„Það er verið að dreifa at­hyglinni, það er verið að auka ó­vissu“ - Vísir

„Það er verið að dreifa at­hyglinni, það er verið að auka ó­vissu“ - Vísir

„Það er verið að dreifa at­hyglinni, það er verið að auka ó­vissu“ - Vísir

Fyrir tveimur vikum sléttum birtist frétt á Vísi þar sem ranglega var haft eftir utanríkisráðherra að hún hefði rætt mögulega undanþágu Íslands frá sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins við Rob Jetten forsætisráðherra Hollands. Ummælin vöktu athygli og birtust á annan tug frétta á þrettán dögum byggðar á misskilningnum. 

Þorgerður gerði ekki athugasemd við endurteknar frásagnir af samtali hennar og að hún væri sögð hafa rætt við Jetten fyrr en í gær. Siðareglur ráðherra kveða á um að ráðherra hafi frumkvæði að því að leiðrétta rangar eða villandi upplýsingar og misskilning eins fljótt og auðið er. Stjórnarandstæðingar hafa velt því upp hvort Þorgerður hafi gerst brotleg við reglurnar.

„Ef að ég ætti að elta allt það sem að er ekki satt eða ranglega haft eftir mér, að þá gerði ég nú lítið annað en það. Meginmálið er að fókusera á þetta verkefni, sem er þjóðaratkvæðagreiðslan.“

Þorgerður hefur tvo aðstoðarmenn auk upplýsingafulltrúa utanríkisráðuneytisins og starfsmanna þess. Hún segir aðstoðarmenn sína ekki alltaf viðstadda viðtöl og áhersla í ráðuneytinu hafi verið á þjóðaratkvæðagreiðsluna.

„Við erum bara upptekin við það að þjóðaratkvæðagreiðslan, að fólkið verði vel upplýst, að það verði ekki sett út í þetta kosmos, einhver óvissa, einhverjar rangfærslur og fleira.“

Þjóðaratkvæðagreiðslan fer fram í lok ágúst og spurt verður hvort hefja eigi að nýju viðræður við Evrópusambandið. 

„Þetta eru ekki kosningar um aðild að Evrópusambandinu, þetta eru ekki kosningar um aðlögun að Evrópusambandinu. Þetta er fyrsta skrefið, þetta er varfærið skref í þá veru, einmitt að ganga til samninga við Evrópusambandið.“

Þorgerður vísar til ummæla stækkunarstjóra og fiskveiðistjóra Evrópusambandsins um að tekið sé tillit til sérstakra aðstæðna umsóknarríkja. Hún segir sögu sambandsins sýna að ólíkar lausnir hafi náðst. 

„Saga Evrópusambandsins er einmitt áhugaverð í þeim efnum og sýnir fram á að það hefur verið hægt að fá bæði varanlegar sem tímabundnar lausnir, undanþágur og svo framvegis.“

Lesa má viðtal við Þorgerði Katrínu í lengra máli hér fyrir neðan.

Nú hefur komið fram að ranglega var haft eftir þér í frétt fyrir tveimur vikum. Hvers vegna var ekki gerð athugasemd við þetta fyrr?

„Já, ef ég ætti að elta allt það sem er ekki satt eða ranglega haft eftir mér þá gerði ég nú lítið annað en það. Meginmálið er að fókusera á þetta verkefni, sem er þjóðaratkvæðagreiðslan. Hún snýst um það hvort við eigum að hefja samningaviðræður að nýju, hún snýst um samningaviðræður, ekki um eitthvað allt annað. Þannig að það er það sem mér finnst skipta mestu máli en ekki þetta kannski þetta nöldur í sumum.“

Það kemur sumum spánskt fyrir sjónir að ráðherra með tvo aðstoðarmenn á bak við sig og heilt ráðuneyti geri ekki athugasemdir fyrr. Hvað viltu segja um það?

„Já, það er nú einfaldlega þannig að bæði það að sjálf er ég ekki að elta allar rangfærslurnar og síðan eru bara aðstoðarmennirnir ekki alltaf með mér þegar ég er í viðtölum, þannig er það nú bara og við erum bara upptekin við þjóðaratkvæðagreiðsluna, að fólkið verði vel upplýst, að það verði ekki sett út í þetta kosmos, einhver óvissa, einhverjar rangfærslur og fleira. Við erum bara að reyna að draga fram að þetta snýst um samningaviðræður. Það hafa mínir kollegar í útlöndum ítrekað sagt og ég var nú að fletta upp meðal annars opinberum skilaboðum fyrir einhverri viku síðan frá stækkunarstjóra ESB. Við vitum alveg hvað fiskikommissarinn sagði þegar hann kom hingað að samningaviðræður eru samningaviðræður og eðlilega er verið að líta til sérstakra aðstæðna hvers umsóknarríkis fyrir sig og það gildir um Ísland líka. Þannig að mér finnst bara áhugavert að sjá hvað tilteknir einstaklingar eru allt í einu orðnir svona litlir í sér. Við eigum að vera með kassann úti, við eigum að vera hugrökk. Við erum að fara í samningaviðræður og við vitum nákvæmlega hvað við viljum fá fram og ég vil draga fram sérstaka leiðsögn utanríkismálanefndar Alþingis þar sem hún dregur fram helstu samningsmarkmiðin, meðal annars á sviði fiskveiðistjórnunar, á sviði landbúnaðar, á sviði launamála og almenns vinnumarkaðar, á sviði loftslagsmála og svo framvegis og ég tala nú ekki um varnar- og öryggismál. Þannig að samningsmarkmiðin liggja fyrir og við eigum að fara að einbeita okkur að því að vera tilbúin ef og þegar þjóðin segir já.“

Skömmu eftir að leiðréttingin birtist í gær voru einhverjir farnir að benda á að mögulega væri þetta brot á siðareglum ráðherra. Hvernig þætti þér viðeigandi að brugðist væri við því?

„Eins og ég segi, ég er ekki að elta allar þessar rangfærslur. Ég væri þá bara ekki að gera annað og mér sýnist þetta koma einmitt frá hópnum og frá fólkinu sem var og er alltaf tilbúið til þess að stökkva á hvaða dellu sem sett er fram hverju sinni. Sameinumst nú um það að vera sterk þegar við komum að samningsborðinu, sama hvaðan við komum. Við erum að tala fyrir hagsmunum Íslands. Við erum að tala inn í framtíðina og við eigum að sameina okkar krafta þar, ekki, eins og ég segi, ekki vera að þessu nöldri og eftir atvikum rangfærslum líka.“

Aðeins svona meira um Evrópusambandið og þetta mál: Er annað mögulegt en að við verðum hluti af sameiginlegri sjávarútvegsstefnu Evrópusambandsins?

„Já, eins og ég segi, það hefur verið undirstrikað að þetta eru samningaviðræður og bæði fiskveiðikommissarinn og stækkunarstjórinn hafa sagt opinberlega að þegar er komið út í samningaviðræður þá er eðlilega tekið tillit til sérstakra áherslna og aðstæðna hjá hverju umsóknarríki. Ég ætla líka að segja að það er ákall mitt til þeirra sem eru svona á móti öllu þessu ferli: Ekki tala niður okkar stöðu, ekki tala niður okkar samningsstöðu. Við ætlum að verja íslenska hagsmuni, við ætlum að sækja fram. Þetta eru samningaviðræður og ég hefði nú haldið að við Íslendingar ættum að kunna að semja.“

Eins og þú segir, þetta eru samningaviðræður. Þú hefur sagt að sú staðreynd hafi kafnað í hávaða undanfarnar vikur. Umræðan snúist um getgátur, misskilning og útúrsnúninga. Hvað áttu við með því?

„Ja, bara þetta núna bara undanfarið. Ég held að það sé verið að reyna að láta þessa þjóðaratkvæðagreiðslu snúast um eitthvað allt annað heldur en hún í raun snýst um. Það er verið að dreifa athyglinni, það er verið að auka óvissu. Þetta er mjög einfalt. Þetta snýst um samningaviðræður, þetta snýst ekki, þetta eru ekki kosningar um aðild að Evrópusambandinu, þetta eru ekki kosningar um aðlögun að Evrópusambandinu. Þetta er fyrsta skrefið, þetta er varfærið skref í þá veru, einmitt að ganga til samninga við Evrópusambandið, vera með kassann út, draga fram okkar sérstöðu og sýna fram á það hversu mikilvægt er að allar líkt þenkjandi þjóðir á Vesturlöndum standi saman á þessum tímum sem nú eru og ég held einmitt að samstaða þjóða en líka samstaða innanlands um þessi mál ætti að vera nokkuð svona skiljanleg.“

Þú hefur talað um sérlausnir og mögulegar undanþágur. Er ekki eðlilegt að menn rýni í þau ummæli og velti fyrir sér möguleikum Íslands og hvað saga Evrópusambandsins sýnir að sé mögulegt í þeim efnum?

„Já, einmitt, saga Evrópusambandsins er einmitt áhugaverð í þeim efnum og sýnir fram á að það hefur verið hægt að fá bæði varanlegar og tímabundnar lausnir, undanþágur og svo framvegis. En enn og aftur: Ég undirstrika það að þetta eru samningaviðræður, samningsmarkmiðin, leiðarljósin eru komin út frá þinginu, frá meirihluta utanríkismálanefndar, þar sem við ætlum að tryggja okkar hagsmuni þegar kemur að fiskveiðistjórnun, landbúnaðarmálum, byggðamálum, umhverfismálum og varnarmálum, svo dæmi séu nefnd.“

Eins og þú bendir á, þetta eru samningaviðræður. Það samt, fólk ruglar samningaviðræðum, aðildarviðræðum, þetta eru lík orð. Er ekki skiljanlegt að fólk ruglist og velti þessu fyrir sér? Mér skilst að í þingsályktunartillögunni segi einmitt aðildarviðræður, en þetta eru samningaviðræður?

„Já, já, þetta eru samningaviðræður og það er alveg rétt hjá þér að fólk er bara að velta alls konar hlutum fyrir sér. En þeir sem bera mjög mikla ábyrgð á því að upplýsingar séu réttar og að það sé ekki verið að henda óvissu inn í dæmið eru meðal annars stjórnmálamenn í öllum flokkum. Ég bara ætla að skora á okkur öll sem erum í stjórnmálum að tala af yfirvegun, tala af raunsæi og tala um það sem raunverulega málið snýst um og þjóðaratkvæðagreiðslan snýst um samningaviðræður.“

Þú hjólaðir aðeins í Morgunblaðið um daginn. Hanna Katrín atvinnuvegaráðherra deildi færslu á Facebook í gær þar sem Sýn var sakað um að beita sér fyrir hagsmunum útgerðarinnar. Er þetta réttlætanlegt, að hjóla svona í fjölmiðla?

„Sko, ég vil undirstrika það að á öllum þessum fjölmiðlum eru afburðablaðamenn, yfirburðablaðamenn, en það eru líka og mín spjót hafa verið að beinast að Morgunblaðinu af því þeir hafa komið þeir blaðamenn nokkuð tæpitungulaust fram í þá veru að þeir vilja berjast gegn, þeir eru nei-arar og þess vegna verður fólk einfaldlega að vita hvaðan þeir koma þegar þeir eru að skrifa sínar fréttir. Mér finnst það bara heiðarleg nálgun en ég undirstrika og vil draga fram að fjölmiðlar eru sem aldrei fyrr mikilvægir, bæði í aðdraganda þessarar þjóðaratkvæðagreiðslu en líka bara almennt í heiminum. Það er mikil upplýsingaóreiða í gangi, þetta er mikið álag á fólki sem stendur í stafni, hvort sem það er í stjórnmálum í öllum flokkum eða ekki síður inni á fjölmiðlum og allt þetta kannski hvetur okkur til þess að líta í eigin barm og gæta þess að vanda sig og gera hlutina vel. Þú veist, síðan er það hitt bara sem að ég skil ekki af hverju menn vilja ekki sjá samning og ég skil ekki af hverju fólk er hrætt við það, hvaða hagsmuni er verið að verja þar? Er maður auðvitað að spyrja sig og það eru eðlilegar spurningar en spurningin í lok ágúst, hún er ósköp skýr, hún snýst um það: Hefja samningaviðræður að nýju? Já, eða nei og ég vonast til þess að með jáinu þá opnum við dyr, þá opnum við dyrnar að samningaborðinu. Og við Íslendingar, við erum bara töffarar þegar kemur að því að verja okkar hagsmuni.

Þessi mistúlkuðu ummæli. Þú talaðir um að hafa rætt við Hollendinga og aðra kollega. Hvaða Hollendingar voru þetta sem þú ræddir við og þegar þú talar um kollega, ertu þá að meina utanríkisráðherra eða aðra ráðherra, eða hverja ertu að tala um?

„Ég er alla jafna að tala um mína kollega sem eru utanríkisráðherrar og eftir atvikum líka varnarmálaráðherrar. Það eru svona helstu ráðherrarnir sem ég er í samskiptum við og líka náttúrulega sem þróunarráðherra en þetta eru þeir kollegar sem ég er í hvað mestum samskiptum við. Ég vona að okkur Íslendingum beri áfram gæfa til einmitt að byggja upp öflug tvíhliða sambönd og ég sé líka að sama hver niðurstaðan verður síðan í atkvæðagreiðslunni þá erum við búin að byggja upp gott net, gott tengslanet sem skiptir Íslendinga líka miklu máli á óróatímum sem við erum að upplifa. Það er ríkara sem aldrei fyrr að vestrænar líkt þenkjandi þjóðir standi saman um grundvallargildi sem við viljum gæta sérstaklega að. Lýðræði, frelsi, mannréttindi, friðhelgi landamæra og sjálfsákvörðunarrétt þjóða.“

Hefur einhver ráðherra eða ráðamaður hjá ESB eða annar lofað undanþágum frá sameiginlegum stefnum ESB eins og sjávarútvegsstefnunni?

„Eins og ég segi og ítreka aftur, Costas Kadis, fiskveiðikommissarinn, kom hérna og sagði svipað og til að mynda stækkunarstjórinn sagði í opinberum skilaboðum sínum fyrir nokkrum vikum að þetta væru samningaviðræður. Það er eðlilega tekið tillit til séraðstæðna umhverfis hvers ríkis, umsóknarríkis. Og það er farið út í slíkar samningaviðræður með það í huga. Við Íslendingar vitum það og erum með leiðarljósin frá þinginu. Við vitum alveg hvað það er sem við viljum fá í gegn í svona samningaviðræðum. Það á enginn að vera hræddur við að nálgast það undirstrikað, þetta eru samningaviðræður. Þetta undirstrikaði líka franski utanríkisráðherrann bara núna í upphafi vikunnar þar sem hann sagði: Síðan Ísland byrjaði 2009-2010 á þessari vegferð að þá hefur heimurinn breyst, Evrópusambandið hefur breyst, það hefur bara mjög margt breyst og það er eðlilegt að við semjum út frá því umhverfi sem við lifum í í nútímanum en ekki einhverju sem var.“

Eins og við höfum komið svo sem nokkrum sinnum inn á er komin ákveðin svakaleg harka í þessa umræðu um viðræðurnar. Áttu von á enn meiri hörku í ágúst? Það er enn þá rúmur mánuður í atkvæðagreiðslu.

„Ég ætla bara að einblína á það sem ég er að gera og tala við þjóðina, tala við fólk. Mér þykir vænt um það að fólk sé að stoppa mann á götu, spyrja spurninga. Það er að mæta á fundi og fleira. Og það er mitt verkefni. Hvernig aðrir haga sér, ég hef ekki stjórn á því, ég bara skora á fólk, hvaðan sem það kemur, að upplýsa þjóðina og ekki telja henni trú um eitthvað annað en það nákvæmlega. Þetta er þjóðaratkvæðagreiðsla um samningaviðræður, ekkert annað.“

Hver eru samningsmarkmið Íslands?

„Já, þau koma mjög skýrt fram meðal annars í nefndaráliti utanríkismálanefndar og það er að Íslendingar verði með yfirráð yfir fiskveiðunum, byggist á sjálfbærni, hagkvæmni, því að við stjórnum okkar málum sjálf í landbúnaði, að við höldum Ég vil helst sjá íslenskan landbúnað eflast enn frekar og það eru ákveðin skýr leiðarljós þar. Það eru líka ákveðnir hlutir sem tengjast varnarmálunum sem skipta okkur miklu máli, ekki síst núna þegar við sjáum hernaðinn ekki vera með hefðbundnum hætti heldur ekki síður birtast í formi tolla, það er ákveðin hernaðarráðstöfun og hefndarráðstöfun. Við sjáum líka þessar fjölþættu ógnir sem fela í sér árásir á innviði. Við erum búin að sjá hér rússnesk skip sem voru á svamli hér í kringum landið fyrir einhverjum dögum síðan, fylgjast með okkar neðansjávarinnviðum. Þarna þurfum við á samstarfi ríkja að halda, ekki síst Evrópuríkja sem eru í forystu á þessu sviði.“

#athyglinni #auka #dreifa #verið #það


Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262912964d/-thad-er-verid-ad-dreifa-athyglinni-thad-er-verid-ad-auka-ovissu-

📰 Aðrar fréttir

Alvarlegt slys í skemmtiferðaskipi
📅 23.07.2026 👁️ 0
Alvarlegt slys í skemmtiferðaskipi
Alvarlegt slys varð í kvöld um borð í skemmtiferðaskipi sem talið er vera um 13 sjómílur norður af Húsavík.Þyrluáhöfn Landhelgisgæslunnar hefur verið ...
Commonwealth Games: King Charles III emerges from the Tardis as Glasgow 2026 Games begin
📅 23.07.2026 👁️ 0
Commonwealth Games: King Charles III emerges from the Tardis as Glasgow 2026 Games begin
King Charles III emerges from a Tardis and a Loch Ness Monster takes the stage at the Commonwealth Games opening ceremony in Glasgow.
Væmni eða bölsýni
📅 23.07.2026 👁️ 0
Væmni eða bölsýni
Væmni eða bölsýni Hvernig reyna and­stæð­ing­ar fylk­ing­ar að höfða til ungra kjós­enda í að­drag­anda þjóð­ar­at­kvæða­greiðslu? Nú í ágúst kjósa ma...
Al­var­legt slys um borð í skemmti­ferða­skipi - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 0
Al­var­legt slys um borð í skemmti­ferða­skipi - Vísir
Tilkynning barst um málið um tuttugu mínútur fyrir níu í kvöld. Þetta segir Magnús Pálmar Jónsson, aðgerðarstjóri hjá Landhelgisgæslunni, í samtali vi...
Burnham to spend first day working from No 10 North
📅 23.07.2026 👁️ 0
Burnham to spend first day working from No 10 North
Various ministers are also set to work regularly from the northern branch of Downing Street.
US announces fresh raft of tariffs on overseas goods
📅 23.07.2026 👁️ 0
US announces fresh raft of tariffs on overseas goods
The tariffs target around 60 trading partners over claims they failed to properly stop forced labour.
Óttast að hin leiðin lokist með miklum af­leiðingum - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 0
Óttast að hin leiðin lokist með miklum af­leiðingum - Vísir
Tunnuverðið á Brent-hráolíu hækkaði mjög hratt þegar stríðið hófst í lok febrúar en það er gjarnan notað sem viðmið fyrir olíuverð á heimsvísu. Þegar ...
Lögregla handtók fjóra eftir viðurstyggilegt dýraníð – Broddgöltur málaður eins og Sonic og drapst
📅 23.07.2026 👁️ 0
Lögregla handtók fjóra eftir viðurstyggilegt dýraníð – Broddgöltur málaður eins og Sonic og drapst
Lögreglan í Leeds rannsakar nú dýraníð gagnvart broddgelti. Broddgölturinn fannst málaður eins og tölvuleikjapersónan Sonic en drapst vegna málningari...
Sólin lætur sjá sig í borginni um helgina
📅 23.07.2026 👁️ 0
Sólin lætur sjá sig í borginni um helgina
Íbúar á vesturhluta landsins eru langþreyttir á sólarleysi, en nú eru breytingar í vændum því veðurspáin um helgina er ekki sem verst. Theodór Freyr H...
Ódysseifskviða: „Bíómynd með stóru B-i“
📅 23.07.2026 👁️ 0
Ódysseifskviða: „Bíómynd með stóru B-i“
Þó að sagan um Ódysseif sé þrjú þúsund ára gömul er enn þrætt um túlkun hennar. Ný kvikmynd Christopher Nolan um Ódysseifskviðu hefur slegið í gegn og...
Southport killer Axel Rudakubana moved from Belmarsh prison to Broadmoor psychiatric hospital
📅 23.07.2026 👁️ 0
Southport killer Axel Rudakubana moved from Belmarsh prison to Broadmoor psychiatric hospital
Rudakubana was jailed for 52 years in 2025 for the murder of three young girls at a dance class.
Nota dróna gegn veirufaraldri af völdum moskítóflugna
📅 23.07.2026 👁️ 1
Nota dróna gegn veirufaraldri af völdum moskítóflugna
Yfirvöld í Sri Lanka hafa skorið upp herör gegn moskítóflugum sem bera með sér beinbrunasótt (e. Dengue fever). Til þess hafa þau kallað til herinn se...
Íslandsvinurinn opnar sig um raunverulega ástæðu þess að Simpson fjölskyldan er gul
📅 23.07.2026 👁️ 1
Íslandsvinurinn opnar sig um raunverulega ástæðu þess að Simpson fjölskyldan er gul
Teiknimyndaframleiðandinn og Íslandsvinurinn Mike Reiss segir að það hafi tekið sig mörg ár að komast að því hvers vegna Simpson-fjölskyldan væri í ra...
UK 'ready to defend itself' after Iran says bases are 'legitimate targets'
📅 23.07.2026 👁️ 0
UK 'ready to defend itself' after Iran says bases are 'legitimate targets'
An Iranian military group has issued a warning to the UK over allowing US forces to use British bases for strikes on Iran.
Safna undirskriftum gegn vindmyllunum við Lagarfoss – „Óafturkræf og veruleg spjöll á landslagi“
📅 23.07.2026 👁️ 1
Safna undirskriftum gegn vindmyllunum við Lagarfoss – „Óafturkræf og veruleg spjöll á landslagi“
Rúmlega 300 undirskriftir hafa safnast gegn áformum um vindmyllur við Lagarfoss. Í færslu með undirskriftasöfnuninni er fullyrt að áformin feli í sér ...
„Gott og vel við skulum trúa ráð­herranum“ - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
„Gott og vel við skulum trúa ráð­herranum“ - Vísir
Þá gerir hann athugasemd við að ráðherrann hafi ekki strax leiðrétt rangfærslu um samskipti hennar við forsætisráðherra Hollands. Alþjóðastjórnmálafræ...
Utan­ríkis­ráð­herra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
Utan­ríkis­ráð­herra svarar og kona stórslasaðist á hlaupahjóli - Vísir
Þá fjöllum við um miklar hækkanir á olíuverði og hættuna á frekari hækkunum vegna stríðs Bandaríkjanna gegn Íran. Verðbólgan jókst enn og aðalhagfræði...
Sveinn Andri Sveinsson: Ánægja almennings eini mælikvarðinn á aðild – fólkið í ESB er hæstánægt
📅 23.07.2026 👁️ 1
Sveinn Andri Sveinsson: Ánægja almennings eini mælikvarðinn á aðild – fólkið í ESB er hæstánægt
Eini mælikvarðinn á það hvort aðild að ESB hafi reynst ríkjum vel er hversu ánægt fólkið í ríkjunum er með aðildina og í ríkjum ESB er fólkið hæstánæg...
Burnham lækkar skatta á ölkrár og tónleikastaði: „Fyrir mér er þetta okkar menning“
📅 23.07.2026 👁️ 1
Burnham lækkar skatta á ölkrár og tónleikastaði: „Fyrir mér er þetta okkar menning“
Andy Burnham, nýi forsætisráðherra Bretland, er byrjaður á verkefni sínu um að lækka álögur á alþýðuna. Burnham tók við embættinu á mánudaginn og hét ...
Lítil fagmönnun, gamalt húsnæði og samskiptavandi á hjúkrunarheimili í Eyjum
📅 23.07.2026 👁️ 1
Lítil fagmönnun, gamalt húsnæði og samskiptavandi á hjúkrunarheimili í Eyjum
Embætti landlæknis gerir miklar athugasemdir við aðbúnað á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum. Landlæknir skilaði nýverið skýrs...
Fátt fagfólk, gamalt húsnæði og samskiptavandi á hjúkrunarheimili í Eyjum
📅 23.07.2026 👁️ 0
Fátt fagfólk, gamalt húsnæði og samskiptavandi á hjúkrunarheimili í Eyjum
Embætti landlæknis gerir miklar athugasemdir við aðbúnað á hjúkrunar- og dvalarheimilinu Hraunbúðum í Vestmannaeyjum.Landlæknir skilaði nýverið skýrsl...
Burnham tells Swinney independence is 'off limits' at Glasgow Commonwealth Games meeting
📅 23.07.2026 👁️ 1
Burnham tells Swinney independence is 'off limits' at Glasgow Commonwealth Games meeting
The heads of the UK, Scottish and Welsh governments came together ahead of the opening of the Glasgow Commonwealth Games.
Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
Ekki um „týndar skýrslur“ að ræða - Vísir
Útskýrt er í skriflegri yfirlýsingu að ekki sé hægt að hafa eftirlitsmann á vegum MAST um borð í hvalveiðiskipum þegar hver einn og einasti hvalur er ...
Segja Universal ekki enn hafa greitt fyrir tjón á víkingaskipi sem notað var í The Odyssey
📅 23.07.2026 👁️ 1
Segja Universal ekki enn hafa greitt fyrir tjón á víkingaskipi sem notað var í The Odyssey
Eigiendur víkingaskips, sem notað var við tökur á stórmyndinni The Odyssey, segja farir sínar ekki sléttar í samskiptum við kvikmyndaverið Universal s...
Smitaðist af Campylobacter eftir að hafa haldið á mávsunga
📅 23.07.2026 👁️ 1
Smitaðist af Campylobacter eftir að hafa haldið á mávsunga
Birna Viðarsdóttir á bænum Norður-Hvoli í Mýrdalshreppi lá nýlega fjóra daga á spítala í einangrun með uppköst og niðurgang og með næringu og tvær teg...
Kaupmáttaraukning í samræmi við samninga þótt verðbólgan sé það ekki
📅 23.07.2026 👁️ 1
Kaupmáttaraukning í samræmi við samninga þótt verðbólgan sé það ekki
Fjármálaráðherra segir lítið hægt að gera til að halda verðbólgu innan viðmiða sem sett voru í síðustu kjarasamningum. Hann segir kaupmáttaraukningu þ...
Fedorov hafnar boði Zelenskys um nýtt hlutverk og vill gamla starfið aftur
📅 23.07.2026 👁️ 1
Fedorov hafnar boði Zelenskys um nýtt hlutverk og vill gamla starfið aftur
Mikhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, sem var leystur frá störfum í síðustu viku, hefur hafnað tilboði Volodymyrs Zelenskys Úkraín...
Fedorov hafnar boði Zelenskys um nýtt hlutverk og vill gamla embættið aftur
📅 23.07.2026 👁️ 0
Fedorov hafnar boði Zelenskys um nýtt hlutverk og vill gamla embættið aftur
Mikhailo Fedorov, fyrrverandi varnarmálaráðherra Úkraínu, sem var leystur frá störfum í síðustu viku, hefur hafnað tilboði Volodymyrs Zelenskys Úkraín...
Pétur fékk taugaáfall í eldhúsinu - „Nokkur skömm að þurfa að leita mér aðstoðar vegna andlegrar vanlíðunar“
📅 23.07.2026 👁️ 1
Pétur fékk taugaáfall í eldhúsinu - „Nokkur skömm að þurfa að leita mér aðstoðar vegna andlegrar vanlíðunar“
„Ég fór í það sem kallað er „burnout“ eða kulnun. Ég var inni í eldhúsi heima hjá mér þegar þetta gerðist, við eldhúsbekkinn var eins og einhver slægi...
„Fólk á ekki að kaupa lyf sem því er ekki ávísað“
📅 23.07.2026 👁️ 1
„Fólk á ekki að kaupa lyf sem því er ekki ávísað“
Forstjóri Lyfjastofnunar segir innflutning ólöglegra peptíða hingað til lands mikið áhyggjuefni. Fólk eigi ekki að kaupa lyf sem því sé ekki ávísað.Sý...
Fyrr­verandi mág­konur selja til að kaupa „draumakommúnu“ - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
Fyrr­verandi mág­konur selja til að kaupa „draumakommúnu“ - Vísir
Frá þessu greinir Inga Auðbjörg í færslu á Facebook undir yfirskriftinni Bíræfinn bísexúalisti selur bitastæða miðbæjareign, og gerir þar með góðlátle...
„Enginn getur þjónað tveim herrum“ – Katrín Jakobsdóttir gagnrýnd fyrir þáttöku í myndbandi WEF
📅 23.07.2026 👁️ 1
„Enginn getur þjónað tveim herrum“ – Katrín Jakobsdóttir gagnrýnd fyrir þáttöku í myndbandi WEF
Arnar Þór Jónsson gagnrýnir Katrínu Jakobsdóttur, fyrrverandi forsætisráðherra, eftir að Alþjóðaefnahagsráðið, World Economic Forum, birti myndband þa...
Rússneska þingið afnemur réttindi ríkisborgara erlendis
📅 23.07.2026 👁️ 1
Rússneska þingið afnemur réttindi ríkisborgara erlendis
Þingmenn Dúmunnar, neðri deildar rússneska þingsins, samþykktu í gær lög um rússneska ríkisborgara sem búa erlendis en eiga yfir höfði sér lögsókn hei...
Ís­land ýmist í Meistara­deildinni eða um miðja aðra deild - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
Ís­land ýmist í Meistara­deildinni eða um miðja aðra deild - Vísir
Vísir bauð upp á Pallborð  í dag þar sem gerð var tilraun til að útkljá málið.  Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður stýrði umræðum af röggsemi og það v...
ESB ýmist í Meistara­deildinni eða um miðja aðra deild - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
ESB ýmist í Meistara­deildinni eða um miðja aðra deild - Vísir
Vísir bauð upp á Pallborð  í dag þar sem gerð var tilraun til að útkljá málið.  Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður stýrði umræðum af röggsemi og það v...
Hart tekist á um ESB - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
Hart tekist á um ESB - Vísir
Vísir bauð upp á Pallborð  í dag þar sem gerð var tilraun til að útkljá málið.  Hólmfríður Gísladóttir fréttamaður stýrði umræðum af röggsemi og það v...
Gripin með 18 kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli
📅 23.07.2026 👁️ 1
Gripin með 18 kíló af kókaíni á Keflavíkurflugvelli
Maður og kona voru handtekin á Keflavíkurflugvelli í maí fyrir að reyna að smygla rúmum 18 kílóum af kókaíni til landsins. Það er eitthvert mesta magn...
Another seismic swarm of 550 micro-earthquakes detected beneath Teide
📅 23.07.2026 👁️ 1
Another seismic swarm of 550 micro-earthquakes detected beneath Teide
More than 550 low-magnitude earthquakes have been detected beneath Mount Teide in the latest burst of seismic activity on Tenerife, but scientists hav...
Nóg var nóg – þar til Viðreisn komst til valda
📅 23.07.2026 👁️ 1
Nóg var nóg – þar til Viðreisn komst til valda
Stóra efnahagslega plan ríkisstjórnarinnar var í sjálfu sér ekki flókið. Ríkisstjórnin ætlaði að sýna aðhald, ná tökum á ríkisfjármálunum og styðja þa...
14-year-old rescued from alleged forced marriage at Tenerife airport
📅 23.07.2026 👁️ 1
14-year-old rescued from alleged forced marriage at Tenerife airport
Three people have been arrested after police uncovered an alleged international forced marriage plot involving a 14-year-old girl who was stopped at T...
Hópur milljónamæringa biður Burnham um meiri skattlagningu
📅 23.07.2026 👁️ 1
Hópur milljónamæringa biður Burnham um meiri skattlagningu
Milljónamæringar í Bretlandi hafa skrifað opið bréf til Andys Burnhams forsætisráðherra þar sem þeir biðja hann um að skattleggja sig meira. Meðal þei...
Manndrápstilraunin á Höfðatorgi: Verjendur fá ekki afrit af rafrænum gögnum
📅 23.07.2026 👁️ 1
Manndrápstilraunin á Höfðatorgi: Verjendur fá ekki afrit af rafrænum gögnum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfu tveggja sakborninga í máli sem varðar hópárás og tilraun til manndráps í b...
Má hrista rassinn fyrir barnsfaðir?
📅 23.07.2026 👁️ 1
Má hrista rassinn fyrir barnsfaðir?
Nýtt lag tónlistarfólksins UB (Unnar Borgar Ólafsdóttur) og Daníels Dags Hermannssonar, „Barnsfaðir“, hefur vakið mikla athygli síðan það kom út 10. j...
Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki enn­þá“ - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
Daniil gefur út lag með Kodak Black: „Trúi þessu ekki enn­þá“ - Vísir
Tilkoma lagsins var heimsókn tónlistarframleiðandans og tónlistarmannsins James Tonic til Íslands fyrir nokkrum árum en þá hittust þeir Daníel Morshki...
„Bíræfinn bísexúalisti selur bitastæða miðbæjareign“
📅 23.07.2026 👁️ 1
„Bíræfinn bísexúalisti selur bitastæða miðbæjareign“
Vinkonurnar Inga Auðbjörg Straumland, fyrrum formaður Siðmenntar, og Arndís Anna Kristínardóttir Gunnarsdóttir, núverandi formaður Siðmenntar, hafa bá...
Glímdu við fjórða stigs krabbamein á sama tíma
📅 23.07.2026 👁️ 1
Glímdu við fjórða stigs krabbamein á sama tíma
Star Trek leikarinn William Shatner og dóttir hans, Melanie Shatner Gretsch, greindu frá því að þau hafi barist við fjórða stigs krabbamein á sama tím...
Sádar verði að viður­kenna til­vist Ísrael - Vísir
📅 23.07.2026 👁️ 1
Sádar verði að viður­kenna til­vist Ísrael - Vísir
Þetta kemur fram í „sannleik“ sem hann skrifaði á Truth Social en hafði ekki komið fram í tilkynningum um samkomulagið. Trump sagðist sannfærður um að...
Erna Bjarnadóttir skrifar: Takmörkuð notkun sýklalyfja í búfjárrækt er samfélagslegt verðmæti
📅 23.07.2026 👁️ 1
Erna Bjarnadóttir skrifar: Takmörkuð notkun sýklalyfja í búfjárrækt er samfélagslegt verðmæti
Sýklalyfjaónæmi er eitt stærsta lýðheilsuviðfangsefni samtímans. Alþjóðaheilbrigðismálastofnunin (WHO) hefur um árabil varað við því að vaxandi ónæmi ...
Angela og Darren dæmd í sex ára fangelsi
📅 23.07.2026 👁️ 1
Angela og Darren dæmd í sex ára fangelsi
Bresk kona og karl á fimmtugsaldri hafa verið dæmd í 6 ára fangelsi fyrir stórfellt fíkniefnabrot. Dómurinn var kveðinn upp í Héraðsdómi Reykjaness þa...
Manndrápstilraunin á Höfðatorgi: Verjendur fá ekki aðgang að rafrænum gögnum
📅 23.07.2026 👁️ 1
Manndrápstilraunin á Höfðatorgi: Verjendur fá ekki aðgang að rafrænum gögnum
Landsréttur hefur staðfest úrskurð Héraðsdóms Reykjavíkur um að hafna kröfu tveggja sakborninga í máli sem varðar hópárás og tilraun til manndráps í b...