Fyrri undankeppni Eurovision fer fram í Vín í Austurríki í kvöld. Mikill viðbúnaður er í miðborginni vegna þátttöku Ísraels.
Linda Karen Kettler starfar fyrir austurrísku sjónvarpsstöðina Servus TV sem sendir út fréttir frá keppninni. Að sögn Lindu er mikill titringur vegna þátttöku Ísraels - sem stígur á svið í kvöld.
„Ég sá þetta einmitt þegar ég var á leiðinni hingað sjálf. Ég fór í neðanjarðarlestinni og það eru öryggisverðir með tuttugu metra millibili og þetta er allt mjög dempað. Þetta er ekki það sem maður myndi búast við á tónlistarviðburði. Mér finnst það svolítið sláandi hvað tilfinningin í kringum þetta er pólitísk.“
Tilkynnt hefur verið um fjölda skipulagðra mótmæla, bæði af hálfu stuðningsmanna Ísraels og Palestínu. Linda vonast til þess að keppnin fari friðsamlega fram.
„Maður náttúrulega vonar að þetta fari nokkurn veginn friðsamlega og allt það. Maður býr í þessari borg og langar ekki að sjá eitthvað gerast en ég er nú samt með svolitlar áhyggjur af því að það sjóði upp úr. En eins og ég segi, vonandi ekki.“
Fyrri undankeppni Eurovision hefst klukkan nítján í kvöld og verður í beinni útsendingu á RÚV 2. Þulur er Guðrún Dís Emilsdóttir.