Hefla á og brjóta efni í Axarveg í næstu viku. Loftur Þór Jónsson, svæðisstjóri austursvæðis hjá Vegagerðinni, tekur undir með sveitarstjóra Múlaþings að fjármagn skorti til viðhalds vega í landshlutanum.
„Ég er sammála því að við vildum gjarnan fá meira fjármagn bæði til að flýta verkefnum á samgönguáætlun en líka til viðhalds. Sem betur fer hefur vegakerfið hjá okkur ekki farið eins illa út úr umferðaraukningu eins og sums staðar á landinu. Það er alveg rétt að við höfum aðeins setið eftir að því leyti að það hefur verið mjög aðkallandi að fara í stórar aðgerðir á vestursvæði en það er innviðaskuld hjá okkur líka,“ segir Loftur.
Heimastjórn Djúpavogs bókaði á fundi í síðustu viku að viðhald og þjónusta við Axarveg sé í ólestri og sveitarstjóri Múlaþings segir ástand vegarins óviðunandi. Loftur segir það standa til bóta.
„Í næstu viku kemur verktaki með brjót þannig að við ætlum að hefla inn veginn, hefla inn röst á miðjan veginn og brjóta það niður. Það verður þá slitlag sem ég vona að endist langt fram á sumarið.“
Stærsta einstaka viðhaldsframkvæmd sumarsins á Austurlandi er fimm kílómetra kafli í Berufirði þar sem ræsi kemur í stað einbreiðrar brúar yfir Krossá.
Suðurfjarðarvegur er á samgönguáætlun og hafist verður handa við undirbúning framkvæmdarinnar á þessu ári. Vegurinn er fimmtíu ára gamall og þarf stöðugt viðhald, segir Loftur, en ekki verði farið í styrkingar eða stærri verkefni þegar til standi að endurbyggja allan veginn á næstu árum.
Hins vegar kalli það á aukið viðhald á Fjarðarheiði að göng undir hana séu ekki lengur á áætlun í fyrirsjáanlegri framtíð.
„Af því að þetta er búið að vera næsta jarðgangaverkefni á samgönguáætlun svo lengi þá hafa menn ekki viljað leggja út mikinn kostnað við endurbætur á Fjarðarheiði. Nú þarf að hugsa það upp á nýtt og það verður gert. En við erum ekki komin með neinar áætlanir fyrir alvöru, ekki neina hönnun.“