Netöryggisfyrirtækið Syndis hefur ráðið Petru Klein til liðs við stjórnendateymi félagsins þar sem hún mun einkum leiða uppbyggingu og starfsemi Syndis á sænska markaðnum og styðja við áframhaldandi sókn félagsins á Norðurlöndum.Petra kemur til Syndis með yfirgripsmikla reynslu úr net- og upplýsingaöryggi, stefnumótun og stjórnunarstörfum. Hún hefur meðal annars gegnt stöðu öryggisstjóra hjá Swedbank, einu stærsta fjármálafyrtæki Norðurlanda, þar sem hún bar ábyrgð á öryggismálum samstæðu sem telur um 17.000 starfsmenn.
Syndis ræður öryggisstjóra Swedbank