Tölvuleikjaheimurinn heldur niðri í sér andanum fyrir komu Grand Theft Auto VI sem er væntanlegur í nóvember. Þrjú ár eru liðin frá því að fyrsta stiklan úr leiknum leit dagsins ljós en leikurinn hefur verið í vinnslu í um áratug. Í vikunni var birt lengri útgáfa þar sem áhorfendur fengu innsýn í hvaða möguleikar verða í boði í leiknum, staðsetningin er borgin Vice City í ríkinu Leonida, er það einskonar hliðarveruleiki við Miami og Flórída í Bandaríkjunum.
„Það er ekki séns að kærastinn minn sé að fara að spila GTA 6!“