Margrét Þórhildur Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Á vef danska ríkisútvarpsins, DR, er haft eftir konungsfjölskyldunni að Margrét hafi fundið fyrir vanlíðan og verið lögð inn vegna blóðsöfnunar í mjöðm.
Margrét mun því ekki sækja útför Haraldar fyrrverandi Noregskonungs á miðvikudag. Friðrik 10. Danakonungur, María Danadrottning, Kristján krónprins og Benedikta prinsessa, systir Margrétar, koma til með að mæta í útförina.
Margrét Þórhildur var lögð inn á sjúkrahús í tvígang í maí á þessu ári, í seinna skiptið vegna blóðsöfnunar í mjöðm í kjölfar falls.