Margar skýringar eru á fylgisaukningu Sjálfstæðisflokksins í nýrri könnun Maskínu að sögn Guðrúnar Hafsteinsdóttur formanns flokksins. Mikil vinna hafi verið lögð í að efla grunnstarfsemi flokksins.
„Það skilaði sér mjög vel í sveitarstjórnarkosningunum og við komum þar út sem sterkasta stjórnmálaaflið,“ segir Guðrún í samtali við mbl.is og bendir á að árangur flokksins í sveitarstjórnarkosningunum hafi verið sá besti í tuttugu ár.
Segir heilt ár ekki hafa verið nýtt
Samkvæmt nýrri könnun Maskínu sem unnin var fyrir fréttastofu Sýnar er Sjálfstæðisflokkurinn með 22,7 prósenta fylgi og hækkar um rúm þrjú prósent milli kannana. Aftur á móti hefur stuðningur við ríkisstjórnarflokkana aldrei mælst lakari.
„Ríkisstjórnin er ekki að skila neinu, þær eru bara að skila auðu,“ segir hún.
„Við sjáum það til dæmis að í þessu vaxtalækkunarferli sem þær lofuðu þjóðinni erum við búin að missa heilt ár sem ekki hefur verið nýtt í nokkurn skapaðan hlut.“
Hundrað ára stefna
Hún segir Sjálfstæðisflokkinn hafa verið staðfastan í sinni stefnu sem reynst hafi vel í gegnum tíðina.
„Það sem við erum að segja skilar árangri, við erum ekki með nein ný vísindi. Efnahagstillögurnar sem við kynntum í vor byggjast í rauninni á stefnu flokksins sem lifað hefur í hundrað ár.“