Þrátt fyrir að skýjahula hafi aðeins spillt upplifun þegar sólmyrkvi gekk yfir landið í síðustu viku var stundin engu að síður eftirminnileg. Til að tryggja að upplifunin varðveitist um ókomna tíð hefur Þjóðminjasafnið hafið söfnun á frásögnum landsmanna, bæði af myrkvanum í ár og síðasta almyrkva sem var árið 1954.
Sigurlaug Dagsdóttir, þjóðháttafræðingur hjá Þjóðminjasafninu, segir hugmyndina hafa kviknað þegar fólk fór ósjálfrátt að rifja upp myrkvann frá 1954 í aðdraganda þess nýlegasta.
„Þá datt okkur í hug að það væri um að gera að safna þeim frásögnum og minningum þar sem að það fólk er að verða fullorðið og við vildum ná þessu áður en það fenndi fyrir þessar minningar.“
Þótt ýmis gögn séu til um myrkvann 1954 hefur persónulegri reynslu fólks og upplifunum aldrei verið safnað með þessum hætti.
„Það er gaman að fá svona upplifanir og persónulega reynslu fólks af almyrkva og deildarmyrkva og þær frásagnir sem við höfum þegar fengið inn eru mjög áhugaverðar. Bæði allt frá því að vera lýsing á sterkri upplifun í jafnvel hræðslu hjá þeim börnum sem vissu ekki alveg hvað var að fara að gerast,“ segir Sigurlaug.
Áhugasamir geta lagt sínar sögur til málanna á vefsvæðinu Sarpur.is, sem er menningarsögulegur gagnagrunnur safna á Íslandi.