Bjarni Benediktsson, framkvæmdastjóri Samtaka atvinnulífsins, segir stjórnvöld ekki geta komist hjá því að kalla nýjar álögur réttum nöfnum.
Í Dagmálum Morgunblaðsins gagnrýnir hann skattabreytingar sem hann segir auka byrðar á atvinnulífið á sama tíma og háir vextir, verðbólga og sterk króna þrengi að samkeppnishæfni fyrirtækja.
„Skattabreytingar sem auka byrði fyrir einstaka atvinnugreinar á ekki að kalla neinu öðru nafni heldur en skattahækkanir,“ segir Bjarni og nefnir meðal annars veiðigjöld, samsköttun hjóna, hærri vörugjöld á bíla og afnám endurgreiðslu virðisaukaskatts á byggingarstað.
Hann segir lækkun vaxta vera stærsta hagsmunamál heimila og fyrirtækja um þessar mundir. Til þess þurfi að ná tökum á verðbólguvæntingum og skapa Seðlabankanum svigrúm til vaxtalækkana.
Bjarni segir jafnframt athyglisvert að hvorki Evrópusambandsaðild né upptaka evru hafi komið upp sem lausn á fundum SA um landið. Miklu frekar sé rætt um þætti sem standi nær, þar á meðal veikleika í íslenska vinnumarkaðsmódelinu og þörfina fyrir stöðugra rekstrarumhverfi.