„Þessi ofurheiti jarðvarmi er þarna, þetta er bara verkfræðileg áskorun“

„Þessi ofurheiti jarðvarmi er þarna, þetta er bara verkfræðileg áskorun“

„Þessi ofurheiti jarðvarmi er þarna, þetta er bara verkfræðileg áskorun“

Jóhann Páll Jóhannsson, umhverfis- orku og loftslagsráðherra, segir að samstarf um framkvæmd þriðju djúpnýtingarholu Iceland Deep Drilling Project sé ekki aðeins mikilvægt fyrir íslenska hagsmuni heldur hafi það mögulega þýðingu fyrir orkuskiptin á heimsvísu.

„Þetta er verkefni sem má í raun rekja allt aftur til aldamóta. En nú eru mjög spennandi skref framundan. Þetta snýst í grunninn um það að bora niður í jörðina, bora dýpra heldur en tíðkast hefur, til þess að beisla ofurheitan jarðvarma og vinna raforku úr honum. Þá er í raun veðmálið að með þessu sé hægt að skila margfalt meiri orkugetu úr hverri holu heldur en gengur og gerist í svona týpískri háhitanýtingu,“ segir Jóhann Páll í viðtali við fréttastofu.

Ráðherrann, Orkuveitan, Landsvirkjun og HS Orka undirrituðu í gær samstarfssamning um undirbúning og framkvæmd þriðju djúpnýtingarholunnar í Iceland Deep Drilling Project-verkefninu sem boruð verður á Nesjavöllum í árslok. Greint er frá samstarfssamningnum á vef Stjórnarráðs Íslands.

„Þetta er risastórt nýsköpunar-, þekkingar- og tækniverkefni sem ég bind miklar vonir við og mér finnst mikilvægt að stjórnvöld komi að,“ segir Jóhann Páll.

„Þetta er eitt af þeim verkefnum þar sem við komumst ekkert áfram nema við séum tilbúin að taka áhættu, gera mistök, læra af mistökunum, reyna aftur. Þetta er risastórt nýsköpunarverkefni en um leið liggur alveg fyrir að þessi ofurheiti jarðvarmi er þarna, þetta er bara verkfræðileg áskorun að beisla hann og vinna raforku úr honum. Við höfum gríðarlega trú á þessu þriðja djúpnýtingarverkefni,“ segir ráðherrann.

Nýr samningsrammi um verkefnið leggur áherslu á að þriðja djúpnýtingarholan verði sameiginlegur vettvangur fyrir rannsóknir, prófanir og þekkingarsköpun. Verkefnið hlaut nýverið 310 milljóna króna styrk úr Loftslags- og orkusjóði.

Á vef Stjórnarráðsins segir að tvær fyrri tilraunaholur IDDP hafi skilað mikilvægari þekkingu og fært íslenskan jarðhitageira nær því að geta hagnýtt ofurheitan jarðhita, þar sem hiti fer yfir 350-400 stig.

„Nú er stefnan sett á að bora þriðju holuna, IDDP-3, á Nesjavöllum í góðu samstarfi við Grímsnes- og Grafningshrepp, þar sem markmiðið er að prófa nýjar tæknilausnir og kanna hvernig megi nýta ofurheita gufu á öruggan og hagkvæman hátt til framtíðar.“

Tækifæri til að styrkja stöðu Íslands sem leiðandi afl í sjálfbærum orkulausnum

Jóhann Páll telur óhætt að fullyrða að hvergi í heiminum leiki jarðhiti eins veigamikið hlutverk og á Íslandi. Níu af hverjum tíu heimilum á Íslandi séu kynt með jarðhita, sem sé einstakt á heimsvísu.

„Það sem við erum að gera núna, og það sem ríkisstjórnin er staðráðin í að gera, er að verja ekki bara það sem áunnist hefur, verja ekki bara þennan gríðarlega árangur og þessa samkeppnishæfni Íslands á þessu sviði, heldur líka sækja fram og hugsa lengra og feta ótroðnar slóðir.“

Því sé ríkið að koma að djúpnýtingarverkefninu, Iceland Deep Drilling Project.

„Ef okkur tekst þetta, að virkja þennan ofurheita kraft í jörðinni og framleiða raforku úr honum, þá yrðu það risastór tíðindi fyrir ekki bara orkukerfi Íslands, ekki bara fyrir jarðhitanýtingu og tengda verðmætasköpun hérna á Íslandi, heldur líka fyrir orkuskiptabyltinguna í heiminum og fyrir loftslagsaðgerðir og svo framvegis. Þannig það er mikið í húfi.“

Íslendingar séu í einstakri stöðu til þess að ná árangri. Hér sé öflugur mannauður og hugvit.

„Þetta verkefni snýst einmitt um það, að beisla og vinna saman, stjórnvöld og stóru orkufyrirtækin og auðvitað háskólasamfélagið og til dæmis ÍSOR sem er nú í eigu ríkisins.“

Þá segir Jóhann Páll mikilvægt að sú þekking sem hér verði til geti nýst í öðrum löndum.

„Ég hitti einmitt núna síðast á COP orkumálaráðherra Nýja-Sjálands. Þeir eru í mjög svipaðri vegferð og að glíma við sams konar áskoranir og við. Við undirrituðum einmitt viljayfirlýsingu um samstarf á þessu sviði,“ segir Jóhann Páll.

„Þetta eru svipaðar áskoranir hjá jarðhitaþjóðunum sem eru að prófa sig áfram með þetta. Við getum lært hvert af öðru. En þá er einmitt svo mikilvægt að stjórnvöld vaki yfir verkefninu og tryggi að einkaleyfin skili sér og arðurinn og ávinningurinn skili sér, ýmist með beinum eða óbeinum hætti, til almennings. Þess vegna erum við með í þessu og viljum að stjórnvöld leiki ákveðið hlutverk.“

Orkufyrirtækin spennt fyrir möguleikunum

Á vef Stjórnarráðsins er haft eftir Heru Grímsdóttur, framkvæmdastýru Rannsókna og nýsköpunar hjá Orkuveitunni, að IDDP-3 sé lykilskref í djúpnýtingarvegferð Orkuveitunnar.

„Verkefnið snýst ekki bara um eina borholu heldur að þróa þá tækni og þekkingu sem þarf til að virkja ofurheitan jarðhita á næstu árum. Með öflugu samstarfi við stjórnvöld og önnur orkufyrirtæki getum við hraðað þessari vegferð og styrkt stöðu Íslands sem leiðandi afl í sjálfbærum orkulausnum á heimsvísu.“

Haft er eftir Bjarna Pálssyni, framkvæmdastjóra Vinds og jarðvarma hjá Landsvirkjun, að þrátt fyrir virka samkeppni á íslenska raforkumarkaðnum hafi jarðhitageirinn staðið saman að fjölmörgum rannsóknar- og þróunarverkefnum til að styðja við framþróun.

„Íslenska djúpborunarverkefnið, sem staðið hefur yfir í um aldarfjórðung, er eitt besta dæmið um slíkt samstarf.  Fyrsta holan í rannsóknarsamstarfinu, hola IDDP-1 sem Landsvirkjun boraði í Kröflu árið 2009, er enn heitasta jarðhitaholan sem boruð hefur verið í heiminum. Orkufyrirtæki þjóðarinnar ætlar áfram að leggja sitt af mörkum í þessu mikilvæga samstarfi,“ segir Bjarni.

Lilja Magnúsdóttir, framkvæmdastjóri auðlinda hjá HS Orku, segir að með áframhaldandi rannsóknum á ofurheitum jarðhita skapist tækifæri til að auka bæði afköst og verðmætasköpun.

„Verkefnið byggir á góðum árangri IDDP-2, sem boruð var á jarðhitasvæði HS Orku á Reykjanesi, þar sem í fyrsta sinn tókst að staðfesta ofurkrítískar aðstæður í jarðhitakerfi. Sá áfangi markaði tímamót og skapaði dýrmæta þekkingu og reynslu hér á Íslandi sem nú er nýtt markvisst við IDDP-3 til að þróa tæknina enn frekar,“ er haft eftir Lilju.

#jarðvarmi #ofurheiti #þarna #þessi #þetta


Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-05-10-thessi-ofurheiti-jardvarmi-er-tharna-thetta-er-bara-verkfraedileg-askorun-474670

📰 Aðrar fréttir

Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
📅 30.06.2026 👁️ 0
Um 95 milljónir í Evrópu upplifa 35 stig í dag
Um 95 milljónir Evrópubúa upplifa að minnsta kosti 35 stiga hita í dag, aðallega í austur- og suðurhluta álfunnar. Hitamet féll í Slóvakíu í gær þegar...
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
📅 30.06.2026 👁️ 0
Vilhelm Jónsson skrifar: Hundrað ára afmælið varð að bíða – sviðsljósið kallaði
Hundrað ára afmæli Landhelgisgæslunnar átti að vera stór stund. En afmælið varð að víkja. Sviðsljósið kallaði.Varðskipið Þór er loksins komið á siglin...
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Sveinn Andri gefur skýrslunum falleinkunn: „Algjör apaköttur“
Sveinn Andri Sveinsson lögmaður og verjandi Sindra Snæs Birgissonar telur ólíklegt að hryðjuverkamálinu svokallaða verði áfrýjað til Hæstaréttar, hann...
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
📅 30.06.2026 👁️ 0
Gagnrýna AI-samninga plötuútgefenda: „Byggt á störfum okkar án samþykkis okkar“
Félag íslenskra hljómlistarmanna (FÍH) og systursamtök þess á Norðurlöndum lýsa yfir alvarlegum áhyggjum vegna vaxandi AI-samstarfs plötuútgefenda við...
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
📅 30.06.2026 👁️ 0
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni
Mun fleiri tilkynningar um stafrænt ofbeldi og kynferðislega áreitni Til­kynn­ing­um um kyn­ferð­is­lega áreitni og sta­f­ræn kyn­ferð­is­brot fjölg­a...
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir
Umskurður á kynfærum stúlkna og kvenna er útbreiddari á Vesturlöndum en margir gera sér grein fyrir Ný rannsókn CSPII 2026 á FGM vekur mikilvægar spur...
Orðið á götunni: Marklaus gagnrýni Lilju – er vandinn ekki bara sá að Framsókn var hafnað í Alþingiskosningum?
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
„Ætlum að sækja að olíu­fé­laginu sem heldur þessari slátrun gangandi“ - Vísir
Þetta kemur fram í harðorðri færslu á samfélagsmiðlinum Instagram. Líkt og fram hefur komið er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsö...
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
📅 30.06.2026 👁️ 0
Svavar Pálsson ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar
Svavar Pálsson hefur verið ráðinn sveitarstjóri Húnabyggðar. Hann tekur við starfinu 1. október næstkomandi. Hann tekur við af Pétri Arasyni, sem hafð...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 0
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara til Persónuverndar - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag. Þar er rætt við Helgu Þórisdóttur forstjóra Persónuverndar sem staðfestir að málið sé komið til Persónuverndar...
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
📅 30.06.2026 👁️ 1
Bandero boðar atlögu að olíufélagi Hvals hf.
Skip Paul Watson-samtakanna á Íslandsmiðum, Bandero, ætlar að leggja til atlögu við olíufélagið sem þjónustar Hval hf. Þetta tilkynntu samtökin á samf...
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
📅 30.06.2026 👁️ 1
Segir gervigreindina ráða eina: „Samfélagsmiðlar munu hætta að vera til“
„Við erum í raun ekki skynsemisverur sem byggja á gagnrýninni hugsun. Við viljum vera það, en það gengur illa,“ segir Janis Sarts, forstöðumaður öndve...
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
📅 30.06.2026 👁️ 1
Two arrested over death of young man at commercial centre in Puerto Rico, Gran Canaria
Two people have been arrested in connection with the death of a young man at a commercial centre in Puerto Rico, in the municipality of Mogán, in the ...
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur auð­kýfingur særðist í sprengju­til­ræði í Móna­kó - Vísir
Sprengjan sprakk í inngangi byggingarinnar nærri landamærunum að Frakklandi um klukkan níu í gærkvöldi að staðartíma. Tveir fullorðnir og barn særðust...
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: USA security chief Markwayne Mullin 'danced a happy dance' after Iran exit
The United States' head of homeland security says he "danced a happy dance" when Iran's elimination from the World Cup was confirmed.
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lýsa yfir þungum á­hyggjum af notkun gervi­greindar við tón­listar­sköpun - Vísir
Þar er bent á að plötuútgefendur hafi farið að leyfa notkun á tónlistarsöfnum sínum í þjálfun gervigreindar og framleiðslu á tilbúnni tónlist, án þess...
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
📅 30.06.2026 👁️ 1
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara á borði Persónuverndar
Öryggisbrestur hjá héraðssaksóknara er til skoðunar hjá Persónuvernd. Nöfn fimm manna sem sættu sakamálarannsókn og málsnúmer birtust í kynningarmyndb...
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kaldi eða strekkingur á suð­vestan- og vestan­verðu landinu - Vísir
Lægð við suðausturströnd Grænlands sem mjakast til norðausturs beinir hægt vaxandi sunnanátt til landsins, að sögn Veðurstofu Íslands. Hún á að valda ...
Lægðaskil með samfelldri rigningu
📅 30.06.2026 👁️ 1
Lægðaskil með samfelldri rigningu
Lægð við suðausturströnd Grænlands beinir til okkar vaxandi sunnanátt og vætu með köflum. Þegar skil lægðarinnar ganga yfir má búast við samfelldri ri...
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
📅 30.06.2026 👁️ 1
Canary Islands Government issues wildfire alert due to extreme heat and weather conditions
The Canary Islands Government has activated a forest wildfire alert as the archipelago braces for its first significant heatwave of the year, with soa...
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Ýtukarl á átt­ræðis­aldri er enn að bæta vegina - Vísir
Í hópi tíu karla við vegagerð í Vatnsdal, sem við sögðum frá í kvöldfréttum Sýnar, er aldursforsetinn á stærðarinnar jarðýtu.Hann er úr Landeyjum og s...
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fann ástina og tók sénsinn í New York - Vísir
Klara Sól stofnaði fyrirtækið The Liminal Society og ætlar sér stóra hluti í lífinu. Hún er gift fyrirsætunni og meistaranemanum Chris Petersen og þau...
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
📅 30.06.2026 👁️ 1
Comparing Coastlines: Why chasing the sun past Gibraltar offers a completely different holiday vibe
If you’re choosing between a holiday on Spain’s Atlantic coast and one further round in the Mediterranean, it helps to know they’re not really interch...
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Reiðin magnast í Venesúela - Vísir
Breska ríkisútvarpið ræðir við fjölda Venesúelabúa sem bíða ýmist fregna eða taka þátt í leit af ástvinum sínum sem liggja enn undir rústum bygginga o...
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Með kylfur og mikið magn vímu­efna - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í dagbók lögreglu. Þar kemur fram að lögreglu hafi einnig borist tilkynning um þjófnað úr matvöruverslun á stöð 1 s...
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
📅 30.06.2026 👁️ 1
Wimbledon 2026: Serena Williams on Maya Joint match and return to tennis
For Serena Williams, everything and nothing has changed on her return to Wimbledon.
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
📅 30.06.2026 👁️ 1
Sex látnir eftir skotárás í Þýskalandi – Maður af tyrkneskum uppruna handtekinn
Sex manns létust í skotárás í bænum Stade í norðurhluta Þýskalands á mánudag. Fimm létust á vettvangi en sjötti einstaklingurinn lést síðar á sjúkrahú...
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Telur aðgerðarsinna hér heima vinna með Watson - Vísir
Þetta kemur fram í Morgunblaðinu í dag þar sem rætt er við Kristján. Líkt og kunnugt er er skip Paul Watson, Bandero, nú í íslenskri efnahagslögsögu o...
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
📅 30.06.2026 👁️ 1
TUESDAY WEATHER: Canary Islands face warnings for 40°C heat, calima and some strong winds
The Canary Islands are set for another day of intense summer weather today, Tuesday, with temperatures forecast to climb to 40°C in some areas, accomp...
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fjárfestingarfélagið orðið eins og lítill lífeyrissjóður á Íslandi
Um miðjan júní var sagt frá því í fréttatilkynningu að Bláa lónið og ferðaþjónustufyrirtækið Arctic Adventures ætluðu sér að sameinast. Ef af þessum s...
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
📅 30.06.2026 👁️ 1
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum
„Ólíklegt“ að aðgerðaáætlun um líffræðilega fjölbreytni nái markmiðum Nátt­úru­fræði­stofn­un tel­ur drög um­hverf­is-, orku- og lofts­lags­ráðu­neyt­...
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
📅 30.06.2026 👁️ 1
Rúmlega 400 drónum grandað yfir Rússlandi í nótt
Rússar skutu niður 419 úkraínska dróna í nótt. Frá þessu greinir rússneska varnarmálaráðuneytið.Aukinn kraftur hefur færst í árásir Úkraínumanna með l...
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
📅 30.06.2026 👁️ 1
Fær ekki að reka Cook úr bankaráði seðlabankans
Hæstiréttur Bandaríkjanna neitaði með fimm atkvæðum gegn fjórum að leyfa Donald Trump að reka Lisu Cook úr bankaráði bandaríska seðlabankans. Hæstirét...
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
📅 30.06.2026 👁️ 2
Pupil put in isolation booth for more than half a school year, BBC learns
The pupil's experience in a Yorkshire school highlights concerns about zero-tolerance behaviour policies.
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
📅 30.06.2026 👁️ 1
Angry citizens accuse Venezuelan government of negligence
People in areas devastated by twin earthquakes say they need more support from the government.
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
📅 30.06.2026 👁️ 1
Kínverskur milljarðamæringur dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum
Kínverski milljarðamæringurinn Guo Wengui var í gær dæmdur í 30 ára fangelsi í Bandaríkjunum. Í júlí 2024 var hann sakfelldur fyrir fjársvik, fjárkúgu...
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
📅 30.06.2026 👁️ 1
World Cup 2026: Julian Nagelsmann faces pressure as Germany bow out
Germany make a shock last-32 exit against Paraguay, losing a World Cup penalty shootout for the first time to pile pressure on boss Julian Nagelsmann.
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
📅 30.06.2026 👁️ 1
Úkraínskur ólígarki á meðal særðra eftir sprengingu í Mónakó
Þrír særðust, þar á meðal táningur, eftir að sprengja sprakk í íbúðarhúsnæði í Mónakó í kvöld.Heimildarmaður AFP segir einn hinna særðu vera Vadym Yer...
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
📅 30.06.2026 👁️ 2
Særún sigldi aukaferð til að fylla á vatnsbirgðir í Flatey
Ferjan Særún sigldi aukaferð til Flateyjar á Breiðafirði í kvöld til að flytja vatn til eyjarinnar. Breiðafjarðarferjan Baldur hefur sinnt vatnsflutni...
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
📅 30.06.2026 👁️ 1
Hæsti­réttur Banda­ríkjanna hafnar áfrýjunarbeiðni Trumps - Vísir
Árið 2023 var Trump gert að greiða Caroll fimm milljónir bandaríkjadala, sem samsvarar um 650 milljónum íslenskra króna, í skaðabætur. Áfrýjunardómstó...
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
📅 29.06.2026 👁️ 1
Stefna konu í Ástralíu vegna vangoldins námsláns upp á 21 milljón
Menntasjóður námsmanna hefur stefnt konu á fertugsaldri vegna gjaldfalinnar skuldar upp á meira en 21 milljón króna. Konan tók lánið árið 2009, lauk n...
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
📅 29.06.2026 👁️ 1
Chris Mason: Burnham revels on public stage but has little time to hammer ideas into shape
As a man who has held prime ministerial ambitions for years, Andy Burnham makes his dash for the door, political editor Chris Mason writes.
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Segir ekki til­efni til að endur­skoða lyfjaakstursmál síðustu ára - Vísir
Vilhjálmur Vilhjálmsson hæstaréttarlögmaður skoraði á ríkissaksóknara að endurskoða öll lögreglumál sem varða lyfjaakstur frá því að ný umferðarlög tó...
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vonar að samningurinn verði lóð á vogarskálarnar í friði í Palestínu
Mohammed Al-Amour efnahagsráðherra sótti ráðherrafund EFTA-ríkjanna hér á landi til að skrifa undir uppfærslu á landbúnaðarhluta fríverslunarsamnings ...
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
📅 29.06.2026 👁️ 1
Homes harder to sell as high mortgage rates frustrate buyers
Three in five homes listed for sale since January remain on the market, says property portal Zoopla.
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
📅 29.06.2026 👁️ 1
Vig­dís kíkti í kaffi til Krist­rúnar - Vísir
Kristrún deilir færslu um heimsóknina ásamt mynd af þeim tveimur meðal annars á Instagram-síðu sinni. Hún segir þær hafa farið um víðan völl yfir kaff...
Another UK heatwave could be on the way
📅 29.06.2026 👁️ 1
Another UK heatwave could be on the way
As parts of Europe continue to swelter in record temperatures, higher temperatures could develop again across the UK later this week, as Simon King ex...
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
📅 29.06.2026 👁️ 1
'We can't continue like this': Inquiry demands NHS maternity overhaul
An independent inquiry into England's maternity services has found "unacceptable racism and discrimination" is affecting patient safety.
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
📅 29.06.2026 👁️ 1
Dánarorsök barnastjörnunnar afhjúpuð og aðstandendur vara við fjáröflun kærastans
Leikkonan Daveigh Chase lést fyrir viku síðan, en hún var hvað þekktust fyrir að vera rödd Lilo í teiknimyndinni Lilo & Stitch og fyrir hryllingsmyndi...
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
📅 29.06.2026 👁️ 1
Árásarmaðurinn í Stade á staðnum vegna forsjárdeilu
Árásarmaður sem skaut sex manns til bana í þjónustumiðstöð í þýska bænum Stade í dag var þangað kominn til að ræða um forsjárdeilu.Maðurinn átti í dei...