Sveigja verður sett á nýja hitaveitulögn við Eyrarbakkaveg í Árborg til að raska ekki ró álfa sem búa í svokölluðum Strokkhól. Umsjónarmaður verksins segir þetta í fyrsta sinn sem hann hafi séð slíkt í verklýsingu en það borgi sig ekki að taka neina sénsa.
Sunnlenska greindi fyrst frá.
Jóhanna Sigríður Hannesdóttir, ritstjóri og eigandi fréttaveitunnar Sunnlenska, býr í nágrenni við Strokkhól. Hún segir það hafa margsýnt sig að það borgi sig ekki að hrófla við hólnum. Sýna skuli álfunum virðingu.
Lentu í miklum vandræðum
„Hitaveitulögnin sem er nú til staðar hún var lögð um 1980 og þá átti að klípa eitthvað af hólnum, af Strokkhól og þá fór eiginlega allt í vitleysu. Ræktunarsamband Flóa og Skeiða sem var að vinna þetta verk það lenti bara í miklum vandræðum, ég held það hafi verið einhver þrjú tilvik sem þóttu undarleg,“ segir Lýður Pálsson, safnstjóri Byggðasafns Árnesinga, sem ólst upp á Litlu-Sandvík í grennd við álfhólinn.
Í framkvæmdinni árið 1981 slasaðist suðumaður á fæti, skurðgrafa varð olíulaus og önnur bilaði. Að endingu varð vörubíll bremsulaus þannig að minnstu munaði að stórslys yrði á fólki.
„Og verkfræðingarnir sem stýrðu þessu verki þeir fóru í öngum sínum til afa, Lýðs Guðmundssonar bónda í Litlu-Sandvík, og sögðu sínar farir ekki sléttar og þá sagði afi þeim að þeir þyrftu að taka smá krók á lögnina framhjá hólnum og þá færi allt vel. Það þýðir ekkert að raska ró þeirra sem búa í Strokkhól,“ segir Lýður.
Engin áhætta tekin í þetta sinn
Jóhann Ágústsson, umsjónar- og eftirlitsmaður Eyrarlagnar, nýrrar lagnar sem á að auka umfang heita vatnsins til Stokkseyrar og Eyrarbakka, segir enga áhættu tekna í þetta sinn.
„Það kemur reyndar fram í bæði verklýsingu og í gögnunum að það sé þarna hóll sem heitir Strokkhóll og þar er samkvæmt heimildum álfabyggð. Það var því ákveðið að taka hlykk á lögnina og fara framhjá þessum hól til að valda ekki raski fyrir íbúa hólsins.“
Þannig að þetta er í verklýsingu?
„Já, einmitt, ég hef aldrei upplifað það áður,“ segir Jóhann.
Hann segir að hlykkurinn sem verði settur á lögnina komi sér þó vel. Hann nýtist sem þensluhlykkur sem hefði þurft að setja einhvers staðar á lögnina.