona hans og dóttir þeirra hafa orðið fyrir vegna stuðnings síns við að aildarviðræður hefjist á ný.
Þorgerður Katrín og Grímur opinbera óhróðurinn og svivirðingarnar - Spjótum beint að börnum þeirra