Ökumanns köfunarbíls leitað erlendis – köfuðu einn og hálfan kílómetra eftir efnunum

Ökumanns köfunarbíls leitað erlendis – köfuðu einn og hálfan kílómetra eftir efnunum

Ökumanns köfunarbíls leitað erlendis – köfuðu einn og hálfan kílómetra eftir efnunum

Í fyrri hluta júnímánaðar var bíl ekið út úr ferjunni Norrænu og í land í Seyðisfjarðarhöfn, eftir siglingu frá Hirtshals í Danmörku. Íslenska lögreglan vissi að bíllinn var á leiðinni og hafði góðar gætur á honum og bílstjóranum.

Þetta var sérútbúinn köfunarbíll og í honum dýr köfunarbúnaður sem brasilískir fíkniefnakafarar áttu síðar í mánuðinum eftir að nota til að kafa hálfan annan kílómetra fram hjá endilöngu álverinu í Straumsvík og sækja í sjókistu súrálsskips stærstu kókaínsendingu sem lagt hefur verið hald á hér á landi.

Rúmenskur verkstjóri – fjögur erlend þjóðerni

Fréttastofa greindi fyrst frá Straumsvíkursmyglinu þriðjudaginn 30. júní. Lögregla hafði lagt hald á 106 kíló af kókaíni sem smyglað hafði verið til landsins í sjókistu búlgarska súrálsskipsins Koznitza, sem kom til landsins 22. júní frá borginni Belém í Brasilíu.

Þetta var stærsta kókaínsmygl Íslandssögunnar og þarna beittu smyglararnir aðferð sem íslenska lögreglan hafði aldrei séð fyrr þótt hún væri vel þekkt erlendis.

Níu sátu í gæsluvarðhaldi þegar fyrst fréttist af málinu. Þeir eru enn allir í haldi og hefur þeim ekki fjölgað síðan.

Þrír þessara manna eru íslenskir og greint hefur verið frá því hverjir þeir eru.

Fréttastofa hefur heimildir fyrir því að tveir mannanna séu rúmenskir, annar þeirra sé búsettur í Bretlandi og sé af lögreglu talinn hafa verið verkstjóri aðgerðanna hér á Íslandi.

Tveir mannanna eru brasilískir kafarar, sérþjálfaðir í því að sækja fíkniefni neðansjávar.

Þriðji Brasilíumaðurinn er sömuleiðis í haldi, samkvæmt upplýsingum fréttastofu, en hann er með tvöfalt ríkisfang, brasilískt og ítalskt, og búsettur í Bretlandi.

Síðasti maðurinn sem er í haldi er Portúgali, að því er heimildir fréttastofu herma.

Fylgdust með ökumanninum en leyfðu honum að fara

Ætla mætti að á meðal þeirra sem sitja í varðhaldi væri ökumaður köfunarbílsins sem kom með Norrænu fáeinum vikum áður en efnin voru sótt í skipið. Svo er hins vegar ekki. Lögregla fylgdist með ferðum hans uns hann fór aftur af landi brott. Það gerði hann áður en talið var tímabært að ráðast í handtökur, enda hefðu þær stefnt öllum frekari aðgerðum í hættu.

Búið er að gefa út alþjóðlega handtökuskipun á hendur ökumanninum og því standa vonir íslensku lögreglunnar til þess að lögregluyfirvöld ytra hafi hendur í hári hans og þá sé hægt að fá hann framseldan hingað til lands, ákæra hann og rétta yfir honum fyrir hans þátt í málinu.

Þræddu búðir til að finna nýjan kafarabúning

Efnin í sjókistu Koznitza voru gulls ígildi eða því sem næst og ekki furða að smyglararnir hafi lagt mikið á sig til að sækja þau og skipulagt sig í þaula, eins og köfunarbíllinn er til vitnis um.

Ævar Pálmi Pálmason aðstoðaryfirlögregluþjónn sagði að virði efnanna væri hið minnsta á þriðja milljarð, og líklega meira þegar búið væri að drýgja þau fyrir sölu á götunni.

Í köfunarbílnum var enda mikið af fullkomnum búnaði, til dæmis tveir svokallaðir „scooterar“, tæki sem gerir köfurum kleift að ferðast hratt neðansjávar.

Skipulag smyglaranna var þó ekki betra en svo að samkvæmt heimildum fréttastofu þurftu þeir þrátt fyrir allt að þræða köfunarbúðir á höfuðborgarsvæðinu til að bæta við búnaði og uppfæra hann.

Til dæmis pössuðu ekki kafarabúningarnir sem voru í bílnum. Þá voru góð ráð dýr því brasilísku kafararnir þurftu að finna að minnsta kosti einn búning í XL-stærð og munu í þeim verslunarleiðangri hafa lotið fyrirmælum verkstjórans rúmenska.

Þurftu tvær tilraunir með sólarhrings millibili

Straumsvík er vinsæll köfunarstaður og einn Íslendinganna sem eru í haldi, Lárus Freyr Einarsson, birti meira að segja mynd af sér á samfélagsmiðlum fyrir tæpum áratug með köfunarbúnað í Straumsvík. Hvort sem það var einskær tilviljun eða ekki, þá hafa kafarar lengi stundað þetta áhugamál sitt í og við Straumsvík – gjarnan frá Óttarsstöðum, sem er rétt vestan við víkina.

Brasilísku kafararnir tveir fóru þó ekki stuttu leiðina að kili súrálsskipsins Koznitza þegar það lá við bryggju í Straumsvík. Þeir fóru ekki í sjóinn á köfunarstaðnum vinsæla við Óttarsstaði þaðan sem köfunarleiðin hefði verið um kílómetri. Þeir fóru ekki heldur í sjóinn í Straumsvíkinni sjálfri, í landi Straums, en þaðan hefðu þeir styst getað synt 300 til 400 metra leið að skipinu.

Í staðinn fóru þeir út í austan við álverið í Straumsvík, samkvæmt heimildum fréttastofu, þaðan sem leiðin að skipinu er einn og hálfur kílómetri. Og svo þarf að fara jafnlangt til baka með efnin.

Það er ljóst að það er ekki vandalaust verk að kafa alla þessa vegalengd og opna síðan sjókistu á kili skips. Köfurunum brasilísku mistókst enda ætlunarverkið í fyrstu tilraun, samkvæmt heimildum fréttastofu, og þurftu að reyna aftur sólarhring síðar. Sú tilraun heppnaðist og kafararnir komust með kílóin 106 á þurrt.

Lögreglan hafði skipt efnunum út

Það sem kafararnir og þriðji maðurinn sem var með þeim í för vissu ekki var að lögreglan hafði augu á þeim allan tímann. Lögreglan hafði auk þess nýtt tækifærið þegar skipið lónaði úti fyrir Straumsvík dagana áður en það lagðist að bryggju til að fara og sækja kókaínið og skipta því út fyrir gerviefni með aðstoð kafara frá sérsveitinni.

Þar var vandvirknin lykilatriði, enda mátti smyglarana ekki gruna að átt hefði verið við varninginn, pakkningar utan um gerviefnin þurftu að vera þannig úr garði gerðar að þær væru sannfærandi í augum þeirra sem þrautreyndir eru í að höndla með fíkniefni.

76 kíló á felustað í Mosfellsbæ – allt ætlað til sölu hér

Lögreglan lagði hald á efnin í tvennu lagi. Um 30 af kílóunum 106 voru tekin eftir að rúmenski verkstjórinn hafði afhent tveimur Íslendinganna þau í Smiðjuhverfi í Kópavogi miðvikudaginn 24. júní. Það voru Lárus Freyr Einarsson, sem áður var getið, og Lúther Ólason. Báðir voru handteknir skömmu eftir afhendinguna, með kílóin 30 í bíl sínum.

Símasamskipti sem lögregla rannsakaði urðu svo til þess að Atli Freyr Fjölnisson var handtekinn fimm dögum síðar, mánudaginn 29. júní. Lögregla telur að Atli Freyr hafi gefið Lárusi og Lúther fyrirmæli um að fara og hitta þann rúmenska í Smiðjuhverfinu og taka við fíkniefnunum.

Hin kílóin 76 fundust á felustað í Mosfellsbæ, samkvæmt upplýsingum fréttastofu. Lögregla telur að efnin hafi öll verið ætluð til sölu á Íslandi, en það mun koma í ljós við réttarhöld í málinu hvort lögregla telur sig hafa upplýsingar um hverjum þau voru ætluð hér innanlands.

Búist við ákæru 17. september

Gæsluvarðhald yfir níumenningunum var á þriðjudag framlengt til 17. september. Þann dag verða tólf vikur liðnar frá því að þorri þeirra var fyrst hnepptur í varðhald og áður en sá frestur rennur út þarf saksóknari að gefa út ákæru á hendur þeim.

Reiknað er með að rannsókn málsins ljúki í komandi viku og að málið verði þá sent embætti héraðssaksóknara til ákærumeðferðar.

#erlendis #köfunarbíls #köfuðu #leitað #ökumanns

Upprunaleg slóð:
https://nyr.ruv.is/frettir/innlent/2026-09-06-okumanns-kofunarbils-leitad-erlendis-kofudu-einn-og-halfan-kilometra-eftir-efnunum-486194

📰 Aðrar fréttir

Úkraína og Rússland þurfa bæði að gefa eftir ef friður á að nást
📅 06.09.2026 👁️ 1
Úkraína og Rússland þurfa bæði að gefa eftir ef friður á að nást
Bæði Úkraína og Rússland verða að slá af ítrustu kröfum sínum ef friður á að nást milli ríkjanna. Þetta sagði Steve Witkoff, annar sérlegra erindreka ...
„Svona er bara lit­róf mann­lífsins“ - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Svona er bara lit­róf mann­lífsins“ - Vísir
„Okkur þykir alltaf leiðinlegt þegar ökumenn lenda í vandræðum á bílunum okkar en ég get ekkert tjáð mig sérstaklega um þetta mál, segir Kristín Hrefn...
Vilja fjarlægja klett af slysstað
📅 06.09.2026 👁️ 1
Vilja fjarlægja klett af slysstað
Vegagerðin vill láta fjarlægja klettinn við Krýsuvíkurveg þar sem þrjú ungmenni létu lífið í bílslysi aðfaranótt mánudags. Banaslys varð á nákvæmlega ...
50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
50+: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? - Vísir
Í raun erum við að tala um leynilega léttinn: Þar sem þó samviskan okkar sem foreldri spyr: Má maður fagna því þegar börnin flytja að heiman? Í Áskoru...
Margrét Danadrottning lögð inn á spítala
📅 06.09.2026 👁️ 1
Margrét Danadrottning lögð inn á spítala
Margrét Þórhildur Danadrottning hefur verið lögð inn á Ríkissjúkrahúsið í Kaupmannahöfn. Á vef danska ríkisútvarpsins, DR, er haft eftir konungsfjölsk...
Flúði lögreglu á Hopp-deilibíl og skemmdi bíla
📅 06.09.2026 👁️ 1
Flúði lögreglu á Hopp-deilibíl og skemmdi bíla
Lögregla veitti ökumanni Hopp-deilibíls eftirför frá Lágmúla upp í Víðidal í Reykjavík stuttu eftir hádegi í dag. Ökumaðurinn ók utan í að minnsta kos...
Útgönguspár benda til stór­sigurs AfD - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Útgönguspár benda til stór­sigurs AfD - Vísir
Miðað við kannanir var flokkurinn að mælast með um 40 prósenta fylgi en útgönguspár segja að flokkurinn muni sigra með um 44 prósent atkvæða. Flokkuri...
Útgönguspár spá AfD stórsigri í Saxlandi-Anhalt
📅 06.09.2026 👁️ 1
Útgönguspár spá AfD stórsigri í Saxlandi-Anhalt
Kjörstöðum hefur verið lokað í þýska sambandsríkinu Saxlandi-Anhalt. Samkvæmt útgönguspám þýska ríkisútvarpsins hefur harðlínuflokkurinn Alternative f...
Stefnir í stórsigur AfD í Saxlandi-Anhalt

Iran warns of 'faster, heavier, more painful response' to US attacks
📅 06.09.2026 👁️ 1
Iran warns of 'faster, heavier, more painful response' to US attacks
The comments came a day after Washington said it had struck Iranian oil tankers in response to Tehran's attacks on US warships in the region.
German far-right set for big win in eastern state of Saxony-Anhalt - projections
📅 06.09.2026 👁️ 1
German far-right set for big win in eastern state of Saxony-Anhalt - projections
Germany's AfD has hailed a "historic result" and is projected to win 44.5% of the vote, far ahead of the conservative CDU on 18.5%.
Margrét Þór­hildur lögð inn á sjúkra­hús - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Margrét Þór­hildur lögð inn á sjúkra­hús - Vísir
Margrét Þórhildur II Danadrottning hefur verið lögð inn á sjúkrahús. Hún hafði fundið fyrir vanlíðan samkvæmt upplýsingum frá konungsfjölskyldunni.
140 migrants in single dinghy rescued in English Channel
📅 06.09.2026 👁️ 1
140 migrants in single dinghy rescued in English Channel
They were transferred onto two lifeboats and taken to shore in the UK.
Björn Jón skrifar: Ný þjóðernisleg vakning
📅 06.09.2026 👁️ 1
Björn Jón skrifar: Ný þjóðernisleg vakning
Mynd Á dögunum kom út bókin Den usynlige ånd eftir Alex Vanopslagh, forma
Sífellt fleiri börn á aldrinum 10-14 ára grunuð um alvarleg ofbeldisbrot á undanförnum árum
📅 06.09.2026 👁️ 1
Sífellt fleiri börn á aldrinum 10-14 ára grunuð um alvarleg ofbeldisbrot á undanförnum árum
Sífellt fleiri börn á aldrinum 10-14 ára grunuð um alvarleg ofbeldisbrot á undanförnum árum Fréttin6. september 2026ErlentLeave a Comment Sífellt flei...
„Nánast útilokað“ að koma í veg fyrir útbreiðslu fíkniefna á Litla-Hrauni
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Nánast útilokað“ að koma í veg fyrir útbreiðslu fíkniefna á Litla-Hrauni
Á síðasta ári voru 71 brot gegn reglum um vímuefni og lyf í fangelsum skráð hjá Fangelsismálastofnun. Fjöldinn er þó minni en árin á undan og hefur fa...
Eitt allra krúttlegasta mót ársins - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Eitt allra krúttlegasta mót ársins - Vísir
Þetta er meðal þess sem fram kemur í tilkynningu um mótið en þar kom fram að yngstu börnin hófu mótið á sparkhjólum og svo koll af kolli eftir aldri o...
Öku­maður bif­hjóls flaug út af Kvart­mílu­brautinni - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Öku­maður bif­hjóls flaug út af Kvart­mílu­brautinni - Vísir
Þrír sjúkraflutningarbílar voru kallaðir til á vettvang og var maðurinn fluttur á slysadeild. Þetta staðfestir Lárus Steindór Björnsson, varðstjóri hj...
Jamaican officials to bring reparations petition to King Charles
📅 06.09.2026 👁️ 1
Jamaican officials to bring reparations petition to King Charles
The King will be asked to refer three questions to the Judicial Committee of the Privy Council.
Gríðar­leg aukning í sölu á fánastöngum - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Gríðar­leg aukning í sölu á fánastöngum - Vísir
Eftir að fánalögum var breytt á Alþingi í vor mátti íslenski fáninn blakta á húni allan sólarhringinn frá 1. maí til 15. ágúst, en fyrir breytinguna m...
Var sagt að hún væri of ljót til að birta sjálfsmyndir á netinu og ávað að snúa vörn í sókn
📅 06.09.2026 👁️ 1
Var sagt að hún væri of ljót til að birta sjálfsmyndir á netinu og ávað að snúa vörn í sókn
Árið 2019 birti CNN aðsenda grein sem sjálfstætt starfandi blaðakonan Melissa Blake hafði ritað um Donald Trump Bandaríkjaforseta. Greinin setti netið...
Von der Leyen vill nota sparnað Evrópubúa í verkefni innan ESB
📅 06.09.2026 👁️ 1
Von der Leyen vill nota sparnað Evrópubúa í verkefni innan ESB
Von der Leyen vill nota sparnað Evrópubúa í verkefni innan ESB Fréttin6. september 2026Erlent, EvrópusambandiðLeave a Comment Ursula von der Leyen, fo...
Mótorhjólaslys í Hafnarfirði
📅 06.09.2026 👁️ 1
Mótorhjólaslys í Hafnarfirði
Maður missti stjórn á mótorhjóli á Kvartmílubrautinni í Hafnarfirði á þriðja tímanum í dag.Samkvæmt varðstjóra hjá slökkviliðinu á höfuðborgarsvæðinu ...
Fjöldi sólskinsstunda vel yfir meðallagi í annars köldum ágúst
📅 06.09.2026 👁️ 1
Fjöldi sólskinsstunda vel yfir meðallagi í annars köldum ágúst
Ágústmánuður var tiltölulega kaldur. Það var úrkomusamt á norðan- og vestanverðu landinu en þurrara á suður- og austurhluta landsins. Norðan- og norðv...
Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á há­lendið - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Þyrlan sótti slasaðan mótorhjólamann á há­lendið - Vísir
Þetta staðfestir Ásgeir Erlingsson upplýsingafulltrúi Landhelgisgæslunnar en hann segir vettvang slyssins vera við Blautulón við Skælinga sem eru á fj...
Dozens feared trapped in collapsed building in Delhi
📅 06.09.2026 👁️ 1
Dozens feared trapped in collapsed building in Delhi
As many as 50 people are thought to have been inside the five-storey hostel when it came down.
Mætt til Græn­lands með pyngju fulla af peningum - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Mætt til Græn­lands með pyngju fulla af peningum - Vísir
Ursula von der Leyen, forseti framkvæmdastjórnar ESB, heimsækir landið í dag ásamt Mette Frederiksen, forsætisráðherra Danmerkur. Þær lentu í höfuðbor...
Áhrifavaldur lést eftir að hann lét sprauta fylliefni í lim sinn
📅 06.09.2026 👁️ 1
Áhrifavaldur lést eftir að hann lét sprauta fylliefni í lim sinn
Bresk-nígeríski áhrifavaldurinn Igho „Tiny“ Ubiribo, betur þekktur sem Ego, lést á Taílandi í mars eftir að hann lét sprauta um 40 millilítrum af fyll...
Orðið á götunni: Dæmdur ritþjófur ræðst á fræðimenn
📅 06.09.2026 👁️ 1
Orðið á götunni: Dæmdur ritþjófur ræðst á fræðimenn
Hannes Hólmsteinn Gissurarson, sem verið hefur á framfæri íslensku þjóðarinnar í gegnum Sjálfstæðisflokkinn og hlotið sporslur frá auðmönnum og kvótak...
Umferðarslys á Breiðholtsbraut
📅 06.09.2026 👁️ 1
Umferðarslys á Breiðholtsbraut
Umferðarslys átti sér stað á Breiðholtsbraut skammt frá Norðlingaholti rétt fyrir klukkan eitt. Þetta kemur fram á Vísi en þar segir að slysið hafi át...
Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum
📅 06.09.2026 👁️ 1
Fundu 255 ára gamlan skilding Sveins Pálssonar í Öræfum
Það var heldur óvenjulegur fundur sem beið gönguhóps sem var á ferð um Kvísker í Öræfum í sumar. Skildingur sem geymdur hafði verið inni í vörðu í 232...
Banda­ríkja­menn sendu ekki skip til Ís­lands - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Banda­ríkja­menn sendu ekki skip til Ís­lands - Vísir
„Já, Bandaríkin voru ekki með neinar flugvélar eða skip í Norður-Víkingi í ár,“ staðfestir ofurstinn Martin O'Donnell, háttsettur talsmaður Atlantshaf...
Ekkert óeðlilegt að ríkið sé hluti af samtalinu
📅 06.09.2026 👁️ 1
Ekkert óeðlilegt að ríkið sé hluti af samtalinu
Ragnar Þór Ingólfsson félags- og húsnæðismálaráðherra segir að ráðuneytið hafi verið í viðræðum við aðila vinnumarkaðarins síðan í vor, þegar ljóst va...
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“
„Af hverju situr þú þá hér í þessu láglaunastarfi?“ Þóra Jakobína Ol­sen Hrafns­dótt­ir fékk spurn­ingu sem hún gat ekki svar­að, fór heim og íhug­aði...
„Erfitt að vera í kjaraviðræðum þegar óvissan er svona mikil“
📅 06.09.2026 👁️ 1
„Erfitt að vera í kjaraviðræðum þegar óvissan er svona mikil“
Kjaraviðræðum smábátasjómanna miðar vel áfram og Örvar Már Marteinsson, formaður Samtaka smærri útgerða, segir öruggt að samningar muni nást. Áform in...
Um­ferðar­slys við Víðidal - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Um­ferðar­slys við Víðidal - Vísir
Töluverður viðbúnaður lögreglu og slökkviliðs er á svæðinu og hafa sírenur heyrst óma víða um borginni. Sést hefur til fjölmargra bifhjóla lögreglu br...
Fjöldi lög­reglu­bíla veitti Hopp-deilibíl eftir­för - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Fjöldi lög­reglu­bíla veitti Hopp-deilibíl eftir­för - Vísir
Töluverður viðbúnaður lögreglu er á svæðinu og hafa sírenur heyrst óma víða um borginni. Sést hefur til fjölmargra bifhjóla lögreglu bruna í átt að au...
Keyrði utan í minnst fjórar bif­reiðar og þar af tvo lög­reglu­bíla - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 0
Keyrði utan í minnst fjórar bif­reiðar og þar af tvo lög­reglu­bíla - Vísir
Töluverður viðbúnaður lögreglu var á svæðinu og heyrðust sírenur óma víða um borgina. Þá sáust fjölmörg bifhjól lögreglu bruna í átt að austurhluta Re...
Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt
📅 06.09.2026 👁️ 1
Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt
„Ljósanótt gekk almennt vel,“ segir Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum.Hún segir þó lögreglumenn ekki hafa mátt vera færri. Vegna gó...
Erill og nokkur ölvun á fjölmennri Ljósanótt – ungmenni kastaði flösku í lögreglumann

Erindrekar Trumps hefja viðræður við Zelensky
📅 06.09.2026 👁️ 1
Erindrekar Trumps hefja viðræður við Zelensky
Steve Witkoff og Jared Kushner, tveir af helstu erindrekum Donalds Trumps Bandaríkjaforseta, eru komnir til Úkraínu á fund Volodymyrs Zelensky Úkraínu...
Gengið til tíma­móta kosninga í Þýska­landi - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Gengið til tíma­móta kosninga í Þýska­landi - Vísir
Reiknað er með að AfD-flokkurinn muni vinna stórsigur í kosningunum en kannanir hafa bent til að flokkurinn hafi um 41 prósenta fylgi eftir því sem ke...
Gengið til tímamótakosninga í Þýska­landi - Vísir

Funda um fram­gang stríðsins: „Þeir eru á ó­mögu­lega slæmum stað“ - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 1
Funda um fram­gang stríðsins: „Þeir eru á ó­mögu­lega slæmum stað“ - Vísir
Vladimír Pútín Rússlandsforseti fundaði með þeim Steve Witkoff og Jared Kushner, tengdasyni Bandaríkjaforseta, í þrjár klukkustundir í gær. Donald Tru...
Green Party deputy leader Mothin Ali linked to property lets in Leeds
📅 06.09.2026 👁️ 1
Green Party deputy leader Mothin Ali linked to property lets in Leeds
Mothin Ali, is linked to two rental properties via his company, but does not appear to profit from them.
Gianni Infantino: Fifa president will stand for re-election in March
📅 06.09.2026 👁️ 1
Gianni Infantino: Fifa president will stand for re-election in March
Fifa president Gianni Infantino will stand for re-election in March, the world governing body has confirmed.
Hand­tökur vegna líkams­á­rásar og ölvunar á Ljósanótt - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
Hand­tökur vegna líkams­á­rásar og ölvunar á Ljósanótt - Vísir
Er þetta meðal þess sem Bjarney Annelsdóttir yfirlögregluþjónn á Suðurnesjum staðfestir í tilkynningu. Þar kemur einnig fram að fjöldi tilkynninga um ...
„Traust er auð­vitað það dýr­mætasta sem að fjöl­miðill hefur“ - Vísir
📅 06.09.2026 👁️ 2
„Traust er auð­vitað það dýr­mætasta sem að fjöl­miðill hefur“ - Vísir
Kolbeinn Tumi Daðason ritstjóri fréttastofunnar þakkaði áhorfendum kvöldfrétta Sýnar fyrir að hafa kveikt á sjónvarpinu dag hvern í fjörutíu ár í tíma...
Eins og að vera kippt aftur á sjötta ára­tuginn - Vísir

Ólvun og ólæti ungmenna á Ljósanótt
📅 06.09.2026 👁️ 2
Ólvun og ólæti ungmenna á Ljósanótt
Ölvun og ólæti ungmenna var nokkur á Ljósanótt í gær, en þá náði hátíðin hápunkti með stórtónleikum og flugeldasýningu. Þetta kemur fram í tilkynningu...