Bók Gyrðis Elíassonar, Ótíð í víti, situr í efsta sæti Bóksölulista Félags íslenskra bókaútgefenda fyrir júlímánuð. Bókin var í öðru sæti listans í júní. Bryndís Loftsdóttir, framkvæmdastjóri Félags íslenskra bókaútgefenda, segir þetta ágæta áminningu til höfunda, þýðenda og útgefenda um mikilvægi fjölbreyttrar bókaútgáfu allt árið um kring.
Þessar bækur lásu landsmenn í júlí