„Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ - Vísir

„Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ - Vísir

„Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á“ - Vísir

„Fyrir það fyrsta þá held ég að við séum öll sammála um það bara og áttum okkur alveg á því og tökum alveg undir það að notkun á farsímum og slíkum tækjum er eitthvað sem við þurfum virkilega að horfa til, hvað eigum við að segja, bara passa upp á það að við séum að nýta þau á rétta staði og í réttum tilgangi,“ segir Magnús en rætt var við hann í Bítinu á Bylgjunni um málið.

Hann segir það skipta máli hvernig það er gert og það sem Kennarasambandið hafi viljað benda á sé að það eigi ekki að búa til ásteytingarsteina sem koma niður á samstarfi kennara við krakkana. Hann segir að það gæti orðið erfitt að útfæra algjört frí.

Mennta- og barnamálaráðuneytið birti í síðustu viku í Samráðsgátt stjórnvalda drög að reglugerð um notkun síma og snjalltækja í grunnskólum. Reglugerðin er til umsagnar til 8. júlí. Þegar fréttin er skrifuð hafa ellefu skilað inn umsögn. Þá samþykkti borgarstjórn að fela skóla- og frístundasviði að innleiða símafrí í grunnskólum Reykjavíkur haustið 2026.

Þar segir til dæmis Björn Gunnlaugsson, skólastjóri í Laugarnesskóla, að þau sem starfi innan skólakerfisins eigi ekki í neinum vandræðum með að setja reglur um síma í skólunum. Í umsögn sinni bendir hann á nýlega skýrslu sem fjallar um álag í skólastarfi og bendir á að þar er aðeins einu sinni talað um símanotkun barna.

„Það er einfeldningsleg tálsýn að ef símar hverfi muni öllum börnum og unglingum sjálfkrafa og tafarlaust líða betur og samskipti þeirra verða eins og í aldingarðinum Eden,” segir hann í umsögn sinni og að reynslan sýni auk þess að ekki verði hægt að framfylgja væntanlegum reglum ráðherra því innleiðingu muni ekki fylgja neitt fjármagn.

Sjá einnig: Kennarar óttast fram­kvæmd símafrís

„Það er reyndar kannski allt í lagi, því í drögunum er skýr heimild skólastjóra til að veita undanþágur frá símabanni og ugglaust munu skólastjórar verða fljótir að grípa til þess þegar ekkert fjármagn berst fyrir geymsluskápum eða gegnumlýsingartækjum og kennarar afþakka þá aukavinnu að eiga að gera líkamsleit á börnum og unglingum,“ segir hann í umsögn sinni.

Aðrar umsagnir gagnrýna til dæmis skort á umfjöllun um frístund á meðan aðrir fagna tillögunni.

Þörf á að skoða símanotkun en ekki stærsta vandamálið

„Við getum alveg sagt að við teljum að við séum á þeim stað að síminn sé ekki að valda okkur vandræðum inni í skólastofunni,“ segir Magnús og að þetta skref, að leyfa hann ekki í húsnæðinu, muni þýða að það þurfi að setja nýtt vinnulag og útstöðvar sem er hætta á að skapi einhvern núning milli krakkanna og kennara.

Hann segir nauðsynlegt þegar miðlægar reglur eru settar að hver skóli geti útfært þær. Slíkar reglur hafi víða verið settar í samráði við nemendur og það sé mjög víða fínn rammi um símanotkun.

„Núna er verið að tala um til dæmis bara það að það eigi að setja upp skápa til dæmis þar sem skólanum er gert að geyma þessi tæki, sem eru náttúrulega mörg hver ansi dýr. Þetta er kannski dýrasta tækið sem barnið á,“ segir hann og að þá þurfi einhver að hugsa um skápinn og svo bendir hann á að það hafi einfaldlega ekki verið venja í skólum á Íslandi að það sé verið að leita í töskum eða fötum barna.

„Þannig að þetta þarf að verða verkefni sem krakkarnir verða hluti af svo við séum ekki að búa til einhvern ágreining um að setja símann inn í skápinn eða fara að sjá hvort síminn sé í vasanum eða hvernig þetta allt verður. Þannig að þetta verður svona útfærsluatriði sem við verðum þá bara núna að vona að við getum einhvern veginn sest yfir og gert vel.“

Það sé alltaf áskorun að búa til ramma þegar reglur koma annars staðar frá en hann segist trúa að það verði hægt.

„Ég hef svo sem alveg sagt að mörgu leyti, ef við ætlum að fara þessa leið, þá hef ég alveg höfðað til foreldra að það geti skapað ákveðin vandkvæði þegar síminn er ekki leyfður í skólanum. Þá væri nú kannski bara ekki úr vegi að síminn væri geymdur heima meðan á skóladeginum stendur. Það væri kannski svo lausn sem væri rétt eins og best í einhverjum tilvikum.“

Samtökin Diabetes Íslands, Sykursýkissamtök Íslands, benda í sinni umsögn á stöðu barna með sykursýki af tegund 1 og annarra barna sem nota síma og snjalltæki sem hluta af læknisfræðilegri meðferð sinni.

Verði að vera leyfi fyrir undanþágum

Magnús segist treysta á að það verði hægt að gera undanþágur fyrir börn sem eru með sjúkdóma eða greiningar sem þurfa símann til að hjálpa sér. Auk þess sé fjöldi barna í skólakerfinu sem talar ekkert tungumál sem kennarar kannski skilja.

„Við erum líka með mikið af börnum sem eru bara að tala tungumál sem enginn okkar skilur og þau hafa fengið að nota Google Translate sem bara akkúrat tæki inn í skólastarfið. Mér finnst það nú alveg einhvern veginn liggja í augum uppi að við förum ekki að lenda í því að gera einhverja hluti sem að bara skaða þessa einstaklinga,“ segir hann og að hann telji að þó svo að það hafi verið innleitt símafrí í ákveðna skóla hafi verið gerðar undanþágur í slíkum tilfellum.

Magnús segir að sem samfélag þurfi allir að horfa til vanda sem símarnir geta skapað og þannig ættu fullorðnir mögulega líka að geyma sína síma annars staðar á vinnutíma. Það grasseri ýmislegt á samfélagsmiðlum og það þurfi að gæta að því en það þurfi samt að passa að fólk telji ekki að með því að innleiða símafrí í skólum sé það einhvers konar endastöð fyrir alls konar vandamál.

Börnin séu í skólanum í sex til sjö tíma en svo þurfi þá að passa þau að sama skapi heima þegar þau svo fá hann aftur í hendurnar.

Magnús segir flesta, ef ekki alla, skóla með einhverjar reglur um símanotkun og síminn sé ekki stærsta vandamálið í skólastofunni. Sumir kennarar nota tækin í skólunum.

Magnús segir kennarasamfélagið bíða spennt eftir því að stjórnvöld setji sig inn í mál sem þau telja skipta töluvert meira máli en símafrí svo að skólastofan virki.

„Þú talar um námsgögn, við höfum bent á til dæmis hópastærðir, verkefni sem tengjast því að krakkarnir eru bara mjög ólíkir, hóparnir eru ólíkir, það eru hlutir þarna inni sem við myndum vilja að væri byrjað á og við treystum bara á að þetta sé bara fyrsta skrefið,“ segir hann og að þau telji að það eigi frekar að horfa til aðgerða sem snerta nemendur inni í skólarýminu.

„Við viljum bara að við einbeitum okkur svolítið að því hvernig við getum gert hvert kennslurými og námsgögn og þetta allt betra. Á þeim enda viljum við byrja og ég bara skora á bæði ráðuneytin og sveitarfélögin sem eru í þessu, að þetta verði þá bara fyrsta skrefið í því hvernig við ætlum að gera þetta. Þar er akkúrat einhvers konar samtal alltaf að mínu viti miklu gáfulegra heldur en að við séum að kallast á með einhverjum miðstýrðum eða miðlægum ákvörðunum sem að er ekkert endilega það sem virkar,“ segir hann og að það eigi að leyfa kennurum og nemendum að búa í sameiningu til það umhverfi sem þau vilja.

Hægt er að hlusta á viðtalið að ofan í heild sinni.

#dýrasta #kannski #sem #tækið #þetta


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262899348d/-thetta-er-kannski-dyrasta-taekid-sem-barnid-a-

📰 Aðrar fréttir

Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
📅 25.09.2026 👁️ 1
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
Rangfeðraður maður telur sig vita hver raunverulegur faðir hans er. Sá maður er þó látinn sem flækir málin. Sá rangfeðraði hefur höfðað mál til að fá ...
Breiðholtsbraut lokað á morgun
📅 25.09.2026 👁️ 1
Breiðholtsbraut lokað á morgun
Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.Lokað...
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
📅 25.09.2026 👁️ 1
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Sa...
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem ...
Olíuleki á Seltjarnarnesi
📅 25.09.2026 👁️ 1
Olíuleki á Seltjarnarnesi
Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjó...
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
📅 25.09.2026 👁️ 1
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt...
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
Guðmundur Ingi fór ítarlega yfir aðdraganda og eftirmál afsagnar sinnar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra í Reykjavík síðdegis. Guðmundur sagði ...
Húsbíll fauk út af - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Húsbíll fauk út af - Vísir
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af ve...
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
📅 25.09.2026 👁️ 1
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
The prime minister told the BBC an early poll would throw the country into a "backward-looking process".
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 2
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 2
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 2
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 2
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 2
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Á­kærðir fyrir að frelsisvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Á­kærðir fyrir að frelsissvipta mann og nauðga með röri - Vísir
Þetta kemur fram í ákæru sem Vísir fékk afhenta að þingfestingu málsins lokinni, en þinghald í málinu er lokað og því hefur ákæran ekki fengist afhent...
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
📅 25.09.2026 👁️ 2
Umsátur í Úkraínu – Hungur vofir yfir Oleshky
„Gúgglið Oleshky. Það er umsátur um bæinn og þar er mannúðarkrísa. Það berast fregnir af því að fólk svelti og fái ekki mannúðaraðstoð, fái ekki mat e...
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Laug um að Jay-Z hefði nauðgað henni - Vísir
Konan lagði fram ákæru árið 2024 þar sem hún sakaði Jay-Z og Sean Combs, betur þekktur sem Diddy, um að hafa byrlað henni og nauðgað í veislu eftir að...
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fundu um­fangs­mikla kannabisrækt í Bolungar­vík - Vísir
Einnig var hald lagt á búnað sem tilheyrði ræktuninni. Húsleitin mun hafa verið framkvæmd vegna gruns um að verið væri að rækta kannabisplöntur í húsi...
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sveinn komst við og fékk ryk í augað - „Þá kom einlægasta og fallegasta bros ever“
Lífið getur stundum verið fallegt í hversdeginum og þetta upplifði Sveinn Waage, leiðsögumaður með meiru, í vikunni þegar hann var djúpt snortinn af f...
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
📅 25.09.2026 👁️ 2
39 missa vinnuna hjá LS Retail, þar af 17 á Íslandi
Hugbúnaðarfyrirtækið LS Retail hefur sagt upp 39 starfsmönnum vegna skipulagsbreytinga. Af starfsmönnunum sem sagt var upp starfa 17 á Íslandi.LS Reta...
Frey sagt upp hjá Eflingu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Frey sagt upp hjá Eflingu
Frey Rögnvaldssyni var sagt upp sem upplýsingafulltrúa Eflingar í morgun, framkvæmdastjóri stéttarfélagsins segir við Vísi að uppsögnin hafi ekkert að...
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hvalveiðimaður lýsir 84 klukkustunda vinnuviku í 3 mánuði samfellt – Katrín spyr hvort þetta standist lög um hvíldartíma
Maður sem starfaði á hvalveiðivertíð greinir frá því að unnið rúmlega 1000 klukkustundir á svokölluðum 8x8 vöktum, án fría. Katrín Oddsdóttir, lögmaðu...
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
📅 25.09.2026 👁️ 2
Special agents blood and urine test results stolen in FBI hack
Experts say the hack could leave agents vulnerable to scams, blackmail and targeted attacks.
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Nauð­syn­legt er að kjara­samningar haldi“ - Vísir
Landsþingið lýsir í ályktuninni yfir vilja til lækkunar verðbólgu og vaxta með því að halda hækkunum almennra gjaldskráa innan 2,5 prósenta á árinu 20...
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
📅 25.09.2026 👁️ 2
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld
Loftslagsskuldin er framtíðarskuld Rósa Björk Brynj­ólfs­dótt­ir, formað­ur Vinstri grænna, skrif­ar um kostn­að að­gerða­leys­is í lofts­lags­mál­um ...
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hafði ekkert með á­tök sundþjálfaranna að gera - Vísir
Greint var frá átökum á milli sundþjálfara á Vísi í síðustu viku þar sem sundþjálfari KR var handtekinn vopnaður hnífi grunaður um að hafa ráðist á ko...
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Bjóða upp á ein­hverja díla sem meika engan sens og undir­bjóða allt“ - Vísir
Það er kynlífsfræðingurinn og áhrifvaldurinn Sara Lind Annþórsdóttir sem opnar sig um mál umboðsskrifstofu á samfélagsmiðlinum TikTok. Samkvæmt heimil...
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Söguleg dómsmál í Hæstarétti: „Mér fannst brotið á mínum rétti“
„Að mínu mati var þetta brot á EES-samningnum um frjálsan flutning launþega á milli EES-ríkja,“ segir Anna Bryndís Einarsdóttir taugalæknir.Hún ræðir ...