„Menntamál á Íslandi hafa aldrei verið í verri höndum en þau eru í dag,” sagði grunnskólakennari þegar hann krafði Kristrúnu Frostadóttur forsætisráðherra svara í tengslum við stöðu menntamála, boðaðar breytingar á einkunnagjöf og fleira á opnum fundi á Selfossi í gær. Ráðherra sagði ekki hægt að komast áfram með breytingar í skólum nema að hafa kennarana með.
Már Ingólfur Másson, grunnskólakennari í Vallaskóla á Selfossi, kvaddi sér hljóðs á fundinum. „Ég er svolítið sár og svekktur yfir því að bæði Samfylkingin og Viðreisn, sem er ekki hér til að svara, hafa algjörlega skilað inn auðu í menntamálum. Menntamál á Íslandi hafa aldrei verið í verri höndum en þau eru í dag,” sagði Már.
Hann benti á breytingar á einkunnakvörðum grunnskóla sem hafi verið boðaðar án þess að útskýra þær, boðað símafrí í skólum sem líka sé óútskýrt og boðaðar samræmdar mætingareinkunnir án nánari útskýringa.
Kristrún Frostadóttir sagði að sér þætti leitt að heyra að þetta væri upplifun Más.
„Ég tek það bara til mín. Ég veit að þeim gengur mjög gott til í menntamálaráðuneytinu núna og mér finnst mjög leiðinlegt ef upplifun fólks er sú að það hafi ekki verið haft nægt samráð,” sagði Kristrún.
„Auðvitað er ekki hægt að komast áfram með svona breytingar nema að hafa kennarana með og ég get ekki verið að úttala mig um þetta allt hér. Már, við ættum bara að taka fund saman ef þú ert landlaus hægrikrati,” sagði Kristrún.