Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálf­stæð“ - Vísir

Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálf­stæð“ - Vísir

Systir Ming Ting: Catherine „ekki sjálf­stæð“ - Vísir

Réttarhöldin í Edition-málinu eru komin á þriðja dag, þar sem hin 56 ára Ming Ting Mancel hefur verið ákærð fyrir að myrða 29 ára dóttur sína, Catherine, í samráði við eiginmann sinn, Emeric Mancel heitinn, á lúxushótelinu Reykjavik Edition í júní 2025.

Samkvæmt ákærunni eiga hjónin að hafa haldið dóttur sinni, Catherine, fastri og brugðið snöru um háls hennar til að þrengja að öndunarvegi. Svo hafi þau stungið hana tvisvar með hnífi í brjóstkassann og önnur stungan hæfði hjartað, sem er talin vera dánarorsökin.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

Aftur á móti hefur komið fram í málflutningi Ming Ting að fjölskyldan öll hafi ætlað að svipta sig lífi á hótelherberginu þessa nótt, aðfaranótt 14. júní. Hún sagðist hafa haldið í hönd dóttur sinnar meðan Emeric hefði stungið hana, síðan hafi þau lagt hana upp í rúm og stungið hana þar aftur. Ming Ting sagði að dóttir sín hefði ekki streist á móti en viðurkenndi engu að síður að dóttir hennar hefði viljað fara á annan hátt. 

Réttarlæknir sagði aftur á móti í dag að klóráverkar á hálsi kynnu að benda til þess að hún hafi streist á móti.

Sjaldan hitt systur sína frá því að hún flutti úr Frakklandi

Yngri systir Ming Ting sem er búsett í Frakklandi bar vitni fyrir dómi í gegnum fjarfundarbúnað en þar var hún spurð út í samband sitt við systur sína og samband Catherine við foreldra sína.

Systirin sagði þar að systurnar tvær hefðu verið í litlum samskiptum frá því að Ming Ting flutti frá Frakklandi. Þær ættu í flestum samskiptum í gegnum WeChat en seinast hefðu þær hist fyrir um tveimur árum.

Sendi systur sinni giftingarhringinn og erfðaskrá dóttur sinnar

Hún sagði að 11. júní hefði hún fengið skilaboð frá systur sinni sem ollu henni áhyggjum.

„Systir mín hafði samband til að segja mér að ég myndi fá frá henni pakka. Það er allt og sumt,“ sagði systirin fyrir dómi í dag. Hún sagði að skilaboðin hefðu valdið henni áhyggjum og því hafi hún reynt að ná í systur sína með því að hringja í gegnum WeChat en engin svör bárust.

„Mér fannst skilaboðin sem ég fékk vera svolítið skrítin, þau voru svo stutt, mig minnir að hún hafi ekki sagt góðan daginn. Mér fannst eitthvað undarlegt við þetta og þetta olli mér áhyggjum.“

Pakkinn hafi svo borist henni 16. júní, tveimur dögum eftir atvikið á Edition.

Í pakkanum hafi verið gjafavörur frá Íslandi – en einnig giftingarhringur Ming Ting.

Skömmu síðar hafi hún fengið erfðaskrár fjölskyldunnar sendar 18. júní. Hún gat ekki borið kennsl á rithöndina utan á bréfinu, sagði hún. Spurð hvort það hafi verið íslensk frímerki á umslaginu svaraði hún að hún myndi það ekki.

Ekki sjálfstæð

Því næst var hún spurð út í samband sitt við Cathrine, dóttur þeirra Emeric heitins og Ming Ting.

Systirin sagðist muna eftir því að hafa hitt fjölskylduna 2018.

„Catherine var mjög feimin og virkaði mjög náin foreldrum sínum og tjáði sig mjög lítið. Maður þurfti að fara til þeirra til að eiga í samskiptum við hana,“ sagði systirin.

Hún hafi þó ekki virst seinþroska. „Ég gat ekki greint neitt sem benti til þess.“ Þær hafi átt venjulegar samræður þennan tíma. Henni fannst hún vera hlédræg, sérstaklega miðað við sín eigin börn.

Fannst þér hún virka sjálfstæð gagnvart foreldrum sínum?

„Nei, hún var ekki sjálfstæð,“ svaraði systir Ming Ting.

Var hún háð foreldrum sínum?

„Við vorum sammála um það að hún væri orðin svo stór og tími kominn til að flytja út, en þá sagði hún bara: „Nei, af hverju ætti ég að fara frá foreldrunum? Mér líður bara vel með þeim?““

Einu samskiptin sem hún hefði átt við Catherine síðan hefðu verið afmæliskveðjur í smáskilaboðum og þess háttar. Hún svaraði þeim en annars ekkert. Hún vissi ekki hvort hún hefði átt í einhverjum samskiptum við frændsystkini sín.

Réttarhöld halda áfram í dag og verður haldið í vettvangsgöngu á hótelinu. Allt bendir til þess að þinghaldi ljúki ekki í dag.

Í þessari grein er fjallað um sjálfsvíg. Fólki með sjálfsvígshugsanir er bent á upplýsingasíma heilsugæslunnar s.1700, netspjallið heilsuvera.is, Hjálparsíma Rauða krossins s.1717, á netspjallið 1717.is og á Píeta símann s.552-2218.

#catherine #ekki #ming #systir #ting

Upprunaleg slóð:
https://www.visir.is/g/20262899061d/systir-ming-ting-catherine-ekki-sjalfstaed-

📰 Aðrar fréttir

Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Segir stjórn­endur Ung­frú Ís­land hafa gert upp á milli kepp­enda - Vísir
Erla Talía Einarsdóttir var átján ára þegar hún keppti í Ungfrú Ísland árið 2025. Núna ári síðar hefur hún birt TikTok-myndband um reynslu sína af kep...
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
📅 25.09.2026 👁️ 0
„Í sumum nágrannaríkjunum eru ráðherrar reknir og ráðnir eins og au-pair stúlkur“
Haukur Arnþórsson stjórnsýslufræðingur segir að upphrópanir gagnvart Flokki fólksins, Ingu Sæland og Ragnari Þór Ingólfssyni vegna brotthvarfs Guðmund...
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sjald­gæfur gestur í Eyjum - Vísir
Tígull greinir frá komu þessa sjaldgæfa gests. Eyjamiðillinn ræddi við Yann Kolbeinsson fuglafræðing sem sagði komum kúhegra til landsins hafa fjölgað...
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
📅 25.09.2026 👁️ 0
Sekt fyrir að henda rusli á götur Tókýó
Borgaryfirvöld í Tókýó, höfuðborg Japans, hafa til skoðunar að grípa til hertra aðgerða til að halda borginni hreinni. Borgarstjórinn Yuriko Koike til...
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
📅 25.09.2026 👁️ 0
Forseti býður framhaldsskólanemum til samtals
Að verkefninu stendur Samtal, félag til almannaheilla, í víðtæku samstarfi við ungt fólk, skóla, félagasamtök, stofnanir og stjórnvöld um allt land. S...
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
📅 25.09.2026 👁️ 1
Fimm ákærðir fyrir sérstaklega hættulega líkamsárás og nauðgun með járnröri
Fimm menn hafa verið ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás og hótanir gegn manni í ágúst 2023. Meðal þess sem fimmmenningunum er gef...
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
📅 25.09.2026 👁️ 1
Sjaldgæfur flækingur sást í Vestmannaeyjum
Kúhegri sást í Vestmannaeyjum í dag. Hann er sá fyrsti sinnar tegundar sem vitað er til að hafi sést þar.Tígull greindi fyrst frá.„Þeir eru fremur sja...
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Mamdani - „Kannski ætti það að kaupa sambærilegt magn“
Gunnar Smári Egilsson fjölmiðlamaður leggur til að íslenska ríkið fylgi fordæmi Zohran Mamdani borgarstjóra í New York og gefi fátækum frímiða í Þjóða...
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
📅 25.09.2026 👁️ 0
Zelensky says Russia has widened attacks to hit Ukraine's data centres and internet providers
Such strikes aim to disrupt "people's ability to stay connected, study, work", says Ukraine's president.
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Bað um á­lit lög­reglu á gæðum fíkni­efna - Vísir
Að sögn lögreglu var maðurinn hræddur um að sér hefðu verið seld léleg fíknefni. Vildi hann fá lögreglu til að komast til botns í þessu. Ekki kemur fr...
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
📅 25.09.2026 👁️ 1
Stingur upp á Sameinuðu arabísku furstadæmunum sem fundarstað
Bandarísk stjórnvöld hafa stungið upp á því að sendinefndir Rússlands og Úkraínu ræði saman í Sameinuðu arabísku furstadæmunum á næstunni. Þetta tilky...
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Skriða þveraði veginn í Árneshrepp - Vísir
Hreppurinn greinir frá þessu í færslu á samfélagsmiðlum þar sem birtar eru sömuleiðis myndir af umfangi skriðunnar sem þveraði veginn. „Það er áfram m...
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 1
Breið­holts­braut lokuð allan morgun­daginn - Vísir
Lokunin stendur yfir frá klukkan fimm að morgni og til klukkan 22 um kvöldið. Brautin verður lokuð við Þingtorg og Selásbraut og við nýju gatnamótin o...
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
📅 25.09.2026 👁️ 1
Þurfa að gangast undir mannerfðafræðilega rannsókn til að leiða í ljós hvort þeir séu bræður
Rangfeðraður maður telur sig vita hver raunverulegur faðir hans er. Sá maður er þó látinn sem flækir málin. Sá rangfeðraði hefur höfðað mál til að fá ...
Breiðholtsbraut lokað á morgun
📅 25.09.2026 👁️ 2
Breiðholtsbraut lokað á morgun
Breiðholtsbraut í Reykjavík verður lokuð vegna malbikunar milli klukkan 5 og 22 á morgun, laugardag.Þetta kemur fram á heimasíðu Vegagerðarinnar.Lokað...
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
📅 25.09.2026 👁️ 1
U2 celebrate 50th anniversary at the school where they formed
The rock band go back to their roots, playing a gig in the Dublin playground where they first met.
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
📅 25.09.2026 👁️ 1
Ný sería af The Four Seasons tekin upp í Krónunni
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Einn aðalleikari þáttanna sást spóka sig í miðborg Reykjavíkur á dögunum.Sa...
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
📅 25.09.2026 👁️ 1
Ný sería af The Four Seasons tekin upp á Íslandi: „Reykjavík og Ísland fá gríðarlega landkynningu“
Þriðja sería af sjónvarpsþáttunum The Four Seasons er í tökum hér á landi. Framkvæmdastjóri True North segir yfir 100 manns á vegum fyrirtækisins koma...
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Allt um­fram 2,8 milljarða dregið frá - Vísir
Birt voru drög að frumvarpi til laga um breytingu á lögum um Ríkisútvarpið í samráðsgátt fyrr í dag. Lögin eru byggð á tillögum úr fjölmiðlapakka sem ...
Olíuleki á Seltjarnarnesi
📅 25.09.2026 👁️ 2
Olíuleki á Seltjarnarnesi
Mikil olía lak á Lindarbraut og Norðurströnd á Seltjarnarnesi í dag. Vegfarendur voru varaði við hálku vegna þessa.María Björk Óskarsdóttir, sviðsstjó...
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
📅 25.09.2026 👁️ 1
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum
RÚV heimilt að fækka útvarpsstöðvum samkvæmt frumvarpsdrögum RÚV má fækka út­varps­stöðv­um verði ný drög að frum­varpi um RÚV sam­þykkt. Þá er stefnt...
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Segir Ingu hafa eytt sér á Facebook - Vísir
Guðmundur Ingi fór ítarlega yfir aðdraganda og eftirmál afsagnar sinnar úr embætti mennta- og barnamálaráðherra í Reykjavík síðdegis. Guðmundur sagði ...
Húsbíll fauk út af - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Húsbíll fauk út af - Vísir
Þetta segir Ásmundur Kristinn Ásmundsson, yfirlögregluþjónn á Vesturlandi, í samtali við Vísi. Unnið hafi verið að því í dag að fjarlægja bílinn af ve...
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hver á­kvað að Guð­mundur Ingi ætti að hætta? - Vísir
„Svarið er nei,“ sagði Inga Sæland mennta- og barnamálaráðherra á Alþingi í gær, spurð hvort forystumenn ríkisstjórnarinnar hefðu ákveðið að Guðmundur...
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
📅 25.09.2026 👁️ 1
I'm not tempted to call an early election, Andy Burnham says
The prime minister told the BBC an early poll would throw the country into a "backward-looking process".
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Orðið á götunni: Stjórnarandstaðan spilar með Guðmund Inga - Guðrún finnur samhljóm með honum vegna slakrar enskukunnáttu
Upphlaup Guðrúnar Hafsteinsdóttur á Alþingi í gær er enn eitt vindhöggið af hennar hálfu. Þó fyrrum þingmaður flokks fólksins sé svekktur yfir því að ...
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fimm karlmenn sakaðir um ógeðfelld brot – Nauðguðu manni með járnröri og sendu myndband á vini sína
Fimm karlmenn eru ákærðir fyrir nauðgun, sérstaklega hættulega líkamsárás, frelsissviptingu og hótanir vegna atvika sem áttu sér stað í ágúst árið 202...
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Snorri hjólar í umfjöllun RÚV: „Það er ekki hægt að skálda þetta“
Snorri Másson, þingmaður Miðflokksins, segir umfjöllun RÚV um trans teymi barna og unglinga á Landspítala hafa augljósan pólitískan tilgang og það sé ...
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Þykja breytingar á samningum ekki nóg til að skapa sættir
Valgerði Rúnarsdóttur, fyrrverandi framkvæmdastjóra lækninga hjá SÁÁ, finnst áform Sjúkratrygginga og SÁÁ um að tryggja armslengd milli félagasamtakan...
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Vegurinn í Árneshrepp lokaður vegna skriðu
Vegurinn í Árneshrepp er lokaður vegna stórrar skriðu sem féll í Kaldbaksvík. Í tilkynningu frá sveitarfélaginu á Facebook segir að vegurinn sé lokaðu...
Why is the Pope in France?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Why is the Pope in France?
The BBC's Hugh Schofield looks at why the visit is met with enthusiasm the Church attributes to growing spirituality among the French.
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
📅 25.09.2026 👁️ 2
„Ef ég væri Pamela í Dallas“
„Ef ég væri Pamela í Dallas“ Sig­ríð­ur Jóns­dótt­ir skrif­ar um Svika­sög­ur eft­ir Maríu Reyn­dal, sem sýnt er í Borg­ar­leik­hús­inu. Það er ætíð f...
Aflátsbréf frá Brussel
📅 25.09.2026 👁️ 2
Aflátsbréf frá Brussel
Aflátsbréf frá Brussel Fréttin25. september 2026Evrópusambandið, Innlent, Júlíus ValssonLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar: Á miðöldum gátu syndar...
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35?
Hvers vegna þegir RÚV um afleiðingar Bókunar 35? Fréttin25. september 2026InnlendarLeave a Comment Júlíus Valsson skrifar. Ríkisútvarpið er engin venj...
Afstaða Íslands skýr
📅 25.09.2026 👁️ 2
Afstaða Íslands skýr
Utanríkisráðherra segir afstöðu Íslands til hörmunganna á Gaza, mannúðaraðstoðar og tveggja ríkja lausnarinnar skýra. Stuðningur við Palestínu sé miki...
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
📅 25.09.2026 👁️ 2
Mannúðarkeðja mynduð til stuðnings við fólk á flótta
Boðað var til samstöðufundar fyrir fólk á flótta á Austurvelli í dag. Páll Óskar Hjálmtýsson flutti tvö lög ásamt Ljóta kórnum, Háskólakórnum og Kór H...
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka upp Netflix þætti á Skóla­vörðu­stíg og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir
„Þetta var algjörlega ótrúlegt,“ segir Gunnar Theodór í samtali við Vísi sem hélt útgáfuhóf fyrir bók sína og Linn Janssen, Matargatið í húsakynnum Fo...
Taka upp Netflix þætti í mið­bænum og Tina Fey ó­væntur gestur - Vísir

Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
📅 25.09.2026 👁️ 2
Ed Sheeran concerts cancelled becuase of bad weather
The star's concerts in Massachusetts on Friday and Saturday are cancelled after severe weather warnings.
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Tugir kannabisplantna fundust við húsleit í Bolungarvík
Húsráðandi var handtekinn og færður til yfirheyrslu. Honum hefur verið sleppt og telst málið upplýst. Þetta er þriðja kannabisræktunin sem lögreglan á...
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
📅 25.09.2026 👁️ 2
Jet2 plane evacuated after bomb threat at Tenerife South Airport
A Jet2 passenger plane was evacuated at Tenerife South Airport today after a passenger reportedly made a bomb threat, triggering a precautionary secur...
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
📅 25.09.2026 👁️ 2
Eldræða Bubba: „Þetta er svívirða“
Tónlistarmaðurinn Bubbi Morthens segir að það sé hernaður í gangi gegn íslensku tungumáli. Í færslu sem lýsa má sem eldræðu segir Bubbi að það þurfi a...
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sonja Ýr Þorbergsdóttir: Það þarf ekki að slá á eftirspurnina hjá fátækasta fólkinu
Vaxtatækið virðist vera eina vopnið við verðbólgu. Það slær á eftirspurn en það þarf ekki að slá á eftirspurn hjá hópnum sem nær ekki endum saman. Þes...
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Sýnir Xi lýðræðisdjásn Banda­ríkjanna - Vísir
Trump sagðist einnig, samkvæmt AP fréttaveitunni, vilja sýna Xi gömul skjöl sem fjalla um samskipti Bandaríkjanna og Kína. Búist var við því að Xi myn...
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
📅 25.09.2026 👁️ 2
Fundu kannabisræktun í Bolungarvík
Miðvikudaginn 23. september framkvæmdi Lögreglan á Vestfjörðum húsleit í heimahúsi í Bolungarvík. Húsleitin var framkvæmd vegna grunsemda sem höfðu va...
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
📅 25.09.2026 👁️ 2
Flugvirkjar og Icelandair hittast aftur á mánudag
Ríkissáttasemjari segir fund Flugvirkjafélags Íslands og Icelandair hafa gengið ágætlega. Samninganefndirnar funduðu í fyrsta sinn frá því að verkfall...
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
📅 25.09.2026 👁️ 2
Man City 115 charges: What could the potential sanctions be?
Football finance expert Kieran Maguire says the potential sanctions for Manchester City will be 'significant' after the sources told BBC Sport that th...
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
📅 25.09.2026 👁️ 2
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar
Taka metsölubók af tilnefningarlista vegna ásakana um notkun gervigreindar Kanadísk-haí­tíski rit­höf­und­ur­inn Thelyson Or­elien neit­ar að hafa not...
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæslu­varð­hald fram­lengt yfir þremur - Vísir
Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu staðfesti þetta við Vísi í dag. Hún fór ekki fram á áframhaldandi gæsluvarðhald yfir hinum þremur. „Rannsókn málsins mi...
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
📅 25.09.2026 👁️ 2
Gæsluvarðhald framlengt yfir þremur vegna fíkniefnabrota og peningaþvættis
Þrír þeirra sem sátu í gæsluvarðhaldi vegna rannsóknar lögreglu á umfangsmiklum fíkniefnabrotum og peningaþvætti hafa verið látnir lausir.Þetta kemur ...