Sveitarstjórn Norðurþings ákvað að endurnýja ekki samning við Félag eldri borgara á Raufarhöfn um rekstur húsnæðisins Breiðabliks, sem hefur þjónað sem félagsmiðstöð eldri borgara í bænum. Samningur Norðurþings við eldri borgarana rann út í janúar. Félag eldri borgara telur að þar með sé sveitarfélagið ekki að sinna lögboðnum skyldum varðandi félagsstarf aldraðra.
„Við erum ekki að fá neinn tilstyrk eða samtal eða hvorki eitt né neitt í stuðning við okkar óskir og höfum engan hitt og erum ekki látin vita af neinu. Þetta hefur verið bagalegt fyrir okkur. Þetta veldur okkur tilfinningalegu óöryggi, þetta er erfitt fyrir okkur og meðlimi félagsins og alla íbúa bæjarins,“ segir Kristjana Bergsdóttir, formaður Félags eldri borgara á Raufarhöfn.
Húsið Breiðablik var byggt 1955 og gert upp að miklu leyti 2020, árið sem Félag eldri borgara eignaðist það. Árið 2021 gerði félagið samning við Norðurþing um rekstrarstyrk á húsinu, þ.e. hita, rafmagn og fasteignagjöld. Heildarupphæð samningsins var 75.000 krónur á mánuði, eða um 900.000 á ári, og fór stór hluti þess í fasteignagjöld aftur til Norðurþings.
Sveitarstjórnin uppfyllir allar sínar skyldur
Í svari sveitarstjóra Norðurþings við fyrirspurn fréttastofu segir að sveitarfélagið styrki Félag eldri borgara á Raufarhöfn um 285.000 krónur í ár og sé nýbúið að ráða starfsmann til þess að sinna félagsstarfi aldraðra. Ekki séu nein lög brotin þó svo að það megi færa fyrir því rök að fyrstu mánuði ársins hafi sveitarfélagið geta gert betur. Það hafi einfaldlega tekið tíma að ráða starfsmann.
Grunnskólanum á Raufarhöfn var lokað í upphafi árs og vill sveitarfélagið að félagsstarf eldri borgara færist þangað enda þurfi sveitarfélagið að standa straum af rekstrarkostnaði hans. Árlegur rekstrarkostnaður við Breiðablik er 900.000 krónur. Kristjana segir þetta dapurt:
„Það verður ekki gerður samningur við okkur því sveitarfélagið hefur ekki efni á því að taka ábyrgð á rekstri á tveimur húsum.“